Stóriðjan sem Vinstri græn studdu þarf meira fé

Kísilver PCC á Bakka er komið í full afköst eftir byrj­un­arörð­ug­leika. Verði verk­smiðjan stækkuð eins og leyfi er fyrir mun hún losa meira af gróð­ur­húsa­loft­teg­undum en álverið í Straums­vík. Stein­grímur J. Sig­fús­son, fyrr­ver­andi for­maður Vinstri grænna, rak málið á Alþingi.

Stóriðjan sem Vinstri græn studdu þarf meira fé
PCC á Bakka Kís­il­verið var gang­sett vorið 2018. Mynd: PCC

Kísilver PCC á Bakka mun standa undir allt að 7,6 pró­sent allrar los­unar gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á Íslandi verði það stækkað eins og það hefur leyfi til. Félagið er að hluta í eigu íslenskra líf­eyr­is­sjóða og banka og leitar nú 5 millj­arða króna inn­spýt­ingar í rekst­ur­inn eftir tafir og erf­ið­leika í starf­semi.

Málið var á for­ræði Vinstri grænna í rík­is­stjórn með Sam­fylk­ing­unni þegar það var sam­þykkt vorið 2013, en það sætti mik­illi gagn­rýni meðal flokks­manna. Svandís Svav­ars­dóttir, þá umhverf­is­ráð­herra, sat hjá við afgreiðslu máls­ins, meðal ann­ars vegna óánægju með kostnað rík­is­ins vegna þess. Áætlað var að skatta­legar íviln­anir vegna fram­kvæmd­ar­innar mundu kosta rík­is­sjóð 100–150 millj­ónir króna á ári og kostn­aður rík­is­ins vegna inn­viða­upp­bygg­ingar og styrkja gat numið 3,4 millj­örðum króna.

Kís­il­verið tók til starfa vorið 2018 og starfar nú í fullri afkasta­getu miðað við fyrsta áfanga. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um frek­ari stækkun verk­smiðj­unnar upp í fulla mögu­lega notkun, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár