Vigdís vildi þingrof og kosningar strax

Formaður fjár­laga­nefndar var sam­mála til­lögu for­sæt­is­ráð­herra um að rjúfa þing og boða til kosn­inga. Hún furðar sig á að odd­vitar þriggja kjör­dæma Fram­sókn­ar­flokks­ins sitji ekki í rík­is­stjórn. Almennar leik­reglur flokk­anna hafi verið beygðar.

Vigdís var sammála Sigmundi Davíð um að rjúfa þing strax og boða til kosninga.
Vigdís var sam­mála Sigmundi Davíð um að rjúfa þing strax og boða til kosn­inga. Mynd: Anton Brink.

Vigdís Hauks­dóttir, for­maður fjár­laga­nefndar, studdi til­lögu Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra um að þing verði rofið og kosn­ingar boð­aðar án tafar. 

„Þegar þing­flokks­fundur var hald­inn eftir fund Sig­mundar á Bessa­stöðum gaf ég út að ég mundi styðja þá til­lögu að flokk­arnir end­ur­nýj­uðu umboðið,” segir Vigdís í sam­tali við Kjarnann. „Ég hefði talið það lang­besta kost­inn að rjúfa þing og efna til kosn­inga, á þeim for­sendum hver staðan er og þeirrar háværu kröfu. Það hefði verið eðli­leg­ast í stöð­unni.”

Eins og komið hefur fram veitti Ólafur Ragnar Grímsson, for­seti Íslands, Sigmundi Davíð ekki þetta umboð.

Furðar sig á ráðherravali flokksins

Sigurður Ingi Jóhanns­son, verð­andi for­sæt­is­ráð­herra, til­kynnti á blaða­manna­fundi í gær að Lilja Alfreðs­dóttir yrði næsti ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins í rík­is­stjórn. Lilja hefur unnið sem verk­efn­is­stjóri í for­sæt­is­ráðu­neyti Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar.

Vigdís Hauks­dóttir, for­maður fjár­laga­nefndar, furðar sig á þessu, þó að hún und­ir­striki að Lilja sé mjög fær kona með yfir­grips­mikla þekk­ingu og að henni lít­ist vel á að hún komi inn í rík­is­stjórn. 

„Það er bara annar hlutur heldur en hvernig raðað er á ráð­herra­lista,” segir Vigdís. Hefðin sé að odd­vitar flokka í kjör­dæmum lands­ins fái ráð­herra­sæti.

Þrír oddvitar Framsóknar án ráðherrastóls

„Eftir dag­inn í dag verða þrjú kjör­dæmi sem eiga ekki odd­vita í rík­is­stjórn­inni: Reykja­vík norður og suður og svo norð­austur kjör­dæmi eftir að Sig­mundur hættir,” segir hún. „En það er til­laga stjórnar flokks­ins að hafa þetta með þessum hætti.”

Spurð hvort hún hafi sóst eftir ráð­herra­emb­ætti í gær seg­ist Vigdís ekki form­lega hafa gert það, ekk­ert frekar en eftir kosn­ing­arnar 2013.

„Þessi óskrif­aða regla liggur svo sem í augum uppi, þannig að ég held að þing­menn þurfti ekki að minna á sig. Þetta eru almennar leik­reglur flokk­anna,” segir hún. „En þó að ég geri athuga­semd við þetta ráð­herra­val, þá óska ég Lilju alls hins besta í störfum, þar sem ég er jákvæð og bjart­sýn að eðl­is­fari.”

Hægt er að fylgj­ast með atburðum dags­ins hér í beinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár