Karolina Fund: Álög

Þor­grímur Pét­urs­son ráð­gerir sína fyrstu útgáfu á geisla­disk.

Allt frá því að Þor­grímur Pét­urs­son hóf nám á gítar ell­efu ára gam­all hefur hann verið að setja saman lög og búa til við þau texta. Nú ráð­gerir hann sína fyrstu útgáfu á geisla­disk sem ber tit­il­inn Álög. Á honum verða þrettán frum­samin lög og text­arnir eiga það allir sam­eig­in­legt að segja sögur.

Hingað til hefur Þor­grímur flutt lögin sín ein­göngu með gít­arund­ir­leik en nú hafa þau verið útsett fyrir fleiri hljóð­færi eins og selló, flautu og horn í við­bót við hinar hefð­bundnu trommur, píanó, gítar og bassa og í einu lagi kemur meira að segja heill kirkjukór við sögu. Nokkrir frá­bærir hljóð­færa­leik­arar hafa aðstoðað Þorgrím í upp­tök­unum sem Jóhann Ásmunds­son bassa­leik­ari Mezzoforte hefur stjórnað í hljóð­ver­inu Paradís.

[adspot]Til þess að kosta verk­efnið safnar Þor­grímur nú fram­lögum á Karolina Fund og hefur stofnað Facebook síðu utan um það á slóð­inni Álög - nýr geisla­diskur. 

Söfn­un­inni lýkur 8. jan­úar 2019. 

Hvernig vakn­aði hug­myndin að útgáf­unni?

„Með­göngu­tím­inn á þessum diski er orð­inn býsna langur og sum lag­anna urðu til fyrir ára­tugum. Mig hefur alltaf langað til að gefa út lögin mín til að sjá hvernig þau spjara sig og þegar ég tók loks ákvörðun um að taka upp nokkur þeirra þá byrj­aði ég að útsetja lögin í tölv­unni heima til að þurfa ekki að eyða dýrum stúd­íó­tíma í það.

Ég leyfði svo Jóhanni upp­töku­manni að heyra það sem ég var búinn að gera. Honum leist vel á það flest og við unnum úr þessum hug­myndum á þessu ári sem upp­tök­urnar stóðu yfir.“

Segðu okkur frá þema disks­ins?

„Ég hef alltaf sjálfur haft mest gaman af lögum þar sem text­arnir segja sögu og valdi því lögin sem ég tók upp með það í huga að text­inn væri saga. Það má því segja að þetta séu þrettán tón­settar sögur og þar sem umfjöll­un­ar­efnið er margs­konar þá eru lögin þar af leið­andi líka af ýmsu tagi, svo sem ball­öður, djass-skotið popp, kán­trí og eitt er útsett í anda Ennio Morricone. Sem dæmi þá segir í einu lag­inu frá því þegar Dauðinn tekur leigu­bíl, annað er um engil sem verður ást­fang­inn af jarð­neskri konu og eitt er um skip­stjóra sem missir menn fyrir borð. Önnur umfjöll­un­ar­efni eru álfar og alkó­hól­ismi, draugar, ver­öld skáld­konu og svo auð­vitað ástin.“

Hér er hægt að skoða og styrkja verk­efni Þorgríms.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár