Mynd: xd.is

Sjálfstæðisflokkurinn fékk of háa styrki árum saman

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk styrki sem voru umfram lög­bundið hámark frá tengdum aðilum árin 2013, 2015, 2016 og 2017. Rík­is­end­ur­skoðun hefur far

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn þarf að end­ur­greiða 1,4 milljón króna til styrk­veit­enda vegna þess að flokk­ur­inn fékk styrki frá tengdum aðilum sem voru umfram leyfi­legt hámark á árunum 2013, 2015 og 2016. Þessar greiðslur koma til við­bótar því að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur þegar end­ur­greitt 500 þús­und krónur vegna styrkja sem hann fékk á árinu 2017 frá tengdum aðilum. Alls hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn því fengið 1,9 millj­ónir króna í styrki sem voru umfram leyfi­legt hámark frá tengdum aðilum.

Þorri umræddra ofgreiðslna á styrkjum kom frá Ísfé­lags­fjöl­skyld­unni svoköll­uðu. Þ.e. fyr­ir­tækjum sem eru í Guð­bjargar Matth­í­as­dóttur og fjöl­skyldu hennar. Þau eru Ísfélag Vest­manna­eyj­una, Oddi prentun og umbúðir ehf. og Ísam ehf. Alls greiddu fyr­ir­tæki í eigu fjöl­skyld­unnar hálfri milljón króna umfram leyfi­legt hámark til Sjálf­stæð­is­flokks­ins á árunum 2015, 2016 og 2017. Flokk­ur­inn er þegar búinn að greiða fyr­ir­tækja­sam­stæð­unni til baka vegna of hárra styrk­veit­inga hennar vegna árs­ins 2017 en þarf nú að greiða henni eina milljón króna til við­bótar vegna eldri styrkja. Til við­bótar greiddu fyr­ir­tækin Eskja og Fiskimið, sem eru í eigu sömu aðila, 400 þús­und krónur umfram leyfi­lega hámarks­fjár­hæð í styrk til Sjálf­stæð­is­flokks­ins á árinu 2013.

Í útdrætti úr árs­reikn­ingi Sjálf­stæð­is­flokks­ins vegna árs­ins 2017 sem birtur var á vef Rík­is­end­ur­skoð­unar í síð­asta mán­uði kom fram að flokk­ur­inn hefði fengið of háa styrki frá Ísfé­lags­fjöl­skyld­unni það árið og verið grert að end­ur­greiða 500 þús­und krónur vegna þessa. Í útdráttum sem birtir eru á vef Rík­is­end­ur­skoð­unar vegna fyrri árs­reikn­inga mátti sjá að sömu fyr­ir­tæki höfðu áður gefið sam­eig­in­lega upp­hæð sem var yfir lög­bundnu hámarki. Kjarninn sendi fyr­ir­spurn 28. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn og spurð­ist fyrir um hvort það hefði verið skoðað aftur í tím­ann hvort Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefði fengið of háa styrki frá tengdum aðilum. Það hafði ekki verið gert fyrr en eftir ábend­ingu Kjarnans og nið­ur­staða slíkrar skoð­unar var sú að flokk­ur­inn hafði fengið styrki frá tengdum aðilum sem voru yfir lög­bundnu hámarki árum saman.

Kjarninn spurði einnig hvort að dæmi væri um að tengdir aðilar hefðu gefið öðrum stjórn­mála­flokkum fé sem væri yfir því sem lög heim­ila. Þeirri fyr­ir­spurn hefur ekki verið svarað.

Tengdir aðilar máttu gefa 400 þúsund

Samkvæmt lögum um fjár­mál stjórn­mála­sam­taka mátti lög­að­ili ekki gefa ein­stökum stjórn­mála­flokki meira en 400 þús­und krónur árlega. Í lög­unum var tekið fram að tengdir aðilar teld­ust sem einn ef „sami aðili eða sömu aðilar eiga meiri hluta hluta­fjár, stofn­fjár eða atkvæð­is­réttar í báðum eða öllum lög­að­il­unum, enda nemi eign­ar­hlutur hvers þeirra um sig a.m.k. 10% af hlutafé, stofnfé eða atkvæða­fjölda í við­kom­andi lög­að­ilum. Sama á við ef ein­stak­lingar eða lög­að­ilar, sem eiga meiri hluta hluta­fjár, stofn­fjár eða atkvæð­is­réttar í lög­að­ila og hver um sig á a.m.k. 10% hluta­fjár, stofn­fjár eða atkvæð­is­réttar í lög­að­il­anum, eiga ásamt við­kom­andi lög­að­ila meiri hluta hluta­fjár, stofn­fjár eða atkvæð­is­réttar í öðrum lög­að­ila. Til eign­ar­hluta og atkvæð­is­réttar ein­stak­linga í lög­að­ilum sam­kvæmt þessum tölu­lið telst jafn­framt eign­ar­hlutur og atkvæð­is­réttur maka og skyld­menna í beinan legg.“

Ísfélagsfjölskyldan, sem styrkti Sjálfstæðisflokkinn umfram lögbundið hámark árum saman, er stærsti einstaki eigandi Morgunblaðsins.
Ísfé­lags­fjöl­skyldan, sem styrkti Sjálf­stæð­is­flokk­inn umfram lög­bundið hámark árum saman, er stærsti ein­staki eig­andi Morg­un­blaðs­ins.

Lögunum var breytt fyrir nokkrum dögum síðan. Í þeim breyt­ingum fólst meðal ann­ars að hámarks­fram­lag sem hver og einn ein­stak­lingur eða lög­að­ili má gefa stjórn­mála­flokkum var hækkað í 550 þús­und krónur og að hug­takið „tengdir aðilar“ var sam­ræmt við skil­grein­ingar á slíkum í annarri lög­gjöf, svo sem í hluta­fé­laga-, einka­hluta­fé­laga-, árs­reikn­inga- og sam­keppn­is­lög­gjöf. Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu sagði: „Þar sem vart er hægt að hugsa sér nán­ari tengsl lög­að­ila en móður- og dótt­ur­fé­lög er lagt til að aðilar í slíku rétt­ar­sam­bandi telj­ist tengdir í skiln­ingi lag­anna. Tillagan er jafn­framt í sam­ræmi við til­mæli ÖSE, sem fram koma í úttekt­ar­skýrslu stofn­un­ar­innar frá 2. mars 2018.“

Of hátt samkvæmt breyttum lögum líka

Sama hvora skil­grein­ing­una er stuðst við þá liggur fyrir að stjórn­mála­flokkar eiga að telja saman fram­lög tengdra aðila. Það gerði Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ekki.

Ísfélag Vest­manna­eyja er í eigu Fram ehf. Það félag er í eigu Guð­bjargar Matth­í­as­dóttur og barna hennar. Fram á einnig fjár­fest­inga­fé­lagið Kristinn ehf., sem á allt hlutafé í Ísam ehf. og 73,5 pró­sent hlut i Odda prentun og úmbúðir ehf. Félögin eru því aug­ljós­lega tengd, enda í eigu sömu fjöl­skyldu.

Þrátt fyrir það gaf Ísfé­lagið Sjálf­stæð­is­flokknum 400 þús­und krónur árin 2015, 2016 og 2017. Ísam gaf honum sömu upp­hæð öll ári og Oddi gaf flokknum 100 þús­und krónur. Sam­an­lagt fram­lag þess­arra þriggja tengdu aðila var því 900 þús­und krónur hvert ár, eða 500 þús­und krónum meira en lög heim­ila. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn þarf þess vegna að end­ur­greiða Ísfé­lags­fjöl­skyld­unni alls 1,5 millj­ónir króna. Hann hefur nú þegar end­ur­greitt upp­hæð­ina vegna árs­ins 2017 til Ísfé­lags­ins og Odda.

Til við­bótar þarf hann, líkt og áður sagði, að end­ur­greiða eig­endur fyr­ir­tækj­anna Eskju og Fiski­miða, 400 þús­und krónur vegna ofgreiddra styrkja á árinu 2013.

Stærstu eigendur Morgunblaðsins

Félög tengd Ísfé­lag­inu eru ekki bara á meðal helstu styrkt­ar­að­ila Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Þau eru líka stærstu eig­endur Árvakurs, útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins. Ísfé­lagið á sjálft 13,43 pró­­sent hlut og áður­nefnt félag, Hlynur A, í eigu Guð­­bjargar Matt­h­í­a­s­dótt­­ur, á 16,45 pró­­sent hlut.

Aðkoma fjöl­skyld­unnar að rekstri Morg­un­blaðs­ins hófst árið 2009 þegar hún mynd­aði bak­beinið í hópi aðila, að mestu tengdum sjáv­ar­út­vegi, sem keypti Árvakur. Nokkrum mán­uðum síðar réðu nýir eig­endur Davíð Oddsson, fyrr­ver­andi for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem rit­stjóra. Hann gegnir því starfi enn.

Árvakur tap­aði 284 millj­ónum króna á árinu 2017. Frá því að nýir eig­endur tóku við rekstr­inum árið 2009, og fram að síð­ustu ára­mótum, hefur félagið tapað um 1,8 millj­arði króna. Hlut­hafar Árvakurs, meðal ann­ars Ísfé­lags­fjöl­skyldan, hafa sett inn rúm­lega 1,4 millj­arða króna inn í Árvakur hið minnsta á því tíma­bili.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár