Vill fá að vita hver aksturskostnaður dýrustu þingmannanna er

Óskað er eftir því að fá upp­lýs­ingar um hver mán­að­ar­legur og árlegur akst­urs­kostn­aður þeirra þriggja þing­manna sem fengu hæstu greiðsl­urnar sam­kvæmt akst­urs­skýrslu á árunum 2013–2016 í hverju kjör­dæmi.

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata. Mynd: Birgir Þór Harðarson


Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, hefur lagt fram fyr­ir­spurn til for­seta Alþingis um akst­urs­kostnað þing­manna. Hann vill fá að vita hver mán­að­ar­legur og árlegur akst­urs­kostn­aður sér­hvers þeirra þriggja þing­manna sem fengu hæstu greiðsl­urnar sam­kvæmt akst­urs­skýrslu á árunum 2013–2016 í hverju kjör­dæmi var.

Í stuttri grein­ar­gerð sem fylgir fyr­ir­spurn­inni er sér­stak­lega tekið fram að þess sé ekki óskað að við­kom­andi þing­menn séu nafn­greindir, ein­ungis er spurt um upp­hæð­irnar sem eru undir.

Björn Leví spurði út í akst­urs­kostnað þing­manna á síð­asta þingi. Í svari þáver­andi for­seta Alþingis, Unnar Brár Kon­ráðs­dóttur, við fyr­ir­spurn­inni, sem var birt í byrjun nóv­em­ber, kom fram að frá byrjun árs 2013 og til loka árs 2016 hafi þing­menn fengið greiddar 163 millj­ónir króna vegna akst­urs eigin bif­reiða. Þing­mönnum er heim­ilt að halda akst­urs­dag­bækur og fá kostnað end­ur­greiddan frá þing­inu. Á árinu 2016 fóru tvær af hverjum þremur krónum sem voru end­ur­greiddar vegna akst­urs­kostn­aðar til þing­manna Suð­ur­kjör­dæmis. Þrátt fyrir margar fyr­ir­spurnir, frá þing­mönnum og fjöl­miðlum, þá hefur Alþingi ætið neitað að greina frá því hvað hver þing­maður hefur fengið í akst­urs­greiðslur.

Þingið hefur hvatt þing­menn til að nýta sér bíla­leigu­bíla í meiri mæli í stað þess að nota eigin bíla og fá greidda akst­ur­s­pen­inga, til að svara kostnað. Þessi til­mæli hafa skilað því að end­ur­greiðslur til þing­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi hafa dreg­ist veru­lega saman.

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi, var spurður af því af Frétta­blað­inu í nóv­em­ber hvort hann vildi upp­lýsa um hversu mikið hann hefði fengið greitt vegna akst­urs á árinu 2016. Hann vildi ekki greina frá því. Þess í stað spurði hann blaða­mann: „Þið eruð ekki að spyrja hvað lög­fræð­ing­arnir frá Rauða kross­inum eru að fá fyrir að senda bréf til inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins vegna hæl­is­leit­enda, er það? Þið viljið ekki að þeir missi spón úr aski sínum?“

Ásmundur baðst síðar afsök­unar á orðum sínum í við­tal­inu og sagð­ist hafa verið argur og þreyttur þegar við­talið var tekið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár