Þórunn og Sigmundur vilja efsta sætið fyrir norðan

Það stefnir enn á ný í for­ystu­slag hjá Fram­sókn­ar­flokk­inum í Norð­aust­ur­kjör­dæmi.

Þórunn Egilsdóttir vill leiða lista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi.
Þórunn Egils­dóttir vill leiða lista Fram­sókn­ar­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þórunn Egils­dóttir, þing­kona Fram­sókn­ar­flokks­ins úr Norð­aust­ur­kjör­dæmi, sæk­ist eftir efsta sæti á lista Fram­sókn­ar­flokks­ins í kjör­dæm­inu fyrir kom­andi kosn­ingar. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­maður flokks­ins, hefur átt það sæti á síð­ustu tveimur kjör­tíma­bilum.

Þórunn greinir frá þessu í færslu á Facebook-síðu sinni í dag. Hún var í öðru sæti fram­boðs­list­ans fyrir kosn­ing­arnar í fyrra þegar Sig­mundur Davíð fékk yfir­burða­kosn­ingu í efsta sæti list­ans.

Þórunn segir kosn­ing­arnar eiga eftir að snú­ast „öðru fremur um trú­verð­ug­leika og traust í stjórn­málum“. „Ég er reiðu­búin að vinna með öllu fram­sókn­ar­fólki til að ná aftur sterkri stöðu flokks­ins í kjör­dæm­inu.“

„Meira en einn af hverjum þremur lands­mönnum vill sjá Fram­sókn­ar­flokk­inn í rík­is­stjórn. Nýtum þann byr og að því vil ég vinna landi og þjóð til heilla,“ skrifar Þórunn.

Fjögur sótt­ust eftir efsta sæti list­ans í fyrra. Auk Þórunnar og Sig­mundar vildu Hösk­uldur Þór­halls­son og Líneik Anna Sæv­ars­dóttir leiða list­ann. Hösk­uldur tók ekki sæti á list­anum í fyrra og vék af þingi.

Tveir þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins eru úr Norð­aust­ur­kjör­dæmi á því þingi sem er senn á enda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár