Lýsa yfir alvarlegum áhyggjum af málflutningi Þórólfs

Hin ýmsu sam­tök og hags­muna­fé­lög hafa tekið sig saman og skorað á sótt­varna­lækni að biðj­ast afsök­unar á ummælum sínum um flótta­fólk og hæl­is­leit­endur. Þau séu til þess fallin að ala á ótta og for­dómum í garð þessa hóps.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir Mynd: Almannavarnir

„Við und­ir­rituð lýsum yfir alvar­legum áhyggjum af þeim mál­flutn­ingi sem Þórólfur Guðnason, sótt­varna­læknir, hafði uppi á sótt­varn­ar­fundi þann 4. júní síð­ast­lið­inn er hann ræddi kór­ónu­veirusmit sem greinst hafði á meðal flótta­fólks á Íslandi.“

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu tutt­ugu félaga­sam­taka vegna ummæla sótt­varna­læknis um hópsmit á meðal flótta­fólks. Greint var frá því í fjöl­miðlum í síð­ustu viku að sjö umsækj­endur um alþjóð­lega vernd hefðu greinst með kór­ónu­veirusmit.

Í yfir­lýs­ing­unni er sér­stak­lega vísað í ummæli Þórólfs sem hann lét falla í kvöld­fréttum Stöðvar tvö en þar sagði hann að það væru alls konar sjón­ar­mið sem hann hefði heyrt að væru uppi hjá þessum hópi. „Þetta er nátt­úru­lega fólk sem er oft með aðrar skoð­anir á til dæmis COVID og smit­sjúk­dómum og bólu­setn­ingum. Það er erfitt að nálg­ast það út frá þeim vinkli. Svo geta líka komið sjón­ar­mið sem gera það að verkum að það geti breytt stöðu þeirra um alþjóð­lega vernd hér, að stjórn­völd geti þá gripið til ráð­staf­ana. Þetta er mjög flókið og það er erfitt að segja hvað er hvað í þessu. En það er greini­legt að við erum með hópa sem eru með aðrar skoð­anir og álit á því sem við erum að gera, sem getur gert okkur dálítið erf­ið­ara fyrir, nátt­úru­lega,“ sagði hann.

Ummælin til þess fallin að ala á ótta og fordómum

Þá telja þau sem und­ir­rita yfir­lýs­ing­una að þessi ummæli séu til þess fallin að ala á ótta og for­dómum í garð flótta­fólks og hæl­is­leit­enda og verði það að telj­ast alvar­legt að þeim sé haldið fram í fjöl­miðlum gagn­rýn­is­laust. Það eigi sér­stak­lega við þegar um er að ræða ein­stak­ling sem alþjóð lítur til og hlustar á eftir leið­bein­ingum og upp­lýs­ingum á tímum heims­far­ald­urs.

„Flótta­fólk og hæl­is­leit­endur eru ein­hver jað­ar­sett­asti hópur sam­fé­lags­ins. Sem slíkur er hóp­ur­inn í afar við­kvæmri stöðu gagn­vart COVID-19 eins og öðrum heilsu­far­s­vanda á borð við þung­lyndi, kvíða og sjálfs­vígs­hugs­anir, sem mælist umtals­vert hærri á meðal þessa hóps en ann­arra. Það er því eðli­legt að gera þá kröfu til fólks í áhrifa­stöðum að vanda sér­lega vel til orða sinna í umfjöllun um jafn jað­ar­settan hóp og raun ber vitni, hóps sem þess fyrir utan á sér ekki marga málsvara í sam­fé­lag­inu. Ólíklegt er að Þórólfur hafi vís­vit­andi beitt orð­ræðu sem við­heldur brenni­merk­ingu og jað­ar­setn­ingu flótta­fólks en því miður var það raunin óháð ásetn­ingi.

Þess má vænta að fólk á flótta hafi alls konar skoð­anir á COVID, bólu­setn­ingum og smit­sjúk­dómum, enda er um að ræða gíf­ur­lega stóran og fjöl­breyttan hóp fólks, líkt og Evr­ópu­búar eru. Tvennt í mál­flutn­ingi Þórólfs er einkar var­huga­vert; í fyrsta lagi að tala á þann veg að allir hæl­is­leit­endur og flótta­fólk, eða a.m.k. stór hluti þeirra, deili skoð­unum um COVID og bólu­setn­ingar sem stang­ast á við skoð­anir „okkar“ (hver svo sem þessi „við“ erum). Í öðru lagi er mjög var­huga­vert og í raun rang­færsla að til­einka ein­hverjum einum hóp þann eig­in­leika að hafa „aðrar skoð­anir og álit á því sem við erum að gera“ hvað varðar smit­varnir og bólu­setn­ingar þegar það liggur ljóst fyrir að í nær öllum Vest­ur­löndum hafa hópar fólks, sem flest er fætt og upp­alið á Vest­ur­löndum, farið fyrir mót­mælum, her­ferðum og dreift ýmis­konar rang­færslum um bólu­setn­ingar, COVID og smit­sjúk­dóma­varnir. Til að mynda eru það nær ein­göngu hvítir Íslend­ingar sem fara fyrir slíkum hópi hér­lendis,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Vilja að Þórólfur biðjist afsökunar

Þá er enn fremur bent á að sumir hæl­is­leit­endur hafi ástæðu til að ótt­ast að nei­kvæð nið­ur­staða úr kór­ónu­veiru­skimun verði til þess að þeir verði sendir úr landi nauð­ugir.

„Þeir hæl­is­leit­endur sem fram til þessa hafa hafnað skimun fyrir brott­vísun hafa verið með öllu ein­kenna­lausir og hafa ekki haft ástæðu til að ótt­ast það að vera smit­aðir af veirunni. Sé það raunin að sumir úr hópi flótta­fólks og hæl­is­leit­enda van­treysti yfir­völdum og þori ekki að reiða sig á að kór­ónu­veiru­skimanir séu fram­kvæmdar með þeirra hags­muni að leið­ar­ljósi hvetjum við, und­ir­rituð, sótt­varna­lækni og sam­starfs­fólk hans til að eiga í opnu sam­tali við flótta­fólk og hæl­is­leit­endur á Íslandi, rétt eins og aðra íbúa lands­ins, og finna út úr því í sam­ein­ingu hvernig hægt er að tryggja hags­muni allra sem byggja landið, flótta­fólks og hæl­is­leit­enda þar með talið, gagn­vart COVID-19.“

Skora þau jafn­framt á Útlend­inga­stofnun að hætta taf­ar­laust öllum brott­vís­unum á hæl­is­leit­endum og taka aftur upp þjón­ustu við heim­il­is­lausa hæl­is­leit­endur „enda ljóst að heim­il­is­leysi og fátækt er stór áhættu­þáttur þegar kemur að per­sónu­legum og sam­fé­lags­legum sótt­vörnum. Einnig skorum við á Þórólf Guðnason að biðj­ast afsök­unar á fyrr­nefndum ummælum sínum og gæta í fram­haldi ítr­ustu var­úðar þegar kemur að því að alhæfa um skoð­anir ákveð­inna hópa sam­fé­lags­ins, þá sér­stak­lega hópa sem nú þegar eru ber­skjald­aðir fyrir auknum for­dómum og útskúfun.“

Hér fyrir neðan má sjá lista yfir þau samtök sem skrifa undir yfirlýsinguna:

  • No Borders Iceland
  • Solaris - hjálp­ar­sam­tök fyrir hæl­is­leit­endur og flótta­fólk á Íslandi
  • Refugees in Iceland
  • Réttur Barna á Flótta
  • Stelpur Rokka
  • Black Lives Matter Iceland
  • IWW Ísland / Heims­sam­band verka­fólks á Íslandi
  • Rauða Regn­hlífin Red Umbrella Iceland
  • Slagtog - félaga­sam­tök um femíníska sjálfs­vörn
  • Félagið Ísland-Palest­ína
  • Samtökin '78
  • Tabú
  • WOMEN In Iceland, Samtök kvenna af erlendum upp­runa á Íslandi
  • Snar­rótin
  • Vaka - Hags­muna­fé­lag stúd­enta
  • Q - félag hinsegin stúd­enta / Q - Queer Student Association
  • Trans Ísland
  • Ísland-kúr­distan
  • Gras­rót­ar­hópar í Andrými
  • Röskva – sam­tök félags­hyggju­fólks við Háskóla Íslands
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár