Litlar sögur úr samfélagi heyrnarlausra

Elsa G. Björns­dóttir útskrif­að­ist frá Kvik­mynda­skóla Íslands árið 2010. Árið 2015 skrif­aði hún, fram­leiddi og leik­stýrði fyrstu stutt­mynd­inni sinni, „Sagan Enda­lausa“ sem síðar sama ár hlaut verð­laun sem besta myndin á Clin d'Oeil hátíð­inni í Reims í Frakk­landi. Hún hefur síðan farið á nokkrar hátíðir erlendis og verður m.a. sýnd á Stockfish Film Festival 2017 sem stendur yfir dag­anna 23. feb - 5. mars næst­kom­andi.

Elsa G. Björns­dóttir stendur ein á bak við fram­leiðslu stutt­mynd­ar­innar Kára ásamt því að skrifa hand­ritið og leik­stýra.

Hvað kom til að þú hentir þér út í þetta verk­efni ein?

„Já, ég er svo­lítið brjáluð að leggja út í þetta verk­efni alein, en aðal­lega er ég óþol­in­móð og gott ef ekki svo­lítið hvat­vís. Ég skellti bara öllu í gang þegar ég hélt að ég væri komin með nægi­legt fjár­magn í verkið. Það er ástæðan fyrir því að núna sit ég uppi með uppurið fjár­magn og óklárað verk þar sem kostn­að­ur­inn var meiri en gert ráð var fyrir.“

Um hvað fjallar stutt­myndin Kári?

„Stutt­myndin er í raun sam­an­safn af mörgum litlum sögum bæði sann­sögu­legum sem og sögu­sögnum úr döff­sam­fé­lag­inu þ.e. sam­fé­lagi heyrn­ar­lausra, sem þekkja öll það tíma­bil þegar tákn­málið var bannað og fjöl­skyldur not­uðu ein­hvers konar heima­til­búið tákn­mál í allra ein­föld­ustu sam­skiptin. Döff fólk sem búsett var úti á landi á þeim tímum muna líka vel eftir því að vera rifin í burt frá fjöl­skyld­unni án þess að fá skýr­ingu né hafa neinn skiln­ing á því sem var að gerst. Aðstand­endur, sér­stak­lega þá for­eldrar finna sum hver enn fyrir þeim erf­iða sárs­auka sem fylgdi því að þurfa að senda börnin sín ung að árum suður á heima­vist og geta ekki einu sinni gefið þeim útskýr­ingu á hvað væri að ger­ast.

Stutt­myndin Kári fjallar um 6 ára strák sem hrindir bróðir sínum í sjó­inn og þá eft­ir­sjá sem fylgir honum inn í full­orð­ins­árin að hafa gert þetta þeim sem hann unni og tengd­ist mest. Á full­orð­ins­árum kemst Kári að því að allt sem hann skynj­aði og skildi út frá þeim litlu sam­skiptum sem hann átti við fólkið sitt í æsku var í raun byggt á mis­skiln­ingi.“

Þú minnt­ist á að tungu­málið skipi stóran sess í mynd­inni, hvernig þá?

„Já, tungu­málið er upp­spretta sög­unnar um orsök og afleið­ingar sam­skipta­leysis. Tungu­málið bæði mótar hug­ar­heim Kára og þá til­veru sem hann býr við. Myndin er að sumu leyti tekin upp í point of view senum út frá Kára og þær senur munu vera hljóð­lausar til að gefa áhorf­and­anum inn­sýn í hverju Kári var að missa af í upp­lýs­inga­formi frá umhverfi sínu. Áhorf­and­inn fær þannig að stiga í hans spor í nokkur augna­blik. Aðal tungu­málin í mynd­inni er íslenskan sem fjöl­skyldan og aðrir tala sín á milli fyrir utan Kára sem á ein­göngu sam­skipti þegar talað er við hann á því heima­gerða tákn­máli sem þau hafa þróað með sér, sér­stak­lega bróðir hans Björn.“

Er eitt­hvað sem þú myndir gera öðru­vísi varð­andi vinnslu mynd­ar­innar þegar þú lítur til baka?

„Ég var með magnað starfs­fólk og stór­kost­lega leik­ara í kringum og við tökur. Fullt af hæfi­leika­búntum sem gáfu mynd­inni svo mikið, ég hefði ekki viljað velja neitt öðru­vísi.

Ég get bara ekki sagt að það sé nein eft­ir­sjá þó ég finni það vel að það er ekk­ert snið­ugt að vera einn að fram­leiða heila stutt­mynd, auð­vitað lærir maður lang mest af þeim mis­tökum sem maður gerir. Ég get samt get varla kallað það mis­tök að fara ein út í svona stóran pakka því sú stað­reynd situr eftir að eftir þrot­lausa vinnu þar sem hugur, hjarta og sál er allt lagt í þetta ferli þá kenndi það mér meira en hefði getað ímyndað mér. Sá lær­dómur, reynsla og upp­lifun hefði aldrei getað komið frá þeirri menntun sem ég fékk í Kvik­mynda­skól­anum og þá er ofsa­lega mikið sagt því þetta er góður skóli og góð menntun. Það er mér svo dýr­mætt að búa að þessu að ég gæti ekki fórnað því með því að spóla til baka og gera eitt­hvað öðru­vísi eins og að safna í eitt gott fram­leiðsluteymi með mér auka­lega í verkið í heild en það mun ég þó klár­lega gera næst. Kári er því og mun alltaf vera ein­stök mynd í mínum huga enda alveg ein­stök saga og verk­efni sem ég er óend­an­lega stolt af.“

Hver eru næstu skref?

„Hóp­fjár­öfl­unin á Karolina Fund stendur nú yfir fyrir Kára og upp­hæðin verður notuð í útgjöld og kostnað í tengslum við hljóð­vinnslu og tón­list. Öll tón­listin sem notuð verður í mynd­inni er frum­samin og því ekk­ert til­búið á lager sem biður eftir að ég skelli því undir í klippi­for­rit­inu. Það er nú kannski eins gott að ég sé heyrn­ar­laus því ann­ars myndi ég örugg­lega reyna að glamra þetta sjálf á gítar og mixa hljóðið sem er nátt­úr­lega alls ekki góð hug­mynd en væri ótrú­lega mikið mér líkt að fram­kvæma eitt­hvað þannig.

Karolina Fund er auð­vitað allt eða ekk­ert vett­vangur og því fjár­magn­ast stutt­myndin Kári ein­ungis ef 7500 evrur safn­ast, ég ákvað að heita á lög­regl­una á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og láta 10% upp­hæð­ar­innar renna til þeirra svo það kemur nú ekki annað til greina en að trúa því ein­læg­lega og af öllu hjarta að þetta muni takast.“

Hægt er að styðja verk­efnið hér á Karolina Fund

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár