Endurvinnsluhlutfall umbúðaúrgangs innan við 50 prósent hérlendis

Heild­ar­magn umbúða­úr­gangs hér­lendis var um 151 kíló á hvern ein­stak­ling árið 2019. End­ur­vinnslu­hlut­fallið lækkar á milli ára en um fjórð­ungur plast­um­búða ratar í end­ur­vinnslu sam­an­borið við rúm­lega 80 pró­sent papp­írs- og pappa­um­búða.

Heild­ar­magn umbúða­úr­gangs hér á landi nam rúmum 53,7 þús­und tonnum árið 2019, sem sam­svarar um 151 kílói af umbúðum á hvern ein­stak­ling á árinu. Alls voru 25,4 þús­und tonn af umbúða­úr­gangi send til úrvinnslu og því nam end­ur­vinnslu­hlut­fall 47,3 pró­sentum árið 2019. Hlutafllið lækkar á milli ára en það var 51 pró­sent árið 2018. Þetta kemur fram í tölum frá Hagstofu Íslands.

Á vef Hag­stof­unnar segir að að með umbúða­úr­gangi sé átt við hvers konar papp­írs- og pappa­um­búðir, sem og plast-, viðar-, gler- og málm­um­búðir sem ber úrvinnslu­gjald sem hægt er að end­ur­heimta ef umbúðum er skilað til end­ur­vinnslu. „Efni telst end­ur­unnið þegar það er mót­tekið af við­ur­kenndum end­ur­vinnslu­að­ila. Til­fallandi umbúð­ar­úr­gangur er áætl­aður út frá meðal inn­flutn­ingi umbúða síð­ustu þriggja ára,“ segir í grein Hag­stof­unnar.

Mjög lítið endurunnið hér innanlands

Samkvæmt tölum Hag­stof­unnar voru 528 tonn end­urunnin eða end­ur­nýtt hér á landi en afgang­ur­inn, tæp 25 þús­und tonn, fluttur til end­ur­vinnslu erlendis. End­ur­vinnsla inn­an­lands dregst tölu­vert saman á milli ára en 855 tonn voru end­urunnin eða end­ur­nýtt inn­an­lands árið 2018.

Mest fellur til af papp­írs- og pappa­um­búðum hér á landi, alls rétt rúm­lega 21 þús­und tonn. Það eru rúm­lega 39 pró­sent af heild­ar­þunga umbúða­úr­gangs sem fellur til hér­lendis. End­ur­vinnslu­hlut­fall slíkra umbúða var 83 pró­sent árið 2019 sem er til­tölu­lega hátt í sam­an­burði við hina flokk­ana.

Til sam­an­burðar skil­aði ein­ungis um fjórð­ungur plast­um­búða sér til end­ur­vinnslu eða um 4.406 tonn af þeim 17.492 tonnum sem til féllu af plast­úr­gangi á árinu 2019. End­ur­vinnslu­hlut­fall plast­um­búða minnkar á milli ára en það var rúm 29 pró­sent árið 2018.

Samkvæmt tölum Hag­stof­unnar fór öll end­ur­vinnsla fram erlendis á þeim papp­írs- og pappa­um­búðum sem til féllu hér­lendis. Um 172 tonn af plast­um­búðum voru end­urunnin hér inn­an­lands en 4234 tonn voru end­urunnin erlendis.

En hvað verður um það sem skilar sér í endurvinnslu?

Samkvæmt upp­lýs­ingum á vef Sorpu eru örlög umbúða sem rata í end­ur­vinnslu ólík. Plast sem kemur til Sorpu er pressað og baggað áður en það er flutt til Sví­þjóðar þar sem það er flokkað eftir teg­undum. „Plast­teg­und­irnar PET, LDPE, HDPE og PP (oft­ast merkt með núm­er­unum 1, 2, 4 og 5 í end­ur­vinnslu­þrí­hyrn­ingi) fara til end­ur­vinnslu. Einnig sam­sett filma úr PP/PE. Plast af öðrum teg­undum, s.s. PVC, PS og EPS og umbúðir sem eru laminer­aðar, svartar eða sam­settar úr fleiri en einni teg­und plasts eru aðeins hæfar til orku­vinnslu þegar þær koma í bland við aðrar plast­teg­undir. Þær nýt­ast þá til varma- og raf­magns­fram­leiðslu í Svíþjóð,“ segir á vef Sorpu.

Fyrsta skref fyrir papp­írs- og pappa­um­búðir er það sama og plast­s­ins, það er pressað og baggað til þess að draga úr rúm­máli. Síðan er papp­inn fluttur til Sví­þjóðar þar sem hann er flokk­aður enn frekar. Úr end­urunnum sléttum pappa er til dæmis hægt að fram­leiða karton sem notað er í nýjar umbúðir en úr end­urunnum bylgju­pappa er fram­leiddur nýr bylgju­pappi.

Glerið er aftur á móti malað og það má nota sem fyll­ing­ar­efni við fram­kvæmdir og nýt­ist þá með svip­uðum hætti á möl. „Þannig má draga úr námu­greftri og áhrifum slíkra fram­kvæmda á umhverfið, auk þess sem dregið er úr kostn­aði,“ segir á vef Sorpu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár