Stóru seðlarnir

Verð­miklir pen­inga­seðlar eru víðar umtals­efni en á Íslandi. Í Evrópu verður stærsti evru­seð­ill­inn brátt tek­inn úr umferð og í Danmörku er hafin umræða um að taka 1.000 krón­urnar úr umferð enda nota fáir þessa seðla nema í svarta hag­kerf­inu.

Danir íhuga nú að kippa stærsta seðlinum sem til er í dönskum krónum úr umferð.
Danir íhuga nú að kippa stærsta seðl­inum sem til er í dönskum krónum úr umferð.

Flestum er lík­lega í fersku minni sú hug­mynd Bene­dikts Jóhann­es­sonar fjár­mála­ráð­herra að íslenski 10.000 króna seð­ill­inn skyldi tek­inn úr umferð. Svipuð umræða fer þessa dag­ana fram í Danmörku, um danska 1.000 króna seð­il­inn og 500 evra seð­il­inn hverfur úr umferð á næsta ári.

[links]Íslenski tíu þús­und króna seð­ill­inn var kynntur með pomp og prakt í lok sept­em­ber 2013. Seðla­bank­inn efndi til sér­stakrar sýn­ingar á seðl­inum í til­efni útgáf­unnar og undir lok októ­ber­mán­aðar þetta sama ár var seð­ill­inn kom­inn í umferð. Fram­hlið­ina prýðir teikn­ing af Jónasi Hall­gríms­syni „lista­skáld­inu góða“ og á bak­hlið má sjá sýn­is­horn af rit­hönd skálds­ins og teikn­ingu hans af fjall­inu Skjald­breið.

Til­gang­ur­inn með útgáfu tíu þús­und króna seð­ils­ins var „að fækka seðlum í umferð og gera greiðslu­miðlun lipr­ari“ eins og sagði í frétt Seðla­banka Íslands. Fram kom að í upp­hafi voru prent­aðar fjórar millj­ónir seðla og að inn­kaups­verð hvers seð­ils (eins og Seðla­bank­inn orð­aði það) væri 29 krónur, til sam­an­burðar væri kostn­aður við prentun fimm þús­und króna seð­ils 18 krónur. Munurinn skýrð­ist af fleiri og flókn­ari örygg­is­þáttum.

Ýmsum þótti útgáfa þessa nýja seð­ils tíma­skekkja og bentu á dæmi um að nokkur lönd hefðu einmitt hætt útgáfu seðla með háu verð­gildi með þeim rökum að eng­inn hefði þörf fyrir slíka seðla og þeir gögn­uð­ust fyrst og fremst ýmis konar ljós­fæl­inni starf­semi.

[adspot]

Fjármálaráðherra og herörin

Í júní á þessu ári kynnti Benedikt Jóhann­es­son fjár­mála­ráð­herra nið­ur­stöður tveggja starfs­hópa sem meðal ann­ars skoð­uðu umfang skattaund­an­skota. Á frétta­manna­fundi sagði ráð­herr­ann stefnt að því að taka tíu þús­und króna seð­il­inn úr umferð. Rök­semdir ráð­herr­ans voru að þessi seð­ill gagn­að­ist kannski fyrst og fremst þeim sem hefðu óhreint mjöl í skatta- og gjalda­poka­horn­inu og þar væru umtals­verðar upp­hæðir í umferð.

Ráð­herr­ann sagði þetta lið í þeirri herör sem nauð­syn­legt væri að skera upp gegn skattsvikum. Seðlar væru eft­ir­læti þeirra sem ekki vildu láta rekja slóð sína og ekki væri ástæða til að gera þeim lífið létt­ara.

500 evru seðillinn

Árið 2002 setti evr­ópski seðla­bank­inn í umferð 500 evru seðil, það eru um það bil 62 þús­und íslenskar krónur. Strax eftir að 500 evru seð­ill­inn var settur í umferð heyrð­ust margar og háværar gagn­rýn­is­raddir. Sú gagn­rýni snéri fyrst og fremst að því að svo stór seð­ill gagn­að­ist fyrst og fremst glæpa­mönnum og í þeirra hópi yrði hann ugg­laust mjög vin­sæll. Komið hefur á dag­inn að almenn­ingur hefur lítt eða ekki notað 500 evra seð­il­inn, né séð hann öðru­vísi en á mynd. Seð­ill­inn hefur verið kall­aður „Bin Laden“, vísar til þess að allir viti um hann, viti hvernig hann líti út, á mynd, en eng­inn hafi séð hann. Í breskri rann­sókn kom í ljós að allt að 90 pró­sent 500 evra seðla í Bret­landi (sem er ekki með í evru­sam­starf­inu) væru í höndum glæpa­manna. Samtök breskra versl­un­ar­manna og breskir bankar sam­mælt­ust um að taka ekki á móti 500 evra seðl­inum og með því móti gera það ómögu­legt að nota seð­il­inn. Stjórn­völd á Spáni telja að 25 pró­sent allra 500 evra seðla sem settir hafa verið í umferð séu í höndum glæpa­manna þar í landi.

Umdeildur frá upphafi

500 evra seð­ill­inn var frá upp­hafi gagn­rýndur í mörgum aðild­ar­ríkjum evr­unnar en átti sér líka stuðn­ings­menn. Meðal þeirra sem studdu 500 evru seð­il­inn voru Þjóð­verjar. Þar er löng hefð fyrir notkun reiðu­fjár, nær fjórar af hverjum fimm greiðslum í Þýska­landi eru inntar af hendi með seðlum og mynt. Mjög lít­ill hluti þeirra greiðslna fer þó fram með „Bin Laden“. Seðla­banki Evrópu tók lengi vel lítið mark á þess­ari gagn­rýni en þó fór svo að í maí 2016 til­kynnti bank­inn að 500 evra seð­ill­inn yrði tek­inn úr umferð í árs­lok 2018.

Danir og 1.000 króna seðillinn

Árið 1998 setti Danski seðla­bank­inn í umferð 1.000 króna seðil. Samkvæmt rann­sókn sem fram fór á vegum Danska við­skipta­há­skól­ans, CBS, er mjög lítið af 1.000 króna seðl­inum (um það bil 16 þús­und íslenskar) í umferð, en Danir eru sem kunn­ugt er ekki aðilar að evru­sam­starf­inu.

Jan Dams­gaard sem gerði áður­nefnda rann­sókn sagði í við­tali að 1.000 króna seð­ill­inn væri dýnu­seð­ill, gjald­mið­ill glæpa­manna, til pen­inga­þvættis og til að borga fyrir „svarta“ vinnu, almenn­ingur not­aði ekki seð­il­inn. „Í Danmörku er það einkum eldra fólk sem notar reiðufé og það borgar ekki með 1.000 króna seðl­inum þegar það kaupir mjólk­ur­pott og smjör­stykki, það er bein­línis smeykt við svona stóran seðil,“ sagði Jan Dams­gaard.

Einingarlistinn vill 1.000 króna seðilinn burt

Fyrir skömmu sam­þykkti þing­flokkur danska Ein­ing­ar­list­ans ályktun þess efnis að 1.000 króna seð­ill­inn yrði tek­inn úr umferð. Flokk­ur­inn hefur 14 þing­menn þeirra 179 sem sitja á danska þing­inu, Fol­ket­inget. Þingmenn danska Þjóð­ar­flokks­ins, næst fjöl­menn­asta flokks­ins á þing­inu (hefur 37 þing­menn) vill fá að sjá nán­ari rök­semdir fyrir þess­ari ákvörðun en hefur tekið jákvætt í ályktun Ein­ing­ar­list­ans. Benny Engelbrecht, þing­maður Sós­í­alde­mókrata, stærsta flokks­ins á þing­inu (með 46 þing­menn), sagði í við­tali við Jót­land­s­póst­inn að ef Danski seðla­bank­inn mæli með að 1.000 króna seð­ill­inn verði aflagður styðji flokk­ur­inn það. Þing­mað­ur­inn bætti því að sjálfur hefði hann aldrei séð 1.000 króna seð­il­inn, nema á mynd. Tals­maður Ein­ing­ar­list­ans sagð­ist vona að ályktun flokks­ins yrði til þess að koma umræðum um „hinn ónauð­syn­lega 1.000 króna seðil“ af stað. Hvort það verður skal ósagt látið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár