Íslensk landslið munu neita að mæta Rússum og ekki leika í Hvíta-Rússlandi

Stjórn KSÍ hefur ákveðið, vegna inn­rásar Rússa í Úkraínu, að íslensk lands­lið muni ekki mæta rúss­neskum and­stæð­ingum á meðan hern­aði standi. Einnig munu íslensk lands­lið ekki taka þátt í kapp­leikjum í Hvíta-Rúss­landi.

Vanda Sigurgeirsdóttir formaður Knattspyrnusambands Íslands (KSÍ).
Vanda Sig­ur­geirs­dóttir for­maður Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands (KSÍ). Mynd: Skjáskot: RÚV

Íslensk knatt­spyrnu­lands­lið munu ekki leika neina leiki við lands­lið frá Rúss­landi á meðan á hern­aði Rússa í Úkraínu stendur. Stjórn KSÍ tók þessa ákvörðun fyrr í dag og segir engu máli skipta þótt við­kom­andi lið leiki ekki undir nafni eða fána Rúss­lands.

Einnig hefur stjórn KSÍ ákveðið, vegna stuðn­ings Hvíta-Rúss­lands við inn­rás Rússa í Úkraínu, að ekki komi til greina að íslensk knatt­spyrnu­lands­lið leiki við Hvít-rúss­nesk lið á Hvít-rúss­neskri grundu.

Knatt­pyrnu­sam­bandið seg­ist for­dæma inn­rás Rússa í Úkraínu og hvetur Rússa til að hætta árásum í Úkraínu og draga her­lið sitt til baka án tafar.

Körfuboltinn einnig að hugsa sig um

Fram kom á vef Stund­ar­innar í dag að innan Körfuknatt­leiks­sam­bands Íslands (KKÍ) hafi einnig verið rætt óform­lega um það að hafna því að leika gegn rúss­neskum lands­liðum

„Enginn hefur áhuga á að mæta Rússum eins og staðan er núna. Það á ekki bara við um okkur Íslend­inga, Norð­ur­landa­þjóð­irnar eru að tala saman og ég heyri að þar hefur eng­inn áhuga á að spila við Rússa,“ sagði Hannes S. Jónsson for­maður KKÍ í sam­tali við Stundina.

[adspot]

Yfirlýsing KSÍ vegna innrásar Rússlands í Úkraínu

Knatt­spyrnu­sam­band Íslands (KSÍ) for­dæmir inn­rás Rúss­lands í Úkraínu. Stríðs­á­tök hafa fært ólýs­an­legar hörm­ungar yfir mann­kynið í gegnum sög­una og nú hafa rúss­nesk yfir­völd, með stuðn­ingi Hvít-rúss­neskra yfir­valda fært slíkar hörm­ungar yfir Úkraínu.

Stjórn KSÍ hefur ákveðið að ekk­ert íslenskt knatt­spyrnu­lands­lið muni leika við lands­lið frá Rúss­landi meðan á hern­aði Rússa stendur. Ákvörð­unin nær m.a. til þeirra leikja sem eru framundan í Þjóða­deild UEFA (A lands­lið karla) og engu skiptir þó við­kom­andi lið leiki ekki undir nafni eða fána Rúss­lands.

Vegna stuðn­ings Hvíta-Rúss­lands við inn­rás Rússa í Úkraínu hefur stjórn KSÍ jafn­framt ákveðið að ekki komi til greina að íslensk knatt­spyrnu­lands­lið leiki við Hvít-rúss­nesk lið á Hvít-rúss­neskri grundu á meðan á hern­að­inum stendur. Sú ákvörðun nær m.a. til þeirra leikja sem eru framundan í und­ankeppni HM 2023 (A lands­lið kvenna).

KSÍ fylgist grannt með þróun mála, er í reglu­legu sam­bandi við UEFA og utan­rík­is­ráðu­neyti Íslands, og mun end­ur­skoða afstöðu sína ef ástæða er til.

Íslensk knatt­spyrna stendur með Úkraínu og hvetur Rússa til að hætta árásum og draga her­lið sitt til baka taf­ar­laust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár