Nýr fjárfestingarsjóður stofnaður til að styðja við norræn sprotafyrirtæki

The Nordic Web hefur nú sett á lagg­irnar sjóð til að fjár­festa í nor­rænum sprota­fyr­ir­tækjum. Yfir 50 fjár­festar koma að verk­efn­inu og munu íslensk sprota­fyr­ir­tæki fá tæki­færi til að taka þátt í verk­efn­inu.

Neil Murray, stofnandi The Nordic Web.
Neil Murray, stofn­andi The Nordic Web. Mynd: Mille Stengaard

The Nordic Web hefur stofnað sjóð sem mun fjár­festa í tíu til fimmtán nor­rænum sprota­fyr­ir­tækjum næstu 12 mán­uð­ina. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá miðl­inum.

Meðal íslenskra fjár­festa sem koma að sjóðnum eru Helga Valfells, Hekla Arn­ar­dóttir og Jenný Ruth Hrafns­dóttir hjá Crowberry Capital, Georg Ludviks­son hjá Meniga og Kristinn Árni Lár Hró­bjarts­son hjá Kolibri and Northstack.

Ásamt þeim muni evr­ópskir fjár­festar taka þátt í verk­efn­inu, Martin Mignot hjá Index Ventures, Christoph Janz hjá Point Nine Capital og Philipp Moehring og Andy Chung hjá Ang­elList Europe.

Yfir 50 með­limir verða þátt­tak­endur í nýja sjóðnum, sam­kvæmt yfir­lýs­ingu frá The Nordic Web, og eru þeir hvaðanæva úr heim­inum og með margs konar reynslu að baki. Sjóð­ur­inn mun fjár­festa í Danmörku, Finn­landi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð.

Sjóð­ur­inn mun starfa undir nafni The Nordic Web og er í raun fram­hald af starfi þeirra. The Nordic Web er fjög­urra ára gam­all mið­ill og er mark­mið þeirra er að gefa nor­rænum nýsköp­unar- og sprota­fyr­ir­tækjum tæki­færi til að koma starf­semi sinni á fram­færi og vekja athygli á því sem er að ger­ast í þessum löndum.

Neil Murray, stofn­andi The Nordic Web, seg­ist sjálfur vera stoltur af þeim stuðn­ingi sem sjóð­ur­inn hefur fengið en eins og áður segir taka yfir 50 manns þátt í verk­efn­inu. Með því að nýta þekk­ingu og kunn­áttu fjár­fest­ing­ar­að­il­ana þá sé hægt að hjálpa og styðja við ný sprota­fyr­ir­tæki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár