Af hverju gerir enginn neitt? – Hefði mátt komast hjá hörmungum í Sýrlandi?

Eftir að átök brut­ust út í Sýrlandi vorið 2011 og Assad for­seti varð m.a. upp­vís að því að beita efna­vopnum, voru margir sem kröfð­ust við­bragða alþjóða­sam­fé­lags­ins. Þegar upp kemur slíkt ástand, þar sem inn­an­rík­is­á­tök ógna sak­lausum borg­urum og við­kom­andi rík­is­vald er jafn­vel ger­andi, vakna ýmsar spurn­ingar: Hvers vegna er ekk­ert gert í mál­inu, hvar eru Sam­ein­uðu þjóð­irnar, Örygg­is­ráðið og NATO, af hverju er ekki bara hægt að fara inn í við­kom­andi land og skakka leik­inn?

Um svipað leyti og borg­ara­stríð ágerð­ist í Sýrlandi sam­ein­að­ist alþjóða­sam­fé­lagið um aðgerðir gegn stjórn Gaddafís í Líbíu. Því liggur bein­ast við að spyrja hvers vegna ekki var farið eins að í Sýrlandi. Það kann að hafa ráðið miklu að Gaddafi hafði verið þyrnir í augum Vest­ur­landa um ára­tuga skeið og ein­hverjir myndu jafn­framt nefna að hags­munir Banda­ríkja­manna séu það sem á end­anum ræður því hvort hlut­ast sé til um mál­efni ríkja.

Rök­styðja má að það sé einmitt til­fellið í Sýrlandi því Banda­ríkja­menn hafa litið svo á að átökin þar hefðu litla sem enga stra­tegíska þýð­ingu fyrir þá sjálfa. Þeir hafa þó blandað sér í málið, m.a. með dróna­árásum og að þjálfa og vopna upp­reisn­ar­menn. Hafa Banda­ríkja­menn þó verið mjög tví­stíg­andi sem hefur skapað ákveðið tóma­rúm og gefið Rússum færi á að láta til sín taka.

Er hægt að gera eitthvað?


Borg­ara­stríðið í Sýrlandi hefur nú kostað meira en 200.000 manns lífið og rekið meira en 11 millj­ónir á ver­gang sem er einn mesti flótta­manna­straumur sem um getur. Vestræn ríki hafa fylgst með og for­dæmt ofbeldi gagn­vart sak­lausum borg­urum en jafn­framt verið tví­stíg­andi á meðan það hefur stig­magn­ast. Viljinn til að gera eitt­hvað virð­ist vera til staðar en skort hefur sam­stöðu. Hvað útskýrir þetta fram­taks­leysi og hvað er nákvæm­lega hægt að gera?

Þegar kemur að íhlutun er hið full­valda ríki grund­vall­ar­at­riði í alþjóða­kerf­inu. Í stofnsátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna er ekk­ert ákvæði sem heim­ilar hinum sam­ein­uðu þjóðum að skipta sér af málum sem falla í aðal­at­riðum undir eigin lög­sögu við­kom­andi ríkis. Þó segir einnig að þessi grund­vall­ar­regla skuli ekki hindra fram­kvæmd þving­un­ar­að­gerða, en þá með Örygg­is­ráðið í for­svari, sam­kvæmt sjö­unda kafla sátt­mál­ans.

Jafn­framt er til fyr­ir­bæri sem kall­ast vernd­ar­skylda sem hefur verið að öðl­ast sess í alþjóða­lögum þó enn sé deilt um gildi hennar. Megin hugs­unin þar að baki er að full­valda ríkjum beri skylda til að vernda eigin borg­ara fyrir áföllum sem kom­ast megi hjá, fjöldamorðum, nauðg­unum og sulti. Ef ríki bregst þess­ari skyldu eða er ekki fært að upp­fylla hana er sú skylda færð á herðar ann­arra ríkja.

[caption id="attachment_41020" align="alignnone" width="640"] Reynslan af íhlutun í Mið­aust­ur­löndum er fjarri því að vera góð. MONUSCO/Force[/caption]

Reynslan af íhlutun er þó fjarri því að vera góð, sér í lagi með hern­að­ar­að­gerðum á jörðu niðri, sem nú er reynt að forð­ast í lengstu lög. Þau úrræði sem í boði voru í Sýrlandi hefðu ekki endi­lega dugað til, eins og flug­bann, sem þó virk­aði að ein­hverju leyti í Líbíu. Banda­ríkja­menn beittu einmitt flug­banni í Írak meiri­hluta tíunda ára­tug­ar­ins, sem kom samt ekki í veg fyrir að Saddam Hússein héldi völdum allt til árs­ins 2003.

Flugbann er því ekk­ert endi­lega mjög skil­virkt. Það hefði jafn­framt getað leitt til þess að Assad og hans lið hefði breytt um bar­áttu­að­ferðir – sem hefði að öllum lík­indum dregið íhlut­un­ar­að­ila inn í ann­ars konar umhverfi átaka, m.a. land­hernað með til­heyr­andi mann­falli og enn meiri til­kostn­aði.

Það sem gerir sér­stak­lega erfitt fyrir með utan­að­kom­andi íhlutun er hættan á að vopn og annar stuðn­ingur við upp­reisn­aröfl gegn Sýr­lands­stjórn endi hjá öfgasinn­uðum hópum—sem sann­ar­lega hafa ekki verið í upp­á­haldi hjá Vest­ur­löndum. Þetta hefur orðið raunin og ómark­vissar til­raunir Banda­ríkja­manna til að vopna og þjálfa and­spyrnu­öfl í Sýrlandi runnið út í sand­inn.

[caption id="attachment_41021" align="alignnone" width="640"] Borg­ara­stríðið í Sýrlandi hefur nú kostað meira en 200.000 manns lífið og rekið meira en 11 millj­ónir á ver­gang sem er einn mesti flótta­manna­straumur sem um getur. REUTERS/Goran Tomasevic[/caption]

Hugs­an­lega van­mátu menn jafn­framt stöðu Assads og töldu að stjórn hans væri það veik að ekki þyrfti mikið til að hún félli. Þetta varð til þess að Banda­ríkja­menn töldu sig geta sett Assad afar­kosti. Uppgjöf var þó ekki mjög álit­leg fyrir hann, sér í lagi ef horft er til enda­loka nágranna hans, Gaddafís Líb­íu­leið­toga.

Að sama skapi hefði útlitið ekki verið mjög bjart fyrir Alavíta minni­hlut­ann sem Assad til­heyrir því lík­legt má telja að hans hefðu beðið bitur örlög hefði Assad þurft að víkja og yfir­gefa Sýrland. Þetta skýrir hvers vegna Assad hefur þrá­ast við að halda völdum.

Mikil sam­staða virt­ist ríkja um aðgerðir í Líbíu þegar Muammar Gaddafi var komið frá völdum árið 2011. Munurinn er hins vegar sá að þá lá fyrir umboð frá Sam­ein­uðu þjóð­unum þar sem NATO tók að sér í nafni þeirra að vernda líbísku þjóð­ina gegn árásum frá eigin stjórn­völdum, auk þess sem nágranna­ríki veittu stuðn­ing sinn. Ekkert af þessu var fyrir hendi í Sýrlandi og engin beiðni lá fyrir frá stjórn­ar­að­stöð­unni um hern­að­ar­lega íhlutun.

Að sama skapi hafa Banda­rísk stjórn­völd litið til aðgerð­anna í Kosóvó árið 1999 þegar metnir eru kost­irnir í stöð­unni gagn­vart Sýrlandi en þar er einnig ólíku saman að jafna. Þegar NATO lét til skarar skríða í Kosóvó lá m.a. alveg skýrt fyrir hvaða átök þyrfti að stöðva, að Serbar yfir­gæfu svæðið og hvert hlut­verk frið­ar­gæslu­liðs ætti að vera, auk þess sem fyrir lá sam­komu­lag um póli­tískan ramma og stjórn­skipun.

Þetta er allt víðs fjarri í Sýrlandi, mjög erfitt er að draga ákveðnar átaka­línur og helsti upp­reisn­ar­hóp­ur­inn gegn Assad vart stjórn­tækur – og eins og bent hefur verið á þá hefði íhlutun á fyrri stigum getað leitt til enn meiri glund­roða. Við höfum nefni­lega dæmi frá Líbíu sem sýnir að ef eitt­hvað er verra en slæm stjórn­völd þá er það að hafa engin stjórn­völd.

Hvers vegna styður Pútin Assad?


Rússar eiga langa sögu banda­lags við Sýrland og hafa ávallt stutt Assad. Þeir eiga hags­muna að gæta á svæð­inu því aðgangur þeirra að sjó um Svarta­haf er lít­ils virði ef þeir hafa ekki trygga leið um tyrk­nesku sundin inn á Mið­jarð­ar­haf. Þess vegna eru þeir með flota­stöð í Sýrlandi og þess vegna er alveg ljóst að Rússum hugn­ast lítt að við taki enn verra ástand stjórn­leysis en það sem nú ríkir þar.

Um leið og Rússar styrkja fót­festu sína á svæð­inu stíga þeir inn í það tóma­rúm sem Banda­ríkja­menn hafa skilið eftir með aðgerða­leysi sínu. Þarna eygir Pútin einnig ákveðna mögu­leika á að gera Rússland aftur að virku for­ystu­afli meðal stór­velda, eftir ein­okun Banda­ríkj­anna á þeim vett­vangi og hremm­ingar Rússa und­an­farið.

[caption id="attachment_41019" align="alignnone" width="640"] Rússar hafa nú hafið loft­árásir á liðs­menn Íslamska rík­is­ins. Mynd: Alan Wilson[/caption]

Rússar sýna með stuðn­ingnum við Assad að þeir eru til­búnir til slíks án þess að spyrja óþægi­legra spurn­inga um mann­rétt­indi og lýð­ræði. Má því búast við að arabaríkin reyni að efla sam­bandið við Rússa og að íhlutun þeirra í Sýrlandi sé aðeins upp­hafið að meiri og sterk­ari tengslum við ríki í Mið-Aust­ur­löndum.

Rússar hafa nú hafið loft­árásir á liðs­menn Íslamska rík­is­ins en ef marka má fréttir þá einnig á aðra upp­reisn­ar­menn gegn stjórn Assads. Reynslan af slíkum loft­árásum er almennt ekki góð því hætt er við að aðgerðir Rússa í Sýrlandi gæti dreg­ist á lang­inn og reynst kvik­syndi sem erfitt verði fyrir þá að losa sig úr. – Einhver er því að gera eitt­hvað en lík­lega verður það ekki til að laga í bráð það hörm­ung­ar­á­stand sem ríkt hefur í Sýrlandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár