Sex ríkustu þjóðir heims taka á móti 8,88% flóttafólks

Fátækari lönd í nágrenni stríðs­hrjáðra svæða hýsa helm­ing alls flótta­fólks í heim­inum. Sex rík­ustu lönd í heimi hafa aðeins tekið á móti 8,88 pró­sent. 53 hæl­is­um­sóknir hafa verið sam­þykktar á Íslandi í ár.

Mikill fjöldi flóttafólks hefst við í fjölmennum flóttamannabúðum í nágrenni heimalands þeirra. Þessi unga stúlka býr í flóttamannabúðum í Tyrklandi eftir að hafa flúið Íslamska ríkið í Sýrlandi.
Mikill fjöldi flótta­fólks hefst við í fjöl­mennum flótta­manna­búðum í nágrenni heima­lands þeirra. Þessi unga stúlka býr í flótta­manna­búðum í Tyrk­landi eftir að hafa flúið Íslamska ríkið í Sýrlandi. Mynd: EPA

Sex auð­ug­ustu lönd heims taka aðeins á móti 8,88 pró­sent flótta­fólks í heim­inum. Sam­an­lögð lands­fram­leiðsla þess­ara sex auð­ug­ust landa nemur 56,6 pró­sent sam­an­lagðrar lands­fram­leiðslu allra ríkja heims. Nágranna­ríki stríðs­hrjáðra landa á borð við Sýrland taka á móti helm­ingi alls flótta­fólks í heim­inum en sam­an­lögð lands­fram­leiðsla þeirra landa er 1,9 pró­sent af fram­leiðslu alls heims­ins.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu Oxfam, sam­tökum 18 stofn­anna sem starfa í 94 löndum um allan heim til að finna lausn á fátækt og rang­læti í heim­inum. Ríkustu löndin sex, Banda­ríkin, Kína, Japan, Þýska­land, Bretland og Frakk­land hafa sam­tals tekið á móti 2.119.264 flótta­mönnum. Þýska­land hefur tekið á móti flestum eða 736.740; það er um það bil helm­ingur af því sem hin löndin fimm hafa gert sam­an­lagt.

Aldrei hafa fleiri þurft að flýja heim­kynni sín vegna stríðs, ofbeldis eða ofsókna síðan flótta­manna­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna hóf að skrá fjölda flótta­fólks í heim­inum. Í lok árs 2015 voru 65,3 milljón manns á hrakn­ingum. Mikill meiri­hluti þessa fólks, eða um 40,8 millj­ónir, er á flótta í eigin landi, þe. hafa ekki lagt á flótta til ann­arra landa. Í skýrslu flótta­manna­stofn­un­ar­innar um mál­efni flótta­fólks árið 2015 er bent á að ef þessi hópur væri þjóð væri hún í 21. sæti yfir stærstu þjóðir í heimi. 3,2 millj­ónir hafa óskað eftir hæli í öðrum löndum og bíða ákvörð­unar iðn­væddra þjóða.

Í skýrslu Oxfam er bent á að skylda ríkja til að veita þessu fólki skjól, mat og heil­brigð­is­þjón­ustu, auk starfa og mennt­unar, fellur heldur á fátæk­ari lönd og er í ósam­ræmi við ríki­dæmi land­anna. Mörg þeirra landa sem neyð­ast til að taka á móti flótta­fólk­inu eiga í vand­ræðum með að veita sínu eigin fólki mann­sæm­andi tæki­færi eða fórna stöð­ug­leika í land­inu til að taka á móti flótta­fólki.

Helm­ingur flótta­fólks, þe. þeirra sem lagt hafa á flótta frá heima­landi sínu, — alls 21,3 millj­ónir í lok árs 2015 — hefur kom­ist undir vernd­ar­væng stjórn­valda í Jórdanía, Tyrk­landi, Palest­ínu, Pakistan, Líbanon og Suður-Afríku. Sam­an­lagt bera þessi lönd ábyrgð á 1,9 pró­sent lands­fram­leiðslu allra landa heims.

Sex ríkustu lönd í heimi og fjöldi flóttafólks*

  • Banda­ríkin - 559.370 manns
  • Kína - 301.729 manns
  • Japan - 16.305 manns
  • Þýska­land - 736.740 manns
  • Bretland - 168.937 manns
  • Frakk­land - 336.183 manns
  • Samtals - 2.119.264 manns eða 8,88% af fjölda flótta­fólks í heim­inum.

Sex lönd sem taka á móti mestum fjölda flóttafólks**

  • Jórdanía - 2.806.414 manns
  • Tyrkland - 2.753.760 manns
  • Palest­ína - 2.051.096 manns
  • Líbanon - 1.535.662 manns
  • Suður-Afríka - 1.217.708 manns
  • Samtals - 11.932.244 manns eða 50.02% af fjölda flótta­fólks í heim­inum.

*Ríkustu löndin bera ábyrgð á 56,6% af samanlagði landsframleiðslu allra ríkja heims.

**Löndin bera ábyrgð á 1.9% af samanlagðri landsframleiðslu allra ríkja heims.

Búist við 1.000 hælisumsóknum á Íslandi í ár

Á Íslandi hefur fjöldi umsókna um hæli fjölgað í takti við auk­inn fjölda flótta­fólks í heim­inum. Á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2016 var fjöldi umsækj­enda um vernd orð­inn 274 og hafði þre­fald­ast frá árinu áður. „Ef horft er til síð­ustu mán­aða árs­ins 2015 sést að fjöldi umsókna er í takt við þró­un­ina sem hófst síð­ast­liðið haust. Sú þróun átti sér ekki bara stað á Íslandi heldur um alla Evrópu,“ sagði Þór­hildur Hagalín, upp­lýs­inga­full­trúi Útlend­inga­stofn­unar, í sam­tali við Kjarnann 20. júní. Hún bjóst við því að umsóknum um hæli muni fjölga eftir því sem líður á árið og hugs­an­lega verða nærri 1.000 í ár.

310 mál umsækj­enda um vernd voru afgreidd á fyrri hluta árs­ins, sem eru næstum jafn­mörg mál og voru afgreidd allt árið í fyrra. Af þessum 310 málum var um helm­ing­ur, eða 159 mál, tek­inn til efn­is­legrar með­ferð­ar. Af þessum 159 var 106 synjað en 53 ein­stak­lingar fengu vernd, við­bót­ar­vernd eða dval­ar­leyfi af mann­úð­ar­á­stæðum hér á landi. Sautján ein­stak­lingar frá Írak fengu vernd hér, tíu frá Íran og níu frá Sýr­landi. Fimm Afg­anir fengu vernd á Íslandi. Af þeim sem var synjað um vernd hér­lendis voru 60 Alb­anir og 21 frá Makedón­íu. Fjórum Kósóvó-­búum og fjórum Serbum var neitað um vernd, sem og þremur Úkra­ínu­mönn­um. Ein­stak­lingum frá Tyrk­landi, Níger­íu, Marokkó, Króa­tíu, Íran og Afganistan var neitað um vernd á Íslandi, sem og einum rík­is­fangs­lausum ein­stak­ling­i.

Ný útlend­inga­lög voru sam­þykkt á Alþingi 2. júní síð­ast­lið­inn. Haft var eftir Unni Brá Kon­ráðs­dóttur, for­manni alls­herjar- og mennta­mála­nefndar Alþingis, í Kjarn­anum 15. júní að nýju lögin væru til þess að skýra og skil­greina hlut­verk stjórn­valda í þessum mála­flokki. Ekki væri verið að semja lögin með það í huga að hafa eft­ir­lit með útlend­ingum, eins og áður hafði verið gert, heldur til þess að veita fólki rétt­indi. Full­trúar allra stjórn­mála­flokka komu að gerð nýju lag­anna.

Ísland er meðal rík­ustu landa í heimi, sé miðað við íbúa­fjölda, þe. færri deila heild­ar­lands­fram­leiðslu Íslands en til dæmis svipað stóru hag­kerfi. Ísland er í 20. sæti á lista World Bank yfir mestu lands­fram­leiðslu á hvern íbúa í heimi, rétt á undan Belgíu. Sem dæmi má benda á heild­ar­stærð íslenska hag­kerf­is­ins er á stærð við Bosníu. Þar búa rúm­lega þrjár og hálf milljón manns og er landið þess vegna í 101. sæti á lista World Bank yfir lands­fram­leiðslu á hvern íbúa.

Viðbrögðin ekki rétt

Sam­komu­lag Evópu­ríkja og Tyrk­lands um tak­mörkun á flótta­manna­straumnum til Evrópu hefur verið umdeildur. Með sam­komu­lag­inu varð fjöldi fólks fastur í Grikk­landi, oft óað­vit­andi um laga­lega stöðu sína. Með samn­ingnum var Evrópu lokað við syðri landa­mæri Tryklands. Þessi aðgerð hefur hrundið af stað dómínóá­hrifum í heim­inum; Ken­íu­menn segj­ast nú eiga rétt á því að loka land­inu sínu fyrir Sómölum sem flýja ástandið þar í landi. Allt er þetta, að mati skýrslu­höf­unda Oxfam, þvert á þá alþjóða­samn­inga sem ríkja um mál­efni flótta­fólks.

„Allar rík­is­stjórnir hafa, að sjálf­sögðu, rétt til þess að tryggja öryggi lands síns. En það verður að vera hægt að tryggja án þess að alþjóða­samn­ingar um öryggi flótta­fólks séu brotnir,“ segir í skýrslu Oxfam. „Í hvert sinn sem stjórn­völd snúa bak­inu við flóta­fólki setja þau ber­skjald­að­asta fólk í heimi í hættu­lega og ógn­væn­lega stöðu.“

Og vandi þeirra sem finna sér skjól er oft sá að hæl­is­leit­endur mega ekki vinna fyrir sér. Séu hæl­is­leit­endur gripnir við það eitt að geta átt í sig og á geta þeir sum­staðar átt hættu á að vera vikið úr landi. Börn á flótta eiga sum­staðar ekki einu sinni kost á að fara í skóla, þannig að „heilu kyn­slóð­unum er neitað um menntun,“ sé orð­rétt haft upp úr skýrslu Oxfam.

Margir þeirra sem eru á flótta geta ekki einu sinni hugsað sér að snúa nokk­urn­tíma aftur til heima­lands­ins. Þar er yrði ein­fald­lega enn hættu­legra fyrir þetta fólk að vera.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flóttamannavandi

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár