Ólétt kona með tveggja ára barn tekin af lögreglu í nótt til brottvísunar úr landi

Lög­reglan er sögð vera að flytja ólétta konu, sem komin er á níunda mánuð á leið, úr landi ásamt manni hennar og tveggja ára gömlu barni. Eftir að kon­unni hafi blætt og sótt sér hjálp á sjúkra­húsi hafi hún verið flutt í lög­reglu­bíl í for­gangsakstri til brott­flutn­ings úr landi.

Ólétt kona með tveggja ára barn tekin af lögreglu í nótt til brottvísunar úr landi
Konan fyrir brott­flutn­ingin Samtökin No Borders tóku ljós­mynd af kon­unni á spít­ala í nótt, þar sem hún beið þess að lög­regla flytti hana nauð­uga úr landi. Mynd: No Boders

Um 26 ára gömul kona, sem komin er tæp­lega 9 mán­uði á leið, hefur verið tekin af lög­reglu í nótt í því skyni að flytja hana úr landi, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá sam­tök­unum No Borders. 

Samkvæmt frá­sögn sam­tak­anna birt­ist lög­reglan „óvænt og án fyr­ir­vara til að hand­taka og brott­vísa þeim“ klukkan 18 í gær­kvöldi. Konan hafi orðið fyrir „miklu stressi og byrj­aði að blæða mikið úr nefi“. Parið hafi fengið heim­ild lög­reglu til að fara á spít­ala, með þeim fyr­ir­vara að lög­regla myndi sækja fjöl­skyld­una klukkan fimm í nótt fyrir brott­vís­un­ar­flugið. 

Barn bíður brott­vís­unarTveggja ára drengur beið þess á Land­spít­al­anum í nótt að vera fluttur úr landi, á meðan móðir hans fékk lækn­is­að­stoð.

Fram kemur í frá­sögn No Borders að konan hafi fengið vott­orð á spít­al­anum um að henni væri ekki ráð­lagt að fljúga vegna ástands síns. „Konan er komin út af mæðra­deild þar sem hún fékk vott­orð með upp­lýs­ingum um hversu langt hún væri gengin og að ekki væri mælt með að hún myndi fljúga. Venju­lega þegar óléttar konur flúga þurfa þær að fá svo­kallað „fit to fly“ vott­orð en engin for­dæmi voru hins vegar fyrir að gefa „not fit to fly“ vott­orð þar sem eng­inn lækn­anna hafði upp­lifað það áður að verið væri að neyða ólétta konu í flug gegn vilja hennar. Vonast er til að þetta vott­orð hafi eitt­hvað að segja, en nú er hún á leið heim til sín þar sem lög­reglan bíður,“ sögðu sam­tökin í nótt.

Samkvæmt sömu lýs­ingum taldi lög­regla sig hins vegar hafa heim­ild frá trún­að­ar­lækni Útlend­inga­stofn­unar til að færa kon­una í flug úr landi.

„Lögregla færði fjöl­skyld­una inní bíl til að fara með uppá flug­völl.“

Um þrjú í nótt héldu sam­tökin áfram að lýsa fram­vindu mála. „Tveir lög­reglu­menn stoð­deildar komu og skoð­uðu vott­orðið frá með­göngu­deild land­spít­al­ans. Þeir sögðu að það skipti ekki neinu máli og að „trún­að­ar­læknir“ Útlend­inga­stofn­unnar hefði ákveðið þetta. Konan man ekki eftir að hafa hitt lækni frá UTL en fór í blóð­töku hjá göngu­deild hæl­is­leit­enda fyrir 10 dögum. Engar frek­ari skoð­anir fór fram, fyrir utan skoðun frá ljosmæðrum á með­göngu­deild í kvöld. Þær mæla ein­dregið gegn því að brott­visunin væri fram.“

Myndband af vett­vangi í nóttSamtökin No Borders tóku mynd­band af brott­flutn­ingi fólks­ins í nótt.

Í síð­ustu færslu sam­tak­anna, klukkan fimm í nótt, kom fram að fjöl­skyldan hefði verið færð í lög­reglu­bíl. „Lög­reglan kom á brott­rekstr­ar­bíl og stuttu seinna flygdu tveir lög­reglu­bílar með ljósin á. Lög­reglan seg­ist vera með “fit to fly” vott­orð sem hún hefur ekki fengið að sjá og frá lækni sem hún hefur ekki hitt. Lög­reglan kýs að styðj­ast við þetta vott­orð frekar en það sem hún fékk frá ljós­móður á mæðra deild fyrr í kvöld. Lögregla færði fjöl­skyld­una inní bíl til að fara með uppá flug­völl.“

Stundin reyndi að hafa sam­band við for­stjóra og upp­lýs­inga­full­trúa Útlend­inga­stofn­unar, en hvor­ugt tók síma. Hvorki land­læknir né aðstoð­ar­maður land­læknis svör­uðu sím­tölum og skila­boðum vegna máls­ins. Stundin heldur áfram umfjöllun um málið. Samkvæmt svörum frá Rík­is­lög­reglu­stjóra verður unnt að fá svör þaðan um hádegi.

Samtökin No Borders full­yrða að fólkið hafi ekki fengið svar frá kæru­nefnd Útlend­inga­mála.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár