Brynjar vék formannssæti og Jón Steindór tók við

Brynjar Níelsson situr ekki opin fund í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd og Jón Steindór Valdi­mars­son er orð­inn for­maður í stað Brynjars.

Brynjar Níelsson er ekki formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar lengur.
Brynjar Níelsson er ekki for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar lengur. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Jón Steindór Valdi­mars­son, þing­maður Við­reisnar, er orð­inn for­maður í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd í stað Brynjars Níels­sonar. Jón Steindór var kjör­inn í upp­hafi fundar nefnd­ar­innar í morgun.

Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur verið for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar og Jón Steindór, þing­maður Við­reisnar, hefur verið fyrsti vara­for­maður.

Jón Steindór til­kynnti um þetta í upp­hafi opins fundar í nefnd­inni þar sem Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra er gestur og ræðir upp­reist æru. Svandís Svav­ars­dóttir, þing­maður Vinstri grænna, er orðin fyrsti vara­for­maður nefnd­ar­innar.

Brynjar Níelsson er ekki við­staddur fund­inn en hávær krafa hefur verið um það meðal ann­ara þing­manna að hann myndi víkja úr for­manns­sæti nefnd­ar­innar á meðan hún fjallar um upp­reist æru. Brynjar hefur lagt áherslu á að ein­stök mál yrðu ekki rædd í nefnd­inni og upp­lýs­ingar um upp­reist æru ekki birtar.

Vefur Alþingis hefur ekki enn verið upp­færður með þessum upp­lýs­ingum. Ekki fást upp­lýs­ingar um hvort Brynjar hefur vikið úr sæti sínu end­an­lega úr nefnd­inni. Birgir Ármanns­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, situr fund­inn í dag en hann hefur ekki átt sæti í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd hingað til.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár