Fjölmiðlanefnd „getur ekki með nokkrum hætti“ staðið við skuldbindingar sínar

Mála­fjöldi fjöl­miðla­nefndar hefur auk­ist veru­lega og mál verða sífellt umfangs­meiri. Nefndin hefur fengið auknar skyldur sam­kvæmt lögum, en ekki aukið fjár­magn. Hún telur þörf fyrir umfangs­mikla hækkun fram­laga.

Fjöldi samruna hefur orðið á fjölmiðlamarkaði að undanförnu og sér ekki fyrir endann á þeirri þróun að mati fjölmiðlanefndar.
Fjöldi sam­runa hefur orðið á fjöl­miðla­mark­aði að und­an­förnu og sér ekki fyrir end­ann á þeirri þróun að mati fjöl­miðla­nefndar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fjöl­miðla­nefnd getur ekki með nokkrum hætti staðið við þær skuld­bind­ingar sem henni eru ætl­aðar sam­kvæmt lögum. Nefndin hefur ítrekað látið Alþingi vita af því að fjár­veit­ingar til nefnd­ar­innar séu ekki í sam­ræmi við skyldur hennar sam­kvæmt lögum. Þetta kemur fram í umsögn nefnd­ar­innar um fjár­mála­á­ætlun stjórn­valda. „Ekki er að sjá að neinar breyt­ingar verði gerðar á tíma­bil­inu í fjár­mála­á­ætlun,“ segir í umsögn nefnd­ar­innar.

„Fjár­veit­ingar til nefnd­ar­innar voru skornar niður um 10 millj­ónir króna miðað við upp­haf­legt fjár­laga­frum­varp árið 2014 og um 8,5 millj­ónir króna miðað við fjár­fram­lög til nefnd­ar­innar á árinu 2013,“ segir í umsögn­inni. Síðan þá hafi fjár­fram­lög ekki hækkað nema til að standa straum af verð­lags­breyt­ingum og kjara­samn­ings­hækk­unum.

„Fjár­mála­á­ætlun er ekki í sam­ræmi við fjár­þörf nefnd­ar­innar, einkum vegna þeirra laga­frum­varpa sem Alþingi hefur sam­þykkt á und­an­förnum árum. Samkvæmt lögum um fjöl­miðla ber fjöl­miðla­nefnd að hafa eft­ir­lit með ákvæðum lag­anna.“ Meðal þess sem nefnd­inni ber að gera er að tryggja sam­ræmt eft­ir­lit með hljóð- og mynd­miðlum á EES-svæð­inu, en það er sam­kvæmt EES-til­skipun. Ný til­skipun verður sam­þykkt á næsta ári þar sem enn frek­ari skyldur verða lagðar á herðar fjöl­miðla­nefndar. 

„Mála­fjöldi nefnd­ar­innar hefur auk­ist veru­lega og verða mál sífellt umfangs­meiri. Fjöl­miðla­nefnd mun frá og með árinu 2017 þurfa að skila árlegri skýrslu vegna eft­ir­lits með Rík­is­út­varp­inu þar sem þjón­ustu­samn­ingur hefur verið gerður við félagið sam­kvæmt lögum. Er um umfangs­mikið eft­ir­lits­verk­efni að ræða. Samrunum á fjöl­miðla­mark­aði fjölg­aði einnig umtals­vert á árinu 2016 og 2017 og ekki sér fyrir end­ann á þeirri þróun.“

Þá hefur fjöl­miðla­nefnd aldrei fengið þær fjár­veit­ingar sem áður runnu til Barna­vernd­ar­stofu, til þess að hafa eft­ir­lit með ald­urs­merk­ingum á kvik­myndum, sjón­varps­efni og tölvu­leikjum.

Nefndin segir að hún telji að það þurfi umfangs­mikla hækkun á fjár­veit­ingum til starf­semi hennar á næstu árum, „til að nefndin geti sinnt fyrr­greindum verk­efnum, sem Alþingi hefur falið nefnd­inni að rækja á und­an­förnum árum, án þess að fjár­veit­ingar hafi fylgt þeim.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár