Umboðslaun alltaf skattskyld á Íslandi

Alltaf á að greiða skatta af umboðs­launum og þókn­unum, jafn­vel þótt slík laun komi til og séu geymd erlendis. Þetta segir rík­is­skatt­stjóri.

Umboðs­laun, sem fengin eru erlendis frá, á að telja fram á skatt­fram­tali hér­lendis. „Engu máli skiptir hvort fjár­mun­irnir séu greiddir beint til Íslands eða geymdir erlendis á banka­reikn­ingi. Skatt­skyldan er fyrir hendi,“ segir Skúli Eggert Þórð­ar­son rík­is­skatt­stjóri í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um mál af þessu tagi almennt.

Fram kom í Kast­ljósi í fyrra­dag að fjöl­skylda Ingvars Helga­sonar, sem stofn­aði og átti sam­nefnt bíla­um­boð, hafi lengi leitað að vara­sjóði sem hann hafi sagt þeim frá. Vara­sjóð­ur­inn hafi verið þannig til­kom­inn að Ingvar hafi ávallt sett inn umboðs­laun frá erlendum bíla­fram­leið­endum inn á banka­reikn­inga erlendis. Leitin að þessum sjóði hófst skömmu eftir að Ingvar féll frá en kom aldrei í leit­irnar. Miklar erfða­deilur standa nú yfir milli erf­ingj­anna.

Meðal þess sem hluti afkom­enda og erf­ingja Ingvars og konu hans, Sigríðar Guð­munds­dóttur, hafa spurt sig að er hvers vegna féð var geymt erlendis og hvort ekki hafi átt að gefa það upp til skatts hér á landi. Þau segja einnig að bróðir þeirra, Júlíus Vífill Ingv­ars­son, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hafi við­ur­kennt fyrir þeim að vara­sjóð­ur­inn sé í félagi í hans eigu á Panama.

Umboðsþóknun skattskyld á Íslandi

Allar tekjur sem Íslend­ingar, og aðrir sem hafa fulla skatt­skyldu á Íslandi, afla eru skatt­skyldar hér á landi nema þær hafi verið skatt­lagðar erlendis. Þá þarf að upp­fylla skil­yrði fyrir því, segir Skúli Eggert. Umboðs­þókn­anir og svip­aðar greiðslur sem félög eða fyr­ir­tæki hér­lendis fá í útlöndum á greiða skatt af hér­lendis nema það hafi verið gert erlendis.

„Dæmi: Skatt­að­ili hér­lendis, oft­ast fyr­ir­tæki eða félag, sem kaupir vörur erlendis til end­ur­sölu hér á landi og fær greiðslu umboðs­launa sam­hliða ber að telja tekj­urnar fram á skatt­fram­tali sínu. Við vöru­kaup erlendis er stundum veittur afsláttur í því formi að ákveðið hlut­fall inn­kaupanna er end­ur­greiddur. Sú end­ur­greiðsla er skatt­skyld sem rekstr­ar­tekjur við­kom­andi,“ segir Skúli Eggert við Kjarnann.

Segja Júlíus hafa viðurkennt að hafa sýslað með sjóðinn

Sem fyrr segir deila erf­ingj­arnir nú um dán­arbú for­eldra sinna, og það sem ekki er í dán­ar­bú­inu, vara­sjóð­inn. Tvö systk­ini Júlíusar Vífils, og syst­ur­sonur hans, segja öll að Júlíus hafi við­ur­kennt fyrir þeim, eftir upp­ljóstr­anir um að hann eigi aflands­fé­lag í Panama, að þessi vara­sjóður for­eldr­anna sé í því félagi. Júlíus hefur ekki svarað ásök­unum þeirra beint en hefur sagt að margar rang­færslur hafi verið í Kast­ljóss­þætt­inum um málið og að allt tal um að hann hafi sölsað undir sig ann­arra manna fé sé rógur og ill­mælgi. Hann hefur sakað systk­ini sín á móti um að hafa dregið sér tugi millj­óna af reikn­ingum móður þeirra. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár