Heimildin hlýtur alþjóðleg verðlaun fyrir framúrskarandi hönnun

Heim­ildin hefur hlotið þrenn verð­laun frá Society for News Design: fyrir tvær áhrifa­miklar for­síður og fyrir fram­setn­ingu rann­sókn­ar­um­fjöll­unar um Running Tide. Hönnuður verð­launa­síð­anna er Jón Ingi Stef­áns­son.

Verðlaunaforsíða
Verð­launa­for­síða Með 69. tölu­blaði Heim­ild­ar­innar fylgdi sér­blað með nöfnum allra barna sem hafa verið drepin í stríðs­á­tökum Ísra­els­hers á Gasa­svæð­inu. Mynd: Golli

Heim­ildin hefur hlotið þrjú verð­laun í alþjóð­legu hönn­un­ar­sam­keppn­inni Best of News Design, sem haldin er af The Society for News Design (SND). Verð­launin eru veitt fyrir fram­úr­skar­andi hönnun og sjón­ræna fram­setn­ingu í blaða­út­gáfu um allan heim. Að baki hönnun verð­launa­síð­anna stendur Jón Ingi Stef­áns­son, hönn­un­ar­stjóri Heim­ild­ar­innar. 

Tvær for­síður Heim­ild­ar­innar hlutu Awards of Excellence fyrir mynd­ræn og áhrifa­mikil vinnu­brögð. Önnur þeirra sýnir stór­brotna yfir­lits­mynd Golla, ljós­mynd­ara Heim­ild­ar­innar, af hrauni sem flæðir yfir Grinda­vík­ur­veg í eld­gos­inu á Reykja­nesi. Hin for­síðan er graf­ísk fram­setn­ing með nöfnum barna sem hafa verið drepin í átökum á Gasa­svæð­inu.

Þriðju verð­launin eru veitt fyrir fram­setn­ingu fréttaum­fjöll­unar um fyr­ir­tækið Running Tide, sem birt­ist í Heim­ild­inni í fyrra. Sú umfjöllun hlaut einnig verð­laun fyrir rann­sókn­ar­blaða­mennsku á Blaða­manna­verð­launum Íslands og er því komin með alþjóð­lega við­ur­kenn­ingu fyrir gæði og dýpt í blaða­mennsku.

Heim­ildin #03Forsíða þriðja tölu­blaðs Heim­ild­ar­innar árið 2023, sem hlaut við­ur­kenn­ingu SND í fyrra.

Verð­launin frá Society for News Design eru með þeim virt­ustu á sviði blaða­hönn­unar og eru veitt út frá fag­legri úttekt á sjón­rænni fram­setn­ingu, frum­leika og áhrifa­mætti. Þetta er í annað sinn sem Heim­ildin vinnur til verð­launa Best of News Design. Á síð­asta ári var for­síða þriðja tölu­blaðs Heim­ild­ar­innar verð­launuð. 

Umfjöll­unin um Running Tide.
Verð­launa­for­síð­urnar tvær.
Kjósa
43
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár