Síðasta orrustan: Þjóðverjar og Bandaríkjamenn börðust hlið við hlið

Þetta hljómar frekar eins og upp­kast að hand­riti fyrir Hollywood kvik­mynd í leik­stjórn Steven Spi­el­berg en gerð­ist í raun og veru.

Maí 1945. Adolf Hitler hefur tekið eigin líf og Þriðja ríkið er að falli komið. Síðari heims­styrj­öld­inni er að ljúka, að minnsta kosti í Evrópu. Flestir þátt­tak­enda í þessum hrylli­lega hild­ar­leik hugsa nú um það eitt að kom­ast af. Þó berj­ast enn fanat­ískar SS-her­sveitir og neita að gef­ast upp.

Fangarnir

Sögu­sviðið er hinn drunga­legi Itter-kast­ali í aust­ur­rísku Ölpunum sem SS nýttu sem fang­elsi á stríðs­ár­unum. Þar voru í haldi fangar sem nas­istar töldu mik­il­væga og gátu mögu­lega nýst í fanga­skiptum. En þegar þarna var komið sögu hafði líf þeirra ekki lengur neina þýð­ingu fyrir SS og því voru fang­arnir í bráðri lífs­hættu. Fang­arnir voru flestir franskir en þó af ólíku sauða­húsi. Á meðal þeirra voru: Fyrrum for­sæt­is­ráð­herr­arnir Paul Reynaud og Edouard Daladier, hers­höfð­in­gj­arnir Maurice Gamelin og Maxime Weygand, fas­ista­leið­tog­inn Francois de La Rocque sem, þrátt fyrir stjórn­mála­skoð­anir sínar, hafði snú­ist gegn nas­istum og Vichy-stjórn­inni og því verið fang­els­aður, einnig var þarna tennis-stjarnan Jean Borotra sem var hallur undir fas­isma en líkt og De La Rocque sner­ist gegn Vichy-stjórn­inni og féll því fljót­lega í ónáð. Verka­lýðs­leið­tog­inn/sós­í­alist­inn Leon Jouhaux og einnig Marie-Agnes Cailliau, eldri systir franska hers­höfð­ingj­ans Charles de Gaulle voru einnig fangar þarna og með mörgum karlfang­anna voru eig­in­konur þeirra.

Sam­komu­lagið milli þess­ara ólíku aðila var væg­ast sagt stirt. Reynaud og Daladier höfðu lengi verið svarnir póli­tískir óvinir og þótt þeir væru nú fangar undir sama þaki, hafði lítið breyst hvað það varð­aði. Eitt áttu þeir þó sam­eig­in­legt því báðir fyr­ir­litu þeir Maxime Weygand hers­höfð­ingja. Weygand hafði tekið við vörnum Frakk­lands af Gamelin í maí 1940 en hafði fljót­lega gef­ist upp fyrir þýska inn­rás­ar­lið­inu og var af ýmsum stimpl­aður sem sam­verka­maður (fr: Collaborateaur) en það var eitt mesta og versta styggð­ar­yrði sem til var í augum Frakka á þeim tíma. Það þarf varla að taka það fram að Gamelin hers­höfð­ingi fyr­ir­leit einnig Weygand og var meinilla við Daladier. Fas­ist­inn de La Rocque og verka­lýðs­for­kólf­ur­inn og sós­í­alist­inn Jouhaux þoldu eðli­lega ekki hvorn annan, enda langt frá hvorum öðrum á hinu póli­tíska línu­riti.

Þau gerðu sér þó ljóst að þegar þarna var komið var líf þeirra allra í stór­hættu. Fanga­vörður þeirra var SS-for­ing­inn Sebast­ian Wimmer og þó hann hefði áður reynt að full­vissa fang­ana um að lífi þeirra yrði þyrmt þá fór það ekki fram hjá neinum að hann varð sífellt óstöðugri og óút­reikn­an­legri í hegðun. Að morgni 4. maí lét Wimmer sig síðan hverfa. SS-her­menn­irnir sem eftir voru höfðu greini­lega lít­inn áhuga á skyldu­störfum sínum eftir að for­ingi þeirra var flú­inn og frönsku fang­arnir voru skyndi­lega ein eftir í kast­al­anum. En þótt þau væru frjáls þá þýddi það ekki endi­lega að þau væru örugg. Stutt eft­ir­lits­ferð þeirra leiddi í ljós að enn voru þýskir her­menn á sveimi. Þó var bót í máli að fanga­verð­irnir höfðu skilið eftir vopn og skot­færi.

Leitað að hjálp: Rafvirkinn

Flestir starfs­manna kast­al­ans voru fangar af aust­ur­evr­ópskum upp­runa. Aðeins degi áður en Wimmer flúði kast­al­ann hafði króat­íski raf­virk­inn Zvonko Cuckovic stungið af til að leita hjálpar. Cuckovic hafði smyglað útvarpi til fang­anna og því var þeim kunn­ugt um að banda­rískar her­sveitir væru nálægt. Vegna starfs síns sem raf­virki í fang­els­inu þurfti hann oft að fara þaðan til að ná í vara­hluti. Á leið sinni sá Cuckovic að grunur þeirra um að sumir Þjóð­verjar hefðu ekki í hyggju að gef­ast upp, var réttur. Hann hjólaði fram hjá SS-her­sveitum sem höfðu málað slag­orð eins og Hollusta við For­ingj­ann! á bryndreka sína. Honum tókst að sann­færa alla um að hann væri á sinni venju­bundnu leið að ná í vara­hluti. Að lokum kom hann í þorp þar sem hinn rauði og hvíti fáni Aust­ur­ríkis hékk utan á húsum. Cuckovic hjólaði fyrir horn og starði þá beint inn í hlaup á skrið­dreka. Hann bjó sig undir að end­ur­taka lyga­sögu sína um vara­hlut­ina er hann átt­aði sig á því að á skrið­drek­anum var ekki svartur kross þýska hers­ins, heldur hvít stjarna. Zvonko Cuckovic hafði tek­ist að finna banda­ríska her­liðið.

Leitað að hjálp: Kokkurinn

Í kast­al­anum ótt­uð­ust fang­arnir um afdrif Króatans Cuckovic og þrátt fyrir stirt sam­band þá réðu þau nú ráðum sínum og ákváðu finna annan sendi­boða til að leita hjálpar. Það var, þrátt fyrir allt, mjög lík­legt að Cuckovic hefði verið tek­inn fastur eða jafn­vel skot­inn til bana. Eins og áður hefur komið fram þá hik­uðu SS-sveitir og aðrir sem enn voru fylgj­andi nas­ism­anum ekki við það að taka þá af lífi sem sýndu minnstu merki um upp­gjöf. Tennis­leik­ar­inn Jean Borotra bauð sig fram en þá sté tékk­neski kokk­ur­inn Andreas Krobot fram og bauðst til að fara frekar. Krobot, eins og Cuckovic, var með miða, skrif­aðan á ensku, sem lýsti aðstæðum í kast­al­anum. Hann stefndi til þorps­ins Wörgl. Frönsku fang­arnir höfðu talið lík­legt að þorpið væri nú í höndum Banda­ríkja­manna.

Krobot sjálfur var ekki of viss og hann komst fljót­lega að því að grunur hans reynd­ist á rökum reistur. Hann kom auga á SS her­menn sem skutu á hús þar sem aust­ur­ríski fán­inn blakti. Hann hrað­aði sér fram hjá og sá seinna vopn­aðan mann standa í dyra­gætt á húsi einu en Krobot tók eftir því mað­ur­inn var borg­ara­lega klæddur. Krobot hik­aði en ákvað að láta slag standa og útskýrði fyrir mann­inum stöðu mála. Maðurinn reynd­ist vera í aust­ur­rískum and­spyrnu­hópi sem barð­ist gegn SS-her­sveit­unum. Hann leiddi Krobot inn í húsið og kynnti hann fyrir for­ingja and­spyrnu­hóps­ins. Krobot gat ekki dulið undrun sína er hann sá for­ingj­ann því sá var klæddur ein­kenn­is­bún­ingi majórs í Wehrmacht, þýska hernum.

Þýski majórinn

For­ing­inn sem Krobot hafði nú hitt var Josef Gangl, oft­ast kall­aður „Sepp“. Hann hafði gengið í þýska her­inn árið 1928, rétt nýorð­inn 18 ára. Þar voru menn fljótir að koma auga á leið­toga­hæfi­leika hans og hann reis fljót­lega upp til met­orða og hækk­aði í tign. Gangl hafði barist á ýmsum víg­stöðvum og meðal ann­ars verið fjögur ár í Rúss­landi. Þegar þarna var komið sögu var her­deild hans ekki svipur hjá sjón og Gangl hafði löngu misst áhug­ann á því að berj­ast fyrir for­ingj­ann og föð­ur­landið.

Hans eina mark­mið, á þessum tíma­punkti, var að halda mönnum sínum á lífi og kom­ast í sam­band við banda­ríska inn­rás­ar­liðið. Það hafði meira að segja verið Sepp Gangl sem sjálfur kom sér í sam­band við aust­ur­ríska and­spyrnu­hóp­inn. Við það vænk­að­ist hagur þeirra mjög því Gangl gat útvegað vopn og auk þess hafði hann mikla reynslu. Yfirmenn Gangl í hernum vissu heldur ekki að hann var nú í raun nokk­urs­konar gagnnjósn­ari, lék tveimur skjöldum og réð því yfir mik­illi vit­neskju um stöðu mála í Aust­ur­ríki. Aðeins fáum dögum áður hafði her­inn flúið frá svæð­inu og nú voru aðeins eftir SS-sveitir. Gangl ákvað að verða eftir og með honum voru um 30 her­menn hans. Gangl var í raun kunn­ugt um fang­ana í Itter-kast­ala og hann hafði velt því fyrir sér hvernig hann gæti komið þeim til aðstoðar. Nú hafði SS-mönnum fjölgað á svæð­inu og Gangl gerði sér ljóst að tím­inn vann ekki með þeim. Hann yrði að kom­ast í sam­band við Banda­ríkja­menn­ina ef hann ætti að geta bjargað föng­unum.

SS-foringi og bjargvættur

Í kast­al­anum gerð­ust atburðir enn furðu­legri því fang­arnir höfðu farið í nær­liggj­andi þorp og beðið Þjóð­verj­ann Kurt Schrader um að hjálpa sér. Schrader hafði særst illa í orr­ustu og því sest í helgan stein í Aust­ur­ríki ásamt fjöl­skyldu sinni. Eftir að nokkrir hátt­settir for­ingjar í hernum höfðu reynt að koma Adolf Hitler fyrir katt­ar­nef þann 20. júlí 1944 hafði Schrader algjör­lega fallið frá hug­mynda­fræði nas­ista og var óhræddur að segja frönsku föng­unum frá fyr­ir­litn­ingu sinni á Hitler. Hann hafði ving­ast við fang­ana og þau treystu honum. Ástæðan fyrir því að fang­arnir báðu hann lið­sinnis var sú að Kurt Schrader hafði verið ekki verið neinn venju­legur her­maður heldur var hann höf­uðs­maður (þ: Hauptstur­mführer) í sjálfu SS. Hann sam­þykkti strax að hjálpa föng­unum og klædd­ist nú á nýjan leik í sinn gamla bún­ing. Hugmynd þeirra var sú að er SS-her­menn kæmu í kast­al­ann myndi Schrader segja þeim að hann væri yfir­maður þar og bæri ábyrgð á föng­unum. Þótt bæði Schrader og fang­arnir væru efins um að sú brella myndi virka lengi, eða yfir­höfuð, þá fannst þeim viss­ara að reyna.

Bandaríski höfuðsmaðurinn

Á meðan fang­arnir í kast­al­anum búðu sig undir hið versta var Sepp Gangl majór, ásamt und­ir­manni sínum Keblitsch, að brjóta heil­ann um það hvernig hann kæm­ist klakk­laust til banda­ríska her­liðs­ins. Þó það væri aðeins í 12 kíló­metra fjar­lægð þá var aug­ljóst að þetta yrði hættu­för. Þeir myndu mögu­lega verða stöðv­aðir af SS-her­sveitum og ef leitað yrði á þeim væru miklar líkur á að þeir yrðu teknir af lífi þegar í stað enda tóku þeir með sér hvítan upp­gjaf­ar­fána og bréfið frá frönsku föng­unum sem Krobot hafði látið þá hafa. Einnig voru aust­ur­rískir and­spyrnu­hópar á svæð­inu sem þekktu þá ekk­ert og myndu eflaust ekki hika við að skjóta á tvo þýska for­ingja. Svo má ekki gleyma því að banda­rískir her­menn voru einnig lík­legir til að skjóta fyrst en spyrja svo. Hættan var gíf­ur­leg en Gangl og Keblitsch ákváðu að láta slag standa og brun­uðu af stað. Um 45 mín­útum seinna voru þeir komnir í þorpið Kufstein. Þeir höfðu orðið varir við þýska her­menn á leið­inni en bless­un­ar­lega hafði eng­inn haft fyrir því að stöðva þá. Keblitsch keyrði greitt og tók hvassa beygju en stöðv­aði þá snöggt.

Fyrir framan þá stóðu fjórir banda­rískir M-4 Sherman skrið­drekar og illi­legir banda­rískir her­menn stukku af drek­unum og æddu að þýsku her­mönn­unum með vopn á lofti. Í snar­hasti reisti Gangl upp hvíta fán­ann og þeir Keblitsch stigu var­lega út úr bílnum með hendur á lofti. Banda­rísku her­menn­irnir öskr­uðu á þá og neyddu þá til að fara niður hnén með hendur á hnakka. Þjóð­verjarnir voru jafn­vel hræddir um að þeir yrðu mögu­lega skotnir áður en þeim gæf­ist tóm til að útskýra sendi­för sína. Nú varð Sepp Gangl þó var við að her­menn­irnir viku til hliðar fyrir manni sem gekk þungum skrefum í átt til þeirra.

Gangl vog­aði sér að líta upp og starði þá beint framan í banda­rískan for­ingja sem var eins og klipptur út úr Hollywood – stríðs­mynd. Maðurinn var í með­al­lagi hávax­inn en gíf­ur­lega vöðva­stæltur og krafta­legur, með hjálm­inn skakk­ann á höfð­inu og í þvældum og rykugum bún­ingi höf­uðs­manns (e: Captain). Gangl tók eftir stórri 45 kalí­bera Colt skamm­byssu í slíðri um öxl­ina, í munn­vik­inu var Amer­ík­an­inn með stóran vindil. Gangl kunni hrafl í ensku og byrj­aði nú að útskýra mál sitt og dró fram bréfið frá frönsku föng­unum. Banda­ríski höf­uðs­mað­ur­inn reif bréfið af þýska majórnum og skotr­aði aug­unum yfir það, gekk til baka að skrið­dreka sínum og hvarf ofan í hann. Í drykk­langa stund biðu Þjóð­verjarnir með önd­ina í háls­inum. Loks kom banda­ríski höf­uðs­mað­ur­inn til baka, reif þá báða á fætur, brosti og sagði glað­hlakka­lega: “Jæja, félagar. Það lítur út fyrir að við séum að fara í björg­un­ar­leið­angur!“

Maðurinn sem þeir Gangl og Keblitsch höfðu rek­ist á var John „Jack“ Carey Lee Jr. 27 ára gam­all fót­göngu­liðs­for­ingi, frá New York fylki á aust­ur­strönd Banda­ríkj­anna. Verði ein­hvern tíma gerð kvik­mynd eftir sög­unni um bar­dag­ann við Itter-kast­ala þá ætti ekki að vera nein ástæða til að breyta neinu er kemur að per­sónu Jack Carey Jr. Hann var 177 senti­metrar á hæð og 86 kíló á þyngd og hafði þótt mikið efni í ruðn­ingi, eða amer­ískum fót­bolta. Jack var einnig þekktur fyrir að kunna sér­stak­lega að meta tvo hluti: Vindla og viský og ekki skemmdi fyrir að lenda í slags­málum af og til.

Jack var þó eng­inn bjáni og gekk vel í skóla og er Banda­ríkin gerð­ust þátt­tak­endur í stríð­inu í árs­lok 1941 var Jack Carey við það að útskrif­ast sem liðs­for­ingja­efni í her­skóla í Vermont-fylki. Hann var því fljót­lega kall­aður til þjón­ustu. Carey var nátt­úru­legur leið­togi, ákveð­inn, kapp­samur og fylg­inn sér. Hann hafði fengið höf­uðs­manns­nafn­bót aðeins fjórum dögum áður. Banda­rísku her­menn­irnir höfðu haft lítið að gera und­an­farnar vikur og margir byðu eftir því að Þjóð­verjar gæfust upp. Eflaust voru ýmsir und­ir­manna Careys ekk­ert spenntir fyrir því að fara í björg­un­ar­leið­angur inn í land óvin­ar­ins. Þeir þekktu þó brosið á and­liti for­ingja síns er hann tal­aði við þýska majórs­ins. Þetta var spenn­andi verk­efni og Jack Carey kunni að meta spennu og áhættu.

Björgun og bardagi

Jack Lee hafði form­lega tekið við upp­gjöf þýsku her­mann­anna en það er til marks um það traust sem hafði mynd­ast milli hans og Sepp Gangl majórs að banda­ríski höf­uðs­mað­ur­inn leyfði Þjóð­verj­unum að halda vopnum sínum. 14 banda­rískir her­menn fóru með Lee í kast­al­ann og Gangl hafði 10 þýska her­menn með sér en form­lega var hóp­ur­inn undir for­ystu banda­ríska höf­uðs­manns­ins. Ólíklegt er að nokkur for­ingi banda­manna hafi stjórnað því­líkum hópi í stríð­inu. Lee hafði í byrjun ætlað að taka fimm Sherman skrið­dreka með sér en brú hafði gefið sig og hann neydd­ist til að skilja fjóra eftir. Hópurinn hafði rek­ist á nokkra SS-menn á leið­inni en ekki hafði komið til neinna alvar­legra átaka.

Lee bakk­aði skrið­dreka sínum, sem hét því gáska­fulla nafni Blind­fulla Jenný (e: Besotten Jenny) inn í hlið kast­al­ans svo að fall­byssan sneri að veg­inum. Frönsku fang­arnir voru alsælir að sjá björg­un­ar­leið­ang­ur­inn en lýstu yfir von­brigðum með hve fámennur hann var. Einnig fór það ekki fram hjá þeim að þýski majór­inn og banda­ríski höf­uðs­mað­ur­inn voru ger­ó­líkir. Jack Lee höf­uðs­maður byrj­aði strax að skipa fyrir hárri röddu og æddi inn um allt á skítugum skónum með vindil milli var­anna. Þeim Daladier og Reynaud blöskr­aði rudda­skapur kafteins­ins en kunnu að meta kurt­eisi og hátt­vísi þýska majórs­ins. Þrátt fyrir að vera ólíkir, þá náðu Gangl og Lee vel saman enda báðir reyndir her­menn. Brátt voru banda­ríski höf­uðs­mað­ur­inn og frönsku fang­arnir komnir í hávaðarifr­ildi. Lee skip­aði þeim að halda sig innan dyra og forð­ast öll átök. Frakk­arnir mót­mæltu hástöfum en létu loks til leið­ast er Lee benti þeim á þeir gerðu Frakk­landi lítið gagn eftir stríðið ef þeir yrðu allir dauðir! Lee benti einnig á að þrátt fyrir að her­flokkur þeirra væri fámennur þá hefðu þau ýmsa yfir­burði ef kæmi til átaka. Flokk­ur­inn var vel vopn­aður, með riffla, hand­sprengjur og bæði léttar og þungar vél­byssur. Einnig var 76mm öflug fall­byssa í Blind­fullu Jenný. Þar að auki væru þau stað­sett í kast­ala sem hafði verið byggður og hann­aður með það í huga að verj­ast árásum. Mjög erfitt var að nálg­ast kast­al­ann frá annarri átt en austri, eftir veg­inum, en árás­ar­lið sem kæmi þaðan væri alveg ber­skjaldað fyrir skot­hríð úr kast­al­anum.

Aðfara­nótt 5. maí 1945 leið án alvar­legra átaka en varn­ar­liðið varð þó vart við SS-her­menn sem voru aug­ljós­lega að kanna varnir kast­al­ans. Um tíu­leytið tók Lee höf­uðs­maður upp kíki sinn og lit­að­ist um. Honum brá við er hann sá að SS-her­menn­irnir voru á milli 100 – 150 manns og það sem var verst: Þeir voru með 88mm fall­byssu með sér. Fall­byssa sú var alræmd meðal banda­manna og Lee vissi að hún væri vel fær um að granda Sherman skrið­drek­anum og það sem verra var: Rjúfa gat í kast­alamúr­inn. Ekki var það heldur til að bæta skap banda­ríska for­ingj­ans að frönsku fang­arnir voru allir komnir út í kast­a­la­garð­inn, Daladier og Jouhaux voru í hróka­sam­ræðum og virt­ust kæra sig koll­ótta um nær­veru SS-her­liðs­ins. Lee var í þann veg að fara að öskra á þá á koma sér burt en óp hans drukkn­uðu í háværri drunu frá 88mm fall­byss­unni, á eftir fylgdi vægð­ar­laus skot­hríð úr öllum áttum á kast­al­ann.

Orrustan var hafin. Skot úr skrið­dreka­byssu hæfði Sherman-skrið­drek­ann og það kvikn­aði í honum. Sherman skrið­drek­arnir voru reyndar alræmdir vegna þess hve auð­veld­lega gat kviknað í þeim og sumir her­menn banda­manna köll­uðu þá beisk­lega „Ronson“ eftir vin­sælum sígar­ettu­kveikjara. Logarnir léku um Blind­fullu Jenný og það var ljóst að hún yrði ekki að frekara liði. Frönsku fang­arnir höfðu tekið við sér er skot­hríðin hófst og flest flúið inn í kast­al­ann. Nokkrir þeirra ákváðu að óhlýðn­ast skipun Lee höf­uðs­manns um að taka ekki þátt í bar­dag­anum enda voru í hópi þeirra tveir hers­höfð­ingjar, þeir Weygand og Gamelin. Borotra, Reynaud, Daladier og de La Rocque höfðu einnig allir reynslu af her­mennsku. Þeir hlupu nú niður í kjall­ara og sneru aftur með þýsk vopn í hendi og hófu að skjóta á árás­ar­liðið. Öldungis óhræddur fór Reynaud, þá tæp­lega sjö­tugur, að kast­ala­hlið­inu þar sem rústir Sherman drek­ans stóðu. Hann mund­aði þýska MP-40 vél­byssu. Jack Lee sá sér til skelf­ingar að Frakkinn yrði ber­skjald­aður gegn skot­hríð SS-liðs­ins og skip­aði honum að snúa við. Sepp Gangl beið ekki boð­anna, heldur stóð upp og hljóp af stað í átt­inna að fyrrum for­sæt­is­ráð­herr­anum. Skyndi­lega kippt­ist hann við og féll til jarðar. Lee höf­uðs­maður hélt fyrst að hann hefði kastað sér sjálfur niður en sá svo hvar blóð­pollur mynd­að­ist kringum höfuð hans. Sepp Gangl majór var allur. Skothríð dundi á kast­al­anum úr öllum áttum. Lee fyr­ir­skip­aði þeim Reynaud og Clemencau að fara í annan enda kast­al­ans. Þótt aðgengi að kast­al­anum þaðan væri afar bratt þá hafði sést til SS-manna sem nálg­uð­ust. 

Þeir Clemencau og Reynaud hittu þar fyrir ungan aust­ur­rískan tán­ing úr and­spyrnu­lið­inu og þýska liðs­for­ingja. Þessir ólíku sam­herjar tóku nú að spúa blýi af öllu afli gegn inn­rás­ar­lið­inu. Á meðan hafði Lee ákveðið að fara um og athuga hvernig staðan væri á skot­færum. Því miður þá leit það illa út. Lee skip­aði fólki að reyna að spara skot­færin. Er hann var á leið til baka út í kast­a­la­garð­inn glumdi skyndi­lega í sím­tæki er hann gekk fram hjá. Undrandi ákvað Lee þó að svara. Á hinum enda lín­unnar var banda­ríski majór­inn John Kramers sem hafði ætlað að for­vitn­ast um stöð­una. Hann þurfti ekki að spyrja. Í bak­grunni heyrði hann skot­hríð og spreng­ingar og Lee öskra hásri röddu: „Þeir eru að sprengja okkur til hel­vítis! Við verðum að fá liðs­auka strax!“ Því næst rofn­aði sam­bandið.

Þrátt fyrir stans­lausa skot­hríð frá rifflum, vél­byssum og fall­byssum SS-lið­anna þá hafði þeim ekki tek­ist að taka kast­al­ann enn. En þeir þok­uð­ust nær og um leið og skot­færi verj­end­anna klár­uð­ust, þá þyrfti ekki að sökum að spyrja. Allir nema Gangl voru enn á lífi en tveir þýskir her­menn voru alvar­lega særðir. Lee vissi að félagar hans hefðu nú vit­neskju um ástandið en það gæti tekið þó nokkurn tíma fyrir liðs­auka að ber­ast og þeir gætu ekki farið of hratt yfir vegna SS-her­sveita. Einnig hafði sam­band hans við Kramer rofnað áður en hann gat sagt honum styrk SS-liðs­ins en það var yfir 100 manns. Ef Kramers sendi aðeins 20 menn, myndi það litlu breyta. Hann gaf nú skipun um að hörfa inn í kast­al­ann.

Björgun

Fyrrum for­sæt­is­ráð­herr­ann Edouard Daladier hafði komið sér fyrir á annarri hæð kast­al­ans ásamt tveimur þýskum her­mönnum. Daladier var for­sæt­is­ráð­herra þegar Frakk­land lýsti stríði á hendur Þýska­landi 3. sept­em­ber 1939 vegna inn­rá­sinnar í Pólland. Hann hafði fyrir stríð margoft varað gegn Hitler. Nú, nokkrum árum seinna, sat hann á rykugu kast­ala­gólfi með þýska vél­byssu í hendi, ásamt vopna­bræðrum sínum sem voru þýskir her­menn. Annar þeirra hafði dregið fram flösku af Fernet-Branca sem þeir félagar nutu nú saman. Lífið gat vissu­lega verið furðu­legt stundum. Skyndi­lega hróp­aði hinn Þjóð­verj­inn upp yfir sig: „Amerikanische Panzer!“og benti í átt að þorp­inu. Daladier þaut að glugg­anum og sá sér til skelf­ingar að SS-her­menn­irnir voru komnir nær alveg að kast­al­anum en eitt­hvað hafði truflað þá. Þá glumdi skyndi­lega við fall­byssu­skot­hríð og Daladier sá banda­ríska Sherman skrið­dreka koma æðandi. Margir SS-her­mann­anna flýðu í dauð­ans ofboði en sumir gáfust upp. Klukkan var rétt rúm­lega fjögur. Orr­ust­unni var lokið. Jack Lee gekk að banda­ríska her­flokknum sem hafði, eins og ridd­ara­liðið í vestra­mynd, komið til bjargar á síð­ustu stund. Lee stillti sér upp fyrir framan for­ingja þeirra og spurði: „What kept you?“

Eftirmáli

Bar­dag­inn um Itter-kast­ala er vissu­lega ekki ein af stór­orr­ustum síð­ari heims­styrj­aldar en hún er ein af þeim merk­ari. Sumir frönsku fang­anna sem lifðu af höfðu heil­mikil áhrif á póli­tíska fram­vindu og stjórn­mál eftir stríð. Þetta fólk hefði lík­lega verið tekið af lífi ef SS hefði tek­ist að ná kast­al­anum. Ef á það er litið má vel segja að áhrif bar­dag­ans séu tölu­verð.

Sepp Gangl er í dag álitin þjóð­hetja í Aust­ur­ríki og er nafn hans að finna á minn­is­varða ásamt öðrum and­spyrnu­hetjum. Ferill Jack Lee höf­uðs­manns lá því miður meira og minna niður á við eftir að stríð­inu lauk. Hann hætti í hernum og reyndi fyrir sér í við­skiptum. Baráttan hans við alkó­hól­isma tók þó sinn toll og hann lést 1971 eftir að hann var lagður inn á sjúkra­hús vegna áfeng­is­eitr­unar.

Til stendur að gera kvik­mynd um þessa atburði, í leik­stjórn Peter Land­esman.

Heimild

Stephen Harding, The Last Battle: When U.S. and German Soldiers Joined Forces in the Waning Hours of World War II in Europe (Boston: Da Capo Press 2013).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár