Þorgerður Katrín íhugar forsetaframboð

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir íhugar að bjóða sig fram til for­seta Íslands. Fjórir for­seta­fram­bjóð­endur eru byrj­aðir að safna und­ir­skriftum.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­stöðu­maður mennta- og nýsköp­un­ar­sviðs Samtaka atvinnu­lífs­ins, íhugar að bjóða sig fram til for­seta Íslands. Þor­gerður stað­festir þetta í sam­tali við Kjarnann, en Frétta­tím­inn greindi frá mál­inu í dag.

Þor­gerður Katrín er fyrr­ver­andi mennta­mála­ráð­herra og vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hún sat á Alþingi fyrir flokk­inn á árunum 1999 til 2013.

Þorgrímur og Sturla óákveðnir

Fjórir for­seta­fram­bjóð­endur eru byrj­aðir að safna und­ir­skriftum. Nauð­syn­legt er að skila inn 1.500 nöfnum sam­tals úr öllum lands­fjórð­ungum um miðjan maí til að geta boðið sig fram. 

Ari Jós­eps­son segir und­ir­skrifta­söfn­un­ina ganga vel. Það sama segir Elísabet Kristín Jök­uls­dóttir. Þau Ástþór Magn­ús­son og Hildur Þórð­ar­dóttir segj­ast bæði vera rétt að byrja í sinni söfnun og und­ir­strika að nægur tími sé til stefnu. Bæði eru þau byrjuð í sinni kosn­inga­bar­áttu. 

Þor­grímur Þrá­ins­son rit­höf­undur und­ir­strikar að hann sé enn að ákveða hvort hann muni bjóða sig fram eða ekki. Hann sé enn að meta kosti og galla og hefur ekki hafið und­ir­skrift­ar­söfnun. 

Sturla Jónsson bíl­stjóri tekur í sama streng og Þor­grímur og seg­ist enn vera að hugsa málið.

Mörg nöfn í umræðunni

Fleiri hafa verið orð­aðir við fram­boð. Stefán Jón Hafstein hélt opinn fund á Kaffi Sólon í síð­ustu viku þar sem for­seta­hlut­verkið var rætt. Und­ir­skrift­ar­söfnun er hafin til stuðn­ings Vigfúsi Bjarna Alberts­syni sjúkra­hús­presti til að bjóða sig fram og Gallup­könnun var gerð í síð­ustu viku til að kanna grund­völl fyrir fram­boði Höllu Tóm­as­dóttur athafna­konu. Hrannar Pét­urs­son, fyrr­ver­andi upp­lýs­inga­full­trúi Vodafone og ráð­gjafi í stjórn­ar­ráð­inu, er enn að melta hvort hann fari fram, Andri Snær Magnason rit­höf­undur er enn að velta málum fyrir sér, Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, hefur ekki neitað því að hún ætli í fram­boð og Össur Skarp­héð­ins­son, þing­maður Sam­fylk­ingar, hefur verið þög­ull sem gröfin. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár