Karolina Fund: Alter Ego innblásin af níunda áratugnum

Berndsen er verk­efni sem byrj­aði árið 2008 í Hollandi. Þar kynnt­ust Davíð Berndsen og Svein­björn Thoraren­sen, byrj­uðu að fikta á gömul hljóm­borð og semja músík undir miklum áhrifum nýróm­an­tískrar stefnu. Kjarninn hitti Davíð Berndsen og tók hann tali.

Hvað er hljóm­sveitin Berndsen með á prjón­unum þessa dag­ana?

„Þessa dag­ana erum við að steikj­ast inn í stúd­íó­inu! Því sólin skín beint inn og veðrið búið að vera svo æðis­legt síð­ustu daga.

Annars erum við að klára upp­tökur fyrir okkar þriðju plötu Alter Ego og höfum sett upp síðu á Karolina Fund til að fjár­magna fram­leiðslu á Vinyl, Cd og mynd­band­gerð og öllu sem fylgir plötu­út­gáfu. Svo förum við bráðum til Finn­lands á spila á sum­ar­há­tíð í Turku sem verður aldeilis gaman og auð­vitað að plana fram­haldið eftir að platan kemur út, þá hefst mikil vinna að kynna nýja efnið og spila von­andi út um allan heim.“

Hvaða áhrifa er að gæta á plöt­unni?

„Okkur lang­aði til að gera eitt­hvað öðru­visi en okkar síð­ustu tvær plötur, Lover in the dark og Planet Earth. Þannig ég fór að hlusta mikið á Bryan Ferry, David Bowie, Prefab Sprout og allt þetta besta frá the 80´s til að finna inn­blást­ur­inn.“

Vinnurðu að þessu verk­efni einn eða koma fleiri tón­list­ar­menn að gerð plöt­unnar?

„Margir halda að Berndsen sé sóló verk­efni en það eru margir sem eru bak við tjöldin, Einn æsku félagi minn hann Hrafn­kell Gauti Sig­urð­ar­son betur þekktur sem Keli gítar hefur hjálpað gríð­ar­lega mikið með nýju plöt­una ásamt auð­vitað Hermi­gervilinum. Svo höfum við fengið góða vini til að spila inn á plöt­una og þeir eru of margir til að telja upp hér! Mæli með að kíkja á Karolina Fund síð­una fyrir þá sem hafa áhuga að kynna sér verk­efnið enn frekar!“

Verkefni er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár