Marple-málinu vísað aftur í hérað vegna vanhæfis meðdómara

Hæsti­réttur hefur ómerkt dóms hér­aðs­dóms Reykja­víkur í Marple-mál­inu svo­kall­aða, vegna van­hæfis sér­hæfðs með­dóm­ara í mál­inu, Ásgeirs Brynjars Torfa­sonar. Þetta stað­festir Arn­þrúður Þór­ar­ins­dóttir sak­sókn­ari við Kjarnann.

Þetta þýðir að taka þarf málið aftur til aðal­með­ferðar fyrir hér­aðs­dómi, en þrír af fjórum sak­born­ingum voru fundnir sekir af hér­aðs­dómi í lok árs 2015. Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hafði einnig áður kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Ásgeir Brynjar þyrfti ekki að víkja sem með­dóm­ari.

Sak­born­ingar í Marp­le-­mál­inu höfðu áður allir sam­þykkt Ásgeir Brynjar sem með­dóm­ara í mál­inu. Hann er lektor við Háskóla Íslands og kennir fjár­mál, bók­hald og grein­ingu árs­reikn­inga. Hann lauk dokt­ors­prófi frá Gauta­borg­ar­há­skóla og fjall­aði dokt­ors­rit­gerð hans um flæði fjár­magns í banka­kerf­inu en rann­sóknin byggði á mis­mun­andi aðferðum og sam­spili fjár­mála, pen­inga­hag­fræði og reikn­ings­skila­reglna. Ásgeir Brynjar var einn umsækj­enda um starf seðla­banka­stjóra þegar það var aug­lýst til umsóknar árið 2014.

Verj­endur sak­born­ing­anna höfðu farið fram á að Ásgeir viki sæti meðal ann­ars á þeim for­sendum að hann situr í stjórn sam­tak­anna Gagnsæis, sem hafa það yfir­lýsta mark­mið að berj­ast gegn spill­ingu í öllum grunn­stoðum sam­fé­lags­ins. Auk þess vor­u ýmis ummæli Ásgeirs Brynjars í þjóð­mála­um­ræðu und­an­far­inna ára sem og grein­ar­skrif hans sögð draga úr hlut­leysi hans sem dóm­ara, meðal ann­ars deil­ingar á Facebook.

Snýst um til­færslu á átta millj­örðum til Marple

Fjögur eru ákærð í

Marp­le-­mál­inu

, þau Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, Guðný Arna Sveins­dótt­ir, fyrr­ver­andi fjár­mála­stjóri bank­ans, Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri bank­ans í Lúx­em­borg og Skúli Þor­valds­son fjár­fest­ir.

Í hér­aðs­dómi Reykja­víkur voru Hreiðar, Magnús og Skúli allir sak­felldir en Guðný Arna sýknuð. Hreiðar Már og Skúli hlutu sex mán­aða dóma en Magnús 18 mán­aða fang­elsi.

Hreiðar Már og Guðný Arna voru ákærð fyrir fjár­drátt og umboðs­svik. Magnús var ákærður fyrir hlut­deild í fjár­drætti og umboðs­svikum og Skúli var ákærður fyrir hylm­ing­u. Hann var hins vegar sýkn­aður af hylm­ingu en sak­felldur fyrir pen­inga­þvætti af gáleysi. Mál­ið, eins og emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara lagði það upp, snýst um til­færslu á um átta millj­örðum króna úr sjóðum Kaup­þings til félags­ins Marple Hold­ing, í eigu Skúla, án þess að lög­mætar við­skipta­legar ákvarð­anir lægju þar að baki. Deilt var um eign­ar­haldið á félag­inu í hér­aðs­dómi og Skúli þvertók fyrir það fyrir dómi að hafa átt félagið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár