Mynd: EPA

Vígi þjóðernispopúlista stendur traust

Eftir nýyf­ir­staðnar kosn­ingar í Ung­verja­landi er ljóst að þjóð­ern­ispopúl­ismi er ekki á und­an­haldi í Evrópu. Viktor Orban, for­sæt­is­ráð­herra Ung­verja­lands, hefur sýnt það og sannað að útlend­inga­andúð og hægri-öfga skoð­anir eiga upp á pall­borðið.

Mikið umrót hefur verið í Evrópu und­an­farin ár og hafa þjóð­ern­is­flokkar víðs vegar um álf­una skotið upp koll­inum. Ljóst er að blikur eru á lofti og víða um lönd hafa þjóð­ern­ispopúlistar sótt í sig veðrið. Nær­tæk­ast er að benda á úrslit kosn­inga á Ítalíu í mars síð­ast­liðnum og í Aust­ur­ríki í des­em­ber á síð­asta ári. Í báðum til­fellum báru hægri-öfga flokkar sigur úr býtum.

Nýjasta dæmið um þessa þróun er þó nýaf­staðnar kosn­ingar í Ung­verja­landi en for­sæt­is­ráð­herr­ann, Viktor Orban, hefur tryggt sér þriðja kjör­tíma­bilið í röð. Hann er alræmdur fyrir ummæli sín um inn­flytj­endur og telja margir að lýð­ræð­inu sé hrein­lega ógnað í land­inu eftir að hann komst til valda. Hægri-öfga flokkar í Frakk­landi, Hollandi og víðar hafa mært inn­flytj­enda­stefnu Orbans og tekið hana sér til fyr­ir­myndar.

Yfirvöld í Þýska­landi töldu að ekki væri öruggt fyrir flótta­fólk að snúa til baka til Ung­verja­lands síð­ast­liðið sumar. Aðstæður fólks­ins þar eru sagðar baga­legar en flótta­manna­búð­irnar eru girtar af og er það ekki frjálst ferða sinna. Háar girð­ingar hafa sömu­leiðis verið reistar á landa­mær­unum við nágranna­ríki.

Fyrsta ríkið austan Járntjaldsins til að taka upp lýðræði

Í Ung­verja­landi búa tæp­lega 10 millj­ónir manna en það er ríki í Mið-Evrópu, rétt austan Alpa­fjalla. Landið var fyrsta aust­ur­evr­ópska ríkið til að ganga í NATO árið 1999. Fimm árum síðar fékk það inn­göngu í Evr­ópu­sam­bandið. Forseti Ung­verja­lands er kos­inn af þing­inu í fimm ár og gegnir aðal­lega tákn­rænu sam­ein­ing­ar­hlut­verki. Raun­veru­legt fram­kvæmd­ar­vald er í höndum for­sæt­is­ráð­herra og rík­is­stjórnar.

Landið var fyrsta ríkið austan Járn­tjalds­ins sem tók upp lýð­ræð­is­lega stjórn­skipan í kjöl­far mik­illa mót­mæla árið 1988. Þá var fjöl­flokka­kerfi tekið upp og stétt­ar­fé­lög og aðrar stofn­anir fengu að starfa. Í októ­ber árið 1989 var komm­ún­ista­flokkur lands­ins leystur upp og gadda­vírs­girð­ing milli Ung­verja­lands og Aust­ur­ríkis fjar­lægð. Þetta gerði borg­urum Austur-Þýska­lands kleift að ferð­ast gegnum Ung­verja­land til Aust­ur­ríkis og Vestur-Þýska­lands sem átti þátt í hruni komm­ún­ista­rík­is­ins Austur-Þýska­lands. Árið 1990 voru haldnar frjálsar kosn­ingar í Ung­verja­landi en það er einmitt árið sem núver­andi for­sæt­is­ráð­herra komst fyrst inn á þing.

Næstyngsti forsætisráðherra Ungverjalands

Viktor Mihály Orban fædd­ist í bænum Székesfehérvár í Ung­verja­landi árið 1963 en hann er elstur þriggja bræðra. Hann lagði stund á nám í lög­fræði þar sem hann lauk meistara­gráðu frá Eötvös Loránd-háskól­anum í Búdapest með rit­gerð um sam­stöðu­hreyf­ingu Lech Walesa í Póllandi. Hann stund­aði jafn­framt nám við Oxford-háskól­ann í stjórn­mála­fræði en hætti í námi árið 1990 til að snúa sér að stjórn­málum í heima­land­inu.

Hann varð for­sæt­is­ráð­herra árið 1998, aðeins 35 ára að aldri, en hann var næstyngstur Ungverja til að gegna því emb­ætti. Undir hans stjórn gekk Ung­verja­land í NATO. Tölu­verðar breyt­ingar má sjá á stefnu Orbans og flokks hans Fidesz frá þessum tíma. Hann var í fyrstu frjáls­lyndur og evr­ópu­sinn­aður flokkur en varð síðar mun þjóð­ern­is­sinn­aðri. Núgild­andi stefna flokks­ins ber þess glögg merki.

Líkti innflytjendum við sníkjudýr

Flokkur Orbans fékk flest atkvæði í kosn­ing­unum í land­inu síð­ast­lið­inn sunnu­dag, eins og fyrr segir, og fékk hann tvo þriðju af þing­sætum eða tæp­lega 50 pró­sent atkvæða.

Kjör­sókn var 69 pró­sent en Orban tal­aði fyrir því að Ung­verja­land myndi verja gildi sín fyrir inn­flytj­endum og Evr­ópu­sam­band­inu. Hann tal­aði ein­dregið gegn nán­ari Evr­ópu­sam­vinnu á loka­metrum kosn­inga­bar­átt­unnar og líkti flótta­fólki og inn­flytj­endum við sníkju­dýr, sem ættu ekki að vera vel­komin í ung­verska menn­ingu.

Girðing á landamærum Síberíu og Ungverjalands
Girðing á landa­mærum Síberíu og Ung­verja­lands

Alvaldur í ríki sínu

Enginn flokkur eða stjórn­mála­maður í kosn­ing­unum í Ung­verja­landi komst nærri því að ógna stöðu Orbans á hinu póli­tíska sviði. Flokkur hans bætti við sig fylgi og helsti and­stæð­ing­ur­inn missti 10 sæti á þingi. Yfir­burðir Fidesz hafa þó mögu­lega eitt­hvað með póli­tíska ein­ræð­istil­burði hans að gera. Athygli vakti þegar yfir­völd undir hans stjórn breyttu stjórn­ar­skránni árið 2012 sem hafði þær afleið­ingar að Orban og flokk­ur­inn treyst­ust í sessi. Dæmi um þetta er að ákvæði í nýju stjórn­ar­skránni hljómar á þá leið að ekki er lengur leyfi­legt að há kosn­inga­bar­áttu í öðrum miðlum en rík­is­miðlum.

Kjör­tíma­bilið sem er að hefj­ast verður hans fjórða við völd og hið þriðja í röð. Því verður ekki annað sagt en að Ung­verjar séu búnir að taka afger­andi afstöðu í sam­skiptum við inn­flytj­endur og mál­efni tengd þeim. Svipaða stemn­ingu má sjá í fleiri löndum í Evrópu. Andstaða við þessi sjón­ar­mið er vissu­lega til staðar innan Ung­verja­lands en Viktor Orban heldur sínu striki og tryggir áfram völd sín í einu af elstu ríkjum Evrópu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár