Vöxturinn heldur áfram – Búast má við 42 prósent fleiri ferðamönnum

Ef sama munstur verður á fjölda ferða­manna á þessu ári og í fyrra má búast við að 42 pró­sent fleiri ferða­mönnum í ár en í fyrra.

Fjöldi ferðamanna mun aukast um 42 prósent á þessu ári miðað við árið í fyrra, ef sama þróun verður og í fyrra.
Fjöldi ferða­manna mun aukast um 42 pró­sent á þessu ári miðað við árið í fyrra, ef sama þróun verður og í fyrra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

39 pró­sent fleiri ferða­menn sóttu Ísland heim á fyrri hluta þessa árs 2017 en höfðu sótt landið heim á sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu Ferða­mála­stofu sem birt var fyrir helgi.

Ferða­mála­stofa fram­kvæmir taln­ingu á fjölda ferð­manna sem heim­sækja Ísland og skiptir þeim tölum eftir mán­uðum. Taln­ingin fer fram við brott­för í Leifs­stöð og er hugsuð sem við­bót­ar­upp­lýs­ingar við far­þega­tölur Isavia til að geta greint fjölda ferða­manna eftir þjóð­ernum. Nánari upp­lýs­ingar um taln­ing­ar­að­ferð­ina má finna hér.

[adspot]

Und­an­farin 15 ár hafa fleiri ferða­menn heim­sótt Ísland á seinni helm­ingi árs­ins, þe. í júlí og fram að ára­mótum. Árin 2002 til 2016 voru að jafn­aði 38,7 pró­sent heim­sókna til lands­ins á fyrstu sex mán­uðum árs­ins. 61,3 pró­sent heim­sóttu landið á seinni sex mán­uðum árs­ins að jafn­aði.

Meðaltal hlutfallslegrar skiptingu ferðamanna á fyrri og seinni helmingi ársins

Þessi taln­ing er ekki fölskva­laus og töl­urnar hafa verið gagn­rýndar fyrir að sýna ekki svart á hvítu hversu margir raun­veru­lega dvelja á Íslandi. Þeir sem fara um flug­stöð­ina í Keflavík eru taldir með, hvort sem þeir séu aðeins að milli­lenda hér á landi eða í heim­sókn.

Kristján Dan­í­els­son, for­stjóri Kynn­is­ferða, er einn þeirra sem hefur gagn­rýnt taln­ing­una.

Vöxturinn gríðarlegur milli ára

Eins og mikið hefur verið fjallað um á und­an­förnum miss­erum hefur fjölgun ferða­manna á Íslandi verið gríð­ar­leg und­an­farin ár. Á milli áranna 2015 og 2016 jókst fjöldi ferða­manna um 40 pró­sent, sam­kvæmt tölum Ferða­mála­stofu. Á milli áranna 2014 og 2015 hafði aukn­ingin numið 30,21 pró­senti.

Mæla má aukna aukn­ingu á milli ára síðan árið 2010, þegar fjöldi ferða­manna minnk­aði á milli ára, í kjöl­far efna­hags­hruns­ins hér á landi. Árin 2009 og 2010 fækk­aði ferða­mönnum sem hingað komu um á rúm­lega 1 pró­sent. Strax árið 2011 varð mikil aukn­ing, sem nam 17,8 pró­sent frá árinu áður.

Fjöldi ferðamanna fyrstu sex mánuði ársins 2017 miðað við 2016

Það sem af er ári er útlit fyrir að fjöldi ferða­manna muni enn aukast milli ára. Alls heim­sóttu tæp­lega 1,8 millj­ónir ferða­manna Ísland á síð­asta ári.

Ef hlut­falls­legur fjöldi ferða­manna á fyrri og seinni helm­ingi árs­ins 2016 verður sá sami í ár má gera ráð fyrir að 2,5 millj­ónir ferða­manna heim­sæki landið í ár. Miðað við það, þá eykst fjöldi ferða­manna enn um 42 pró­sent á milli áranna 2016 og 2017.

Það verður í fyrsta sinn sem það hægist á aukn­ingu í fjölda ferða­manna síðan 2010.

Aukning ferðamanna á milli ára síðan 2003 og áætlun fyrir árið 2017

Fjöldi erlendra gesta sem fara um Leifsstöð 2002-2017

Ameríkönum fjölgar mest

Af þeim mark­aðs­svæðum sem greind eru í tölum Ferða­mála­stofu þá koma hingað fleiri frá Norður-Ameríku en af öðrum mark­aðs­svæðum.

Sam­setn­ing ferða­manna á fyrri helm­ingi áranna 2013-2017 hefur þess vegna breyst tölu­vert. Árið 2013 var fimmt­ungur ferða­manna sem hingað komu á fyrri helm­ingi árs­ins frá Norð­ur­löndum, um það bil fimmt­ungur kom frá Bret­landi, fimmt­ungur frá Mið- og Suður-Evrópu, fimmt­ungur frá Norður-Ameríku og restin ann­ars staðar frá.

Síðan þá hefur komum Amer­ík­ana fjölgað mest og munstrið allt annað í dag en fyrir fimm árum.

Samsetning ferðamanna eftir markaðssvæðum á fyrri hluta áranna 2013 til 2017

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár