Malín Brand tjáir sig: blandaðist „inn í vitleysu“ vegna fjölskyldutengsla

Malín Brand, önnur kvenn­anna sem var hand­tekin á föstu­dag vegna fjár­kúg­un­ar­máls gegn Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni for­sæt­is­ráð­herra, seg­ist ekki hafa tekið þátt í því að skrifa bréf til Sig­mundar og því ekki í til­raun til fjár­kúg­unar. Hún tjáir sig í við­tali við Vísi. „Kjarni máls­ins er að þarna bland­ast ég inn í atburða­rás sem ég hvorki skipu­lagði né tengd­ist nokkurn hátt nema fjöl­skyldu­böndum.“

Hún segir að Hlín Ein­ars­dóttir, systir hennar og fyrr­ver­andi rit­stjóri Bleikt.is, hafi skrifað og sent bréfið. Hún hafi ekki trúað því að nokkur tæki bréfið alvar­lega. Malín við­ur­kenndi fyrir lög­reglu að hafa haft vit­neskju um málið og að hún keyrði systur sína á vett­vang í Hafn­ar­firði, þar sem for­sæt­is­ráð­herr­ann átti að skilja eftir fjár­muni sam­kvæmt fyr­ir­mælum bréfs­ins. „Ég bíð í bílnum á meðan hún ætlar að athuga hvort sitt ætl­un­ar­verk hafi tek­ist en þegar ég sé í hvað stefnir þá ætla ég bara að keyra í burtu, því þetta var ekki það sem ég hafði hugsað mér,“ segir hún við Vísi.

„Á þessu augna­bliki horfir maður á lífið sitt, sem maður er búinn að byggja upp og hafa mikið fyrir, að vera góður blaða­maður og standa sig í vinnu og vera trú­verð­ugur, eiga traust fólks, eins og ég hef átt, yfir í það að vera ein­hvern veg­inn höfð að fífli. Dálítið blind­aður af fjöl­skyldu­tengslum,“ segir Malín við Vísi um hand­tök­una og bætir við: „Allt í einu er mann­orðið bara farið af því að maður bland­að­ist inn í vit­leysu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár