Leiklistargagnrýni á Kjarnanum

Jakob S. Jónsson hefur tekið að sér að sinna leiklistar­gagnrýni á Kjarnanum.

Jakob S. Jónsson mun sinna leiklistar­gagnrýni á Kjarnanum frá og með deginum í dag.

Hann hefur lokið fil.kand. prófi í leikhús­fræðum frá Stokk­hólms­háskóla, auk þess sem hann tók á sínum tíma námskeið í bókmenntum og þjóðfræði við Háskóla Íslands, barna- og unglinga­bókmenntum við Stokk­hólms­háskóla auk námskeiða í leiktexta­fræðum hjá Dramatiska Institutet í Stokk­hólmi.

Jakob hefur unnið marg­vísleg störf við leikhús, einkum sem leik­stjóri áhuga­leikfélaga á Íslandi en í Svíþjóð sem handrits­höfundur, leik­stjóri og leiklistar­kennari, m.a. við Lýðháskólann á Sörängen í Jönköpings léni.

Í Jönköpings léni starfaði Jakob einnig víða sem verkefnis­stjóri menningar- og menningar­arfs­verkefna uns hann flutti aftur til Íslands og gerðist leið­sögumaður ferða­manna auk þess að gerast leiklistar­gagnrýnandi Kvenna­blaðsins.

Fyrsta gagnrýni Jakobs birtist í dag um verkið Loddarann. Hana má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár