„Rússneska þjóð, þið eruð sofandi risi“

Rúss­nesk­ir an­arkó-komm­ún­ist­ar hafa fram­ið fjölda skemmd­ar­verka í kring­um hern­að­ar­lega mik­il­væga inn­viði frá upp­hafi Úkraínu­stríðs­ins. Hópurinn lítur á stríð­ið sem þátt í bar­áttu sinni gegn al­þjóða­heims­valda­stefnu.

Rússneskir miðlar, ríkis­reknir sem og óháðir, hafa síðan í febrúar birt fréttir af árásum á herskráningarstöðvar í Rússlandi. Kveikt hefur verið í fjölda herskráningarstöðva um landið allt en skemmdar­verkin hafa að mestu átt sér stað í vestur­hlutanum. Allt bendir til þess að tugir slíkra skemmdar­verka hafi verið framin síðan í febrúar. Þessar tölur þykja óvenjulegar, enda fjölgunin á skemmdar­verkunum veruleg frá fyrri árum. Molotov-kokteilum hefur verið beitt við framkvæmd margra árásanna.

Sama má segja um fjölgun árása á rússneskar járn­brautir, fjöldi þeirra hefur stóraukist frá fyrri árum samkvæmt fyrir­liggjandi gögnum. Frétta­flutningur rússneskra miðla bendir til þess að helst hafi járn­brautir til hergagna­flutnings orðið fyrir árásum skemmdar­varganna, með þeim afleiðingum að tugir lesta með hergögnum hafa farið af sporinu síðan í febrúar.

Myndir af járnbrautarbrú í Kúrsk fylki Rússlands sem varð fyrir árás 1. maí. Telegram færsla Romans Starovojt, fylkis­stjóra Kúrsk sýslu. …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið undanfarið ár