Mynd: EPA

Krítískur tími í Evrópu – kúrfan sveigist upp á ný

Hvert sem litið er í Evrópu er staðan nán­ast sú sama: Til­fellum af COVID-19 hefur fjölgað síð­ustu vikur. Ríkin hafa sum hver gripið til stað­bundn­ari tak­mark­ana en í vetur í von um að þurfa ekki að skella í lás að nýju.

Við gerðum þetta í vetur og við getum gert þetta aftur, hefur Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn sagt síð­ustu daga eftir að til­fellum af COVID-19 fór að fjölga. En hvað þarf að ger­ast svo að við getum gert þetta aftur? Stóra áskor­unin er sú að fá fólk, sem ferð­að­ist inn­an­húss um pásk­ana en með ferða­gjöf í vas­anum inn­an­lands í sumar, til að setja í bakk­gír og fara á stað sem var þegar orð­inn því fjar­lægur.

Við erum ekki ein. Mörg lönd í Evrópu eru að glíma við fjölgun til­fella af COVID-19 eftir að hafa náð góðum tökum á útbreiðsl­unni fyrr á árinu. Alma Möller land­læknir sagði á upp­lýs­inga­fundi um helg­ina að allar þjóðir Evrópu utan þriggja hefðu slakað á sínum aðgerðum. „Og almenn­ingur hefur líka slakað á sínum smit­vörnum. Og þessi veira, hún bara kemur upp þegar það ger­ist.“

Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin (WHO) flokkar ríki heims niður eftir því hvort hún metur að um hóp­sýk­ingar (e. Clusters of cases) sé þar að ræða eða sam­fé­lags­smit (e. Community trans­mission). Á Íslandi er að áliti stofn­un­ar­innar nú sam­fé­lags­smit í gangi sem þýðir að upp­tök sýk­inga eru ekki að fullu kunn.

Á síð­ustu tveimur vikum hafa yfir 35 þús­und ný til­felli af COVID-19 greinst á Spáni. Yfir helm­ingur hefur greinst á þremur svæðum; í Kata­lóníu, Argón og Madrid. Hins vegar eru 580 hópsmit í gangi í land­inu. „Ég vil ekki einu sinni hugsa um það,“ segir Sara Gayoso, læknir á El Escorial-sjúkra­hús­inu í nágrenni Madridar, við dag­blaðið Guardian, spurð hvernig hún myndi taka tíð­indum um annan skæðan far­aldur. „Við myndum aug­ljós­lega gera allt sem við gætum en við erum enn svo þreytt að ég er ekki viss um að við hefðum úthaldið til að fara í gegnum þetta allt aftur. Ef það verður önnur bylgja eins og sú fyrsta þá yrði það hörmu­legt.“

Nægar birgðir af hlífðarfatnaði

Þó að til­fellum hafi fjölgað síð­ustu vik­urnar er ástandið á sjúkra­húsum gjör­ó­líkt því sem það var í vetur. Að auki er víða allt til staðar sem skortur var á í mars og apríl. Nægar birgðir eru til af hlífð­ar­fatn­aði og önd­un­ar­vélum á El Escorial-sjúkra­hús­inu, svo dæmi séu tekin.

Juan Camilo Meza, svæf­inga­læknir á sjúkra­húsi í nágrenni Barcelona, tekur í sama streng. Hann segir allar aðstæður og búnað nú betri en í vetur.

Líkt og á Íslandi er það ungt fólk sem oftar en það eldra er að grein­ast með COVID á Spáni þessar vik­urnar. Að sama skapi eru margir ein­kenna­lausir að grein­ast með sjúk­dóm­inn. Meza segir það hafa verið fyr­ir­séð að sýk­ingum myndi fjölga á ný. Það sem hann voni og trúi sé að önnur bylgja verði við­ráð­an­legri en sú fyrsta.

Spænska konungsfjölskyldan vill setja gott fordæmi í sóttvörnum.
Spænska kon­ungs­fjöl­skyldan vill setja gott for­dæmi í sótt­vörnum.

Í Frakk­landi hefur til­fellum einnig fjölgað upp á síðkastið. Á laug­ar­dag greindust 2.200 manns með veiruna sem er met­fjöldi síðan að tak­mörk­unum á sam­komum og ferða­lögum var aflétt í júní. Hafði smitum þá fjölgað dag­lega um skeið. Þar hafa yfir 30.300 manns dáið vegna sjúk­dóms­ins.

Fyrir helgi, þegar til­fellum í land­inu hafði fjölgað um 33 pró­sent á einni viku, sendu hjálp­ar­sam­tökin Læknar án landamæra frá sér til­kynn­ingu þar sem minnt var á að Frakk­land væri „ekki ónæmt fyrir stjórn­lausri upp­sveiflu far­ald­urs­ins“.

Vegna þró­un­ar­innar hefur Emmanuel Macron for­eti boðað neyð­ar­stjórn saman í vik­unni. „Við viljum ekki þurfa að end­ur­upp­lifa það sem við gengum í gegnum áður,“ segir hann. Hann minnti á að margir heil­brigð­is­starfs­menn hefðu sýkst af COVID í upp­hafi far­ald­urs­ins og að skortur hafi verið á hlífð­ar­bún­aði og sýna­tökupinnum. Nú væru allir reynsl­unni rík­ari og fólk vissi almennt hvernig það ætti að forð­ast smit eins og frekast er unnt. „Við þurfum öll að sýna auð­mýkt, passa okkur og vera eft­ir­tekt­ar­söm.“

Yfirvöld margra Evr­ópu­ríkja eru var­færin þegar kemur að því að setja nafn á aukn­ingu til­fella. Talað er um hópsmit – sjaldn­ast far­aldur eða aðra bylgju. Stærstu sam­tök lækna í Þýska­landi, Mar­burger Bund, segja hins vegar engum blöðum um það að fletta að þar í landi sé skoll­inn á ný bylgja. „Við erum þegar í annarri bylgju sem rís lóð­rétt upp,“ segir for­maður sam­tak­anna, Susanne Johna.

Þýski efna­hags­ráð­herr­ann segir þró­un­ina ógn­vekj­andi en í síð­ustu viku greindust yfir 1.000 ný til­felli á dag – þrjá daga í röð. „Við verðum að fletja kúr­f­una á ný og snúa þess­ari þróun við,“ sagði hann í gær. „Þetta snýst um heilsu fólks, um að börn geti farið aftur í skól­ann og einnig um efna­hags­horfur okkar. Við verðum að kom­ast hjá annarri lokun sam­fé­lags­ins.“

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, tal­aði á sam­bæri­legum nótum í við­tali í útvarps­þætt­inum Sprengisandi í gær. Hann sagði að lífs­gæði fælust ekki síst í því að geta haldið skólum opnum og að menn­ingar- og lista­líf gæti blómstrað.

Mótmælt fyrir utan höfuðstöðvar matvælaframleiðandans Tönnies í Þýskalandi. Hópsmit hafa komið upp í sláturhúsum og verksmiðjum fyrirtækisins.
Mótmælt fyrir utan höf­uð­stöðvar mat­væla­fram­leið­and­ans Tönnies í Þýska­landi. Hópsmit hafa komið upp í slát­ur­húsum og verk­smiðjum fyr­ir­tæk­is­ins.

Þegar stjórn­völd Evr­ópu­ríkja fóru að aflétta tak­mörk­unum í maí og júní var lögð áhersla á að slíkar aflétt­ingar myndu aðeins halda áfram svo lengi sem ný til­felli væru fá dag frá degi. Þetta átti einnig við um yfir­völd á Íslandi sem afléttu tak­mörk­unum í var­færnum skrefum. Skref var svo stigið til baka síð­asta dag júlí­mán­aðar er til­fellum hafði fjölgað hratt.

Sér­fræð­ingar í lýð­heilsu telja að mörg ríki standi nú við brún ann­arrar bylgju og að þau muni fara fram af hengiflug­inu ef ekki verði skerpt á tak­mörk­unum. Það hafa þegar stjórn­völd margra ríkja gert. Reyna að þreifa sig áfram í þessum nýja veru­leika. Danir hafa frestað fyr­ir­hug­aðri aflétt­ingu. Á Írlandi hafa reglur verið hertar á þeim svæðum þar sem hópsmit hafa komið upp og víða eru ferða­menn flokk­aðir á græna og rauða lista eftir því hvaðan þeir eru að koma og þá hvort þeir þurfi að fara í skimun við landa­mærin eða í sótt­kví.

Mun takast að koma í veg fyrir stórkostlega útbreiðslu?

Eitt af því sem sér­fræð­ingar hafa áhyggjur af og nefnt hefur verið á upp­lýs­inga­fundum almanna­varna og land­læknis er það sem á ensku er farið að kalla social distancing fatigue, nokk­urs konar upp­gjöf í garð sótt­varna­reglna á borð við 2 metra fjar­lægð­ar­mörk. Víða er talað um að erf­ið­ara sé nú en í vetur að fá fólk til að hlíta slíkum reglum. Það geti aftur orðið til þess að smit breið­ist hraðar út. „Í hvert skipti sem slakað er á tak­mörk­unum og fólk fer að umgang­ast annað fólk meira þá mun til­fellum fjölga á ný,“ segir Nathalie MacDermott, sér­fræð­ingur í smit­sjúk­dómum við King’s College í London í ítar­legri sam­an­tekt Time um stöðu far­ald­urs­ins. „Spurn­ingin er hins vegar hvort það tekst að fylgj­ast með þessum nýju smitum og koma í veg fyrir öldu af þeim.“

Annað sem sér­fræð­ingar lærðu í far­aldr­inum í vetur er að ef COVID-19 nær sér á strik þá getur hann breiðst út á gríð­ar­legum hraða. Fljót­lega mun koma í ljós hvort ríkjum Evrópu tak­ist að koma í veg fyrir að það ger­ist.

Líf fólks hefur breyst stöðugt síðustu mánuði. Eftir innilokun samkomu- og ferðatakmarkana streymdi það út á götur. Nú gæti það þurft að draga sig í hlé að nýju.
Líf fólks hefur breyst stöðugt síð­ustu mán­uði. Eftir inni­lokun sam­komu- og ferða­tak­mark­ana streymdi það út á götur. Nú gæti það þurft að draga sig í hlé að nýju.

Ýmsar ástæður eru fyrir því að til­fellum er að fjölga á ný. Ein gæti verið sú að tak­mörk­unum á ferða­lögum hafi verið aflétt of snemma. Í áhættu­mati Evr­ópu­sam­bands­ins, sem birt var snemma í júlí og vitnað er til í frétta­skýr­ingu Time, segir að sam­fé­lags­smit hafi enn verið í gangi í flestum löndum álf­unnar þegar til­slak­anir hófust. Það þýðir að smit var enn það útbreitt að yfir­völd gátu ekki rakið ný til­felli til upp­runans. Hins vegar hafði veru­lega hægt á nýjum smitum dag frá degi.

Á Íslandi var staðan góð. Í maí og júní liðu oft margir dagar, jafn­vel vika, án þess að ný smit greindust. Á þeim tíma þurftu allir ferða­menn sem hingað komu, jafnt íslenskir sem erlendir, að fara í tveggja vikna sótt­kví. Þann 15. júní gátu þeir svo valið um að fara í sýna­töku við landa­mærin í stað sótt­kví­ar­innar. Nokkru síðar var ákveðið að fjölga löndum á lista yfir „örugg lönd“ og taldi sá listi þá m.a. Þýska­land, Danmörku, Grænland og Færeyjar.

Stöðug endurskoðun

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir hefur alltaf sagt að allar aðgerðir hér séu í stöðugri end­ur­skoðun, m.a. hvaða lönd telj­ast áhættu­svæði og ekki. Spurður hvort að það komi til álita að krefj­ast tveggja vikna sótt­kvíar allra ferða­manna á ný svarar hann: „Við höfum alltaf sagt að að skimanir á landa­mærum séu í sífelldri end­ur­skoðun sam­kvæmt þeim nið­ur­stöðum sem þaðan koma. Ég hef líka sagt að ég telji að núver­andi fyr­ir­komu­lag hafi sannað gildi sitt í því að lág­marka áhætt­una á því að veiran komi aftur hingað inn.“

Dán­ar­tíðni í Evrópu meðal sýktra er lægri nú en í vetur sem skýrist lík­lega af ald­urs­sam­setn­ingu smit­aðra. Því þarf ekki að fylgja neinn sér­stakur léttir til lengdar að ungt fólk sé í meiri­hluta sýktra því það getur vissu­lega smitað það eldra. Verandi oft með engin eða lítil ein­kenni þrátt fyrir sýk­ingu getur það ofan á allt saman óaf­vit­andi smitað marga. „Það er erfitt að halda veirunni aðeins meðal yngsta hluta þjóð­ar­innar,“ segir veiru­fræð­ing­ur­inn Steven van Gucht, sem er helsti ráð­gjafi belgískra stjórn­valda í far­aldr­inum.

Ekki mistök að ræða um mögulega veikingu veirunnar

Þetta er einnig staðan á Íslandi: Flestir þeir sem sýkst hafa síð­ustu daga og vikur eru fólk undir þrí­tugu. Og alvar­leg veik­indi létu fyrst í stað lítið á sér kræla. Þórólfur velti því upp hvort að skýr­ingin væri sú að veiran væri veik­ari nú en áður. Er ungur maður, rétt rúm­lega þrí­tugur, varð alvar­lega veikur af COVID-19 og lagður inn á gjör­gæslu­deild, taldi Þórólfur ljóst að þetta hefði verið ósk­hyggja. Ekkert benti til þess að veiran væri ekki eins skæð núna og áður. „Það að ræða og velta fyrir sér hvort veiran sé eitt­hvað veik­ari núna en áður eru ekki mis­tök að mínu mati,“ segir Þórólfur við Kjarnann. „Við þurfum stöðugt að spyrja spurn­inga og leita svara. Það eru ekki mis­tök að mínu mati.“

Veiran gleymir engu

Í Belgíu hefur sú leið verið farin að und­an­förnu, líkt og í Hollandi, að herða tak­mark­anir en þó aðeins á vissum stöðum eða svæðum. Árang­ur­inn af þeim aðgerðum á eftir að koma í ljós að fullu en vís­bend­ingar eru um að þær séu að hafa jákvæð áhrif. „Stóra hættan er sú að fólk sé búið að fá upp í kok á kór­ónu­veirunni,“ segir smit­sjúk­dóma­sér­fræð­ing­ur­inn Gucht. „Það er skilj­an­legt og mér líður líka þannig. En vand­inn er sá að við getum gleymt veirunni en veiran mun ekki gleyma okkur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár