Bibbi bloggar úr Evróputúr Skálmaldar: París

Skálmöld er nú á tæp­lega 7 vikna túr um Evrópu. Dagarnir eru afskap­lega við­burða­ríkir og aðstæður oft afskap­lega skemmti­legar. Snæbjörn, bassa­leik­ari og texta­höf­undur sveit­ar­innar, heldur úti dag­legu bloggi á vef Kjarnans þar sem hann lýsir hinu goð­sagna­kennda rokk­ara­lífi. Táfýla, blóð, sviti, tár og auð­vitað rokk & ról beint í æð.

Klukkan er 23.42. Sumir eru farnir á bar­inn, við Þrábi, Böbbi og Flex sitjum í rútu og bíðum eftir að tím­inn líði. Þrási er að horfa á eitt­hvað gam­alt í dót í tölv­unni, Flexi er að stýra Napoli í spjald­tölv­unni og Böbbi er að horfa út í loftið. Brottför er áætluð klukkan 1.00 og Robert er í koju.

[caption id="attachment_11662" align="align­right" width="200"] Stemmn­ing? Ó já.[/caption]

Í nótt hélt ég að Jón Geir væri and­set­inn. Ég var far­inn að sofa þegar hann rugg­aði við mér og bað mig um að kenna sér á Snapchat. Eða svo sem ekki kenna sér, heldur sýna sér hvernig hann ætti að skrá sig inn á nýopn­aðan Snapchat-reikn­ing okkar Skálmald­ar­manna. (Hey krakkar, fylgið okkur á Snapchat. Við göngum undir nafn­inu „skalmold“!) Þegar því var lokið og ég var hálf­vakn­aður en glað­vakn­aði svo þegar hann fór að „búa til púpu úr mér“. Hann var sum sé að troða sæng­inni undir mig allan og þrengja að mér. Ekki endi­lega það sem mig lang­aði að gera akkúrat klukkan fjögur í nótt en eitt­hvað sem ég set í reynslu­bank­ann fyrir kom­andi upp­eldi barns­ins míns. Og þetta tók hann upp á Snapchat og setti út í tómið. Þið sem fylgið okkur nú þegar á Snapchat hafið með­tekið þetta sem nokkrar sek­úndur af svörtu mynd­skeiði og óskilj­an­legu muldri. Þarna var ég glað­vakn­aður og skófl­aði mér framúr. Rútan stopp­aði í vega­sjoppu og þá var and­inn sestur all­kyrfi­lega í Jón. Næstu 2–3 klukku­tíma tókum við það á okkur, fyrst ég og Böbbi, og síðan í slag­togi við Flexa og Baldur, að halda Jóni á lífi. Hann var ekki talandi svo heitið gæti. Það sem kom upp úr honum var á ensku og lengst af var hann viss um að við værum í Þúsaldar-Fálkanum, stjarn­fari Hans Óla úr Stjörnu­stríðs­mynd­unum. Þetta ástand tók svo á sig ýmsar myndir og ég veit ekki nákvæm­lega hvort mér fannst kómískara að hafa hann hér frammi í setu­stof­unni á sokk­unum einum, eða þegar hann var kom­inn í lopa­peys­una til við­bótar. Eftir nokkra tugi metra af rúlli hér fram og aftur um þröngan gang rút­unnar skutl­aði Flex honum svo í koju. Við veltum vini okkar í læsta hlið­ar­legu og vökt­uðum hann fram eftir morgni.

Jón Geir vakn­aði hress og glaður í dag, undr­andi reyndar á þessum nátt­fötum sínum, lopa að ofan og spari­sokkum að neðan, og hversu eigur hans voru dreifðar um alla rút­una. Hann á enga minn­ingu af því sem gerð­ist. Alls enga. Hann man eftir því að hafa verið á spjalli við Robert um köngulær, eftir það boðið góða nótt og haldið til koju. Vitn­is­burð­ur­inn frá Robert bakkar þetta allt saman upp. Sennileg skýr­ing á þessu öllu saman er þessi: Jón Geir gekkst undir axl­ar­að­gerð fyrr á árinu og er enn að jafna sig. Þegar hann hélt á túr­inn lét lækn­ir­inn hans hann hafa vöðva­slak­andi töflur í kveðju­skyni og mögu­lega hefur Jón tekið eins og hálfa svo­leiðis fyrir svef­inn. Nú eða þrjár til fimm í ein­hverjum mis­gán­ingi. Hvað sem olli á ég aldrei eftir að gleyma æfingum hins berrass­aða trymbils sem sat gegnt Böbba hér frammí, röfl­aði óskilj­an­lega um orr­ustu­taktík í þyngd­ar­leysi og reif undir hnés­bæt­urnar á sér á vís svo skein í Hel­stirnið. Allt hlaut þetta bless­un­an­legar lyktir og lífið hélt áfram sinn vana­gang í dag og við allir sem einn frá­bærir á gigg­inu, Jón Geir átti meira að segja sér­lega góðan dag við settið. Við hentum þó vöðva­slak­andi töfl­unum í ruslið til vonar og vara.

Þeir sem hafa fylgst með fyrri túr­bloggum Skálmaldar muna mögu­lega eftir eldri hrak­falla­sögum af Jóni. Við höfum náð að reikna út að ósköpin virð­ast alltaf dynja á eftir sjö­undu tón­leika hvers túrs. Og hér stóð heima.

Giggið í París var frá­bært. Eftir svefn­trufl­an­irnar lá ég sof­andi langt fram á dag­inn og dratt­að­ist ekki úr koj­unni fyrr en um þrjú. Þá tók við allt þetta venju­lega og hér var allt svo ljóm­andi ágætt. Ég þarf ekki að fjöl­yrða um giggið sjálft, það var alger­lega frá­bært, og und­ir­strikar enn og aftur að Frakkar eru meist­ara­meist­arar. Bæði var stemn­ingin á tón­leik­unum rosa­leg og eins er alveg óskap­lega gaman að spjalla við fólk eftir á. Í sam­hengi við það seldum við mjög vel af varn­ingi í kvöld og allt er eins og best verður á kosið.

Félagi okkar frá Húsavík, Ármann Örn, hafði boðað komu sína fyrir nokkru síðan. Hann er búsettur hér í París í augna­blik­inu og verður fram að jólum. Eitthvað höfðum við mis­skilið hvorn annan. Tón­leik­arnir hófust óvenju snemma í kvöld, klukkan hálf7, og hann var heldur seinn á stað­inn. Þrátt fyrir það náðum við góðum fundum, nokkrum bjórum eftir giggið og í fram­hald­inu mál­tíð á veit­inga­stað hér skammt frá. Það borð­hald sátum við sex, ég, Baldur, Jón Geir, umræddur Ármann sem og tveir íslenskir strákar sem slædd­ust hér á tón­leik­ana. Þeir heita Sindri og Jón, að ég held tutt­uguog­tveggja ára gamlir, og eru hér í viku­fríi með­fram því að ætla að sýna listir sýnar fyrir gang­andi veg­far­endur Parísar-borgar. Þessir snill­ingar eru hluti af Sirkus(i) Ísland(s) og ákváðu að láta á þetta reyna. Ég verð hopp­andi glaður þegar ég kemst í kynni við svona fólk, fólk sem gerir eitt­hvað spont­ant og óskyn­sam­legt, rífur sig upp og tekur því sem kemur upp á. Til við­bótar við þessa frá­bæru lífs­sýn eru þeir tví­menn­ingar óskap­lega skemmti­legur félags­skapur og með upp­hand­leggi sem maður þarf að gera ráð fyrir þegar borð­hald er þröngt. Þetta var góð mál­tíð í góðum félags­skap.

[caption id="attachment_11663" align="alignleft" width="228"] Blessað strand­lífið.[/caption]

Rúss­arnir eru alls ekki búnir að redda raf­magn­inu og Vladimir tjáði mér eftir tón­leika gær­dags­ins að hann væri nú bara alveg til í að samnýta þráð­lausa kerfið mitt með mér það sem eftir lifði túrs. Ég sagði að sjálf­sögðu já. Því var mætt með svip­lausu ofur­þakk­læti. Meist­ara­snill­ingar þessir Rússar. Það verður þá þannig það sem eftir lifir, wirelessið mitt verður sekkja­pípugegn­sósa í des­em­ber. Ljúft og skylt.

Til tals hafði komið að tvo af Elu­veitie-krökk­unum myndu spila með okkur í dag, stefið í Kvaðn­ingu. Til þess kom þó ekki sökum skipu­lags­skorts og ein­hverrar bjúrókrasíu geri ég ráð fyrir. Það mun þó ger­ast á end­anum og von­andi fyrr en seinna. Það örlar á ein­hverju drama í þeirra her­búðum, ein­hver vand­ræði virð­ast ber­ast að heiman og mögu­lega er einn með­limur hand­kram­búler­aður eftir orða­skipti og barn­ing eftir tón­leika í dag. Ekki mis­skilja, þetta er rólynd­is­fólk, en ein­hver blóð­hiti virð­ist krauma.

Klukkan er 0.22 og staðan nákvæm­lega sú sama og við upp­haf bloggs, nema hvað Þrábi hefur tekið í stjórn­ar­tauma Manchester United. Þrír að spila Manager. Þetta ætlar að verða trendið á þessum túr. Á morgun spilum við í Belgíu, nálægt Antwerpen, á tón­leika­stað sem við höfum spilað á áður. Það þýðir aldrei neitt fyrir mig að reyna að rifja svona lagað upp. Böbbi man hins­vegar allt í smá­at­riðum. Þangað eru 350 kíló­metrar. Það er létt.

Meist­ara­legt dags­ins: Jón Geir.

Sköll dags­ins: Jón Geir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár