Hildur Sverrisdóttir hættir í borgarstjórn

Hildur Sverr­is­dóttir varð þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins við frá­fall Ólafar Nordal. Hún var borg­ar­full­trúi fyrir, og hefur nú til­kynnt að hún hætti í borg­ar­mál­unum.

Hildur Sverr­is­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur ákveðið að biðj­ast lausnar sem borg­ar­full­trúi í borg­ar­stjórn Reykja­víkur. Það til­kynnti hún í dag.

Hildur var vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins en við frá­fall Ólafar Nordal varð hún þing­maður. „Lausn­ar­beiðnin verður form­lega tekin fyrir á borg­ar­stjórn­ar­fundi þann 7. mars næst­kom­andi þar sem ég mun óska eftir því við borg­ar­stjórn, með vísan til 2. mgr. 30. gr. sveit­ar­stjórn­ar­laga, að mér verði veitt lausn frá öllum störfum mínum fyrir borg­ar­stjórn. Þangað til mun ég eftir fremsta megni koma útistand­andi málum í góðan far­veg.“

Hildur seg­ist hafa haft mikla ánægju af starfi sínu sem borg­ar­full­trúi en hún telji betra að öll mik­il­vægu verk­efnin sem bíði beggja megin Von­ar­strætis fái óskipta athygli. „Ég mun halda áfram að vinna fyrir Reyk­vík­inga í störfum mínum á Alþingi eins og við á. Ég þakka gott sam­starf við borg­ar­full­trúa og emb­ætt­is­menn borg­ar­innar und­an­farin ár.“

Marta Guð­jóns­dóttir verður borg­ar­full­trúi í stað Hildar.

Tveir þing­menn sem voru kosnir í alþing­is­kosn­ing­unum í októ­ber síð­ast­liðnum eru enn bæj­ar­full­trúar. Það eru þær Theodóra S. Þor­steins­dóttir, þing­maður Bjartrar fram­tíðar, og Bryndís Har­alds­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Þær eru bæj­ar­full­trúar í Kópavogi og Mos­fellsbæ auk þess að sitja á þingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár