Barnafátækt stóraukist vegna innrásar Rússa

Efna­hags­legar afleið­ingar inn­rásar Rússa í Úkraínu hafa bitnað mest á börnum, ekki aðeins í Rúss­landi og Úkraínu heldur í nágranna­ríkjum bæði í Asíu og Evrópu.

Börn í Bucha í Úkraínu á fyrsta degi skólaársins nú í september.
Börn í Bucha í Úkraínu á fyrsta degi skóla­árs­ins nú í sept­em­ber. Mynd: ROMAN PILIPEY / EPA-EFE

„Þyngstu byrðar efna­hag­skrís­unnar sem stríðið í Úkraínu hefur skapað lenda á börnum.“

Þetta kemur fram í ítar­legri skýrslu UNICEF, Barna­hjálpar Sam­ein­uðu þjóð­anna, sem kom út í dag. Samkvæmt skýrsl­unni hafa fjórar millj­ónir barna í Austur-Evrópu og Mið-Asíu orðið fátækt að bráð vegna inn­rásar Rússa og stríðs­ins í Úkraínu. Það er til við­bótar við þann fjölda barna sem þegar bjó við fátækt áður en átökin hófust. Fátækum börnum í heims­hlut­anum hefur fjölgað um 19 pró­sent frá síð­asta ári að mati UNICEF.

[adspot]

UNICEF byggir nið­ur­stöður sínar á gögnum frá 22 löndum. Rússnesk og úkra­ínsk börn hafa orðið verst úti. Mikill meiri­hluti barna sem hafa lent í fátækt eftir inn­rás­ina býr í Rúss­landi, eða um 2,8 millj­ónir. Kostn­aður við nauð­synja­vörur hefur snar­hækkað vegna stríðs­rekstrar yfir­valda og sífellt fleiri heim­ili eiga erf­ið­ara með að ná endum saman og falla undir fátækt­ar­mörk, segir í nið­ur­stöðum UNICEF.

Ekki aðeins hefur verð­bólga hækkað upp úr öllu valdi vegna stríðs­ins sjálfs heldur einnig vegna við­skipta­þving­ana sem vest­ur­veldin beita Rússland.

Um hálf milljón barna í Úkraínu hefur orðið fátæk í kjöl­far stríðs­ins. Í Rúmeníu hefur fátækum börnum fjölgað um 110 þús­und, að mati UNICEF.

Mun valda barnadauða

„Börn um allan þennan heims­hluta hafa orðið fyrir barð­inu á þessu hræði­lega stríði,“ segir Afshan Khan, svæð­is­stjóri UNICEF í Evrópu og Mið-Asíu. „Ef við styðjum ekki við bakið á þessum börnum og fjöl­skyldum þeirra þegar í stað þá mun aukin barna­fá­tækt alveg örugg­lega valda því að börn missa af menntun, tapa fram­tíð sinni og jafn­vel deyja.“

UNICEF segir að þær fjöl­skyldur sem voru hvað við­kvæm­astar fyrir verði harð­ast úti. Þegar nauð­synja­vörur hækki í verði og eng­inn sé afgang­ur­inn af tekjum heim­il­is­ins geti fólk ekki sótt sér nauð­syn­lega heil­brigð­is­þjón­ustu og menntun. Við þessar aðstæður hefur sýnt sig að ofbeldi gegn börnum og mis­notkun eykst.

UNICEF ótt­ast að með sama áfram­haldi muni 4.500 börn deyja fyrir eins árs afmæli sitt vegna efna­hags­legra afleið­inga stríðs­ins og um 117 þús­und börn hætta í námi þegar á þessu ári.

Stofn­unin leggur til ýmsar aðgerðir til að takast á við aðstæð­urnar, m.a. að félags­leg aðstoð til barna í við­kvæmri stöðu verði styrkt. Bæta þurfi úr þegar í stað, áður en ástandið versnar enn frekar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár