Fram­bjóð­end­urnir og fisk­ur­inn Náði lýð­ræð­is­veislan hámarki þegar for­seta­fram­bjóð­endur öttu kappi í ýmsum þrautum tengdum sjó­mennsku? Mynd: Golli

Er það svona sem lýðræðisveisla virkar? Vöfflur, crossfit, fiskverkun og skemmtiskokk

Fram­bjóðendurnir 12 sem vilja verða næsti forseti Íslands hafa verið á ferð og flugi þessa síðustu daga fyrir kjördag. Heimildin slóst í för þegar færi gafst og fór í crossfit í sumarlægð og vöfflu­kaffi í sumarsól, svo fátt eitt sé nefnt.

Miðvikudagur 22. maí – Tíu dagar í kosningar 

Sérmerktir hlaupaskór fyrir „Queen KJ“

Loka­sprettur kosninga­baráttunnar hófst með léttum spretti þegar Katrín Jakobs­dóttir bauð í skemmtiskokk með ofur­hlauparanum Mari Järsk. „Ég er ekki að kjósa, ég er helvítis útlend­ingur,“ sagði Mari, sem furðaði sig á af hverju í ósköpunum fólk er að dæma hana fyrir að hlaupa með Katrínu, en henni höfðu borist nokkur slík skilaboð fyrir hlaupið. „Hvort sem ég væri að fara að kjósa Katrínu eða ekki, hvað kemur það fólki við?“ sagði Mari og kláraði snúðinn og kókó­mjólkina sem hún splæsti í á meðan hún beið eftir Katrínu í Björns­bakaríi á Seltjarnarnesi en það var upphafs­staður skemmtiskokksins. Uppleggið var ef til vill að hittast úti en norðan­áttin var ansi köld á nesinu og því söfnuðust skokkarar saman inni í bakaríinu. „Ég biðst bara afsökunar á að fylla bakaríið,“ sagði Katrín þegar hún mætti örskömmu síðar. …

Kjósa
-1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakjör 2024

InnlentForsetakjör 2024

Arnar Þór skuldar starfs­mönnum forseta­framboðsins laun: „Ég vil fá skýringar á því hvað þetta var“

Arnar Þór Jónsson, hæstaréttar­lögmaður og stofnandi Lýðræðis­flokksins hefur enn ekki greitt laun nokkurra aðila sem störfuðu við forseta­framboð hans á þessu ári. Samkvæmt heimildum Mannlífs skuldar Arnar Þór Jónsson laun nokkurra einstaklinga sem unnu við forseta­framboð hans fyrr á árinu. Um er að ræða umtals­verðar upphæðir samkvæmt heim­ildunum en Arnar Þór segir í samtali við Mannlíf eiga aðeins eftir að...
InnlentForsetakjör 2024

Ástþór þögull um fjár­mögnun á framboði Ásdísar: „Ég er lang­flottasti forsetinn“

Ástþór Magnússon, sexfaldur fram­bjóðandi til forseta Íslands, vill ekki upplýsa strax hvort hann muni fjármagna væntanleg forseta­framboð Ásdísar Ránar Gunnars­dóttur en hún lýsti því yfir kosninga­vöku sinni fyrr á þessu ári. „Ég er offisjalí búin að taka að mér friðar­málin, þannig að þið megið búast við mér á 4-8 ára fresti næstu 30 árin,“ sagði forseta­fram­bjóðandinn og fyrirsætan einnig. „Ég...

Mest lesið undanfarið ár