Margfalt fleiri óska verndar á Íslandi

Nítján prósent þeirra sem sóttu um vernd eru börn. Fimm voru fylgdarlaus ungmenni.
Nítján pró­sent þeirra sem sóttu um vernd eru börn. Fimm voru fylgd­ar­laus ung­menni. Mynd: EPA

Margfalt fleiri sóttu um alþjóð­lega vernd á Íslandi á fyrri helm­ingi þessa árs en á sama tíma­bili í fyrra. 274 ein­stak­lingar sóttu um vernd í ár, sam­an­borið við 86 ein­stak­linga á sama tíma­bili í fyrra. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Útlend­inga­stofnun. Umsækj­endum um vernd fór að fjölga veru­lega í ágúst í fyrra, og sú þróun hefur haldið áfram. Útlend­inga­stofnun gerir ráð fyrir að á bil­inu 600 til 1000 ein­stak­lingar muni óska verndar á þessu ári.

Flestir frá Balkanskaga

Stór hluti þeirra sem sóttu um vernd hér­lendis er sem fyrr fólk frá ríkjum Balkanskag­ans. Stærsti hóp­ur­inn eru Albanir, en 69 Albanir sóttu um vernd á fyrstu sex mán­uðum árs­ins. Næst­fjöl­menn­asti hóp­ur­inn eru Makedónar, 35 sóttu um vernd. Samtals komu 43% umsækj­end­anna frá Balkanskag­anum.

25 ein­stak­lingar frá Írak sóttu hér um vernd, 19 frá Sýrlandi og 12 frá Palest­ínu. Ellefu komu frá Nígeríu, átta frá Íran og sjö frá Afganistan.

53 af 310 fengu vernd á Íslandi

310 mál umsækj­enda um vernd voru afgreidd á fyrri hluta árs­ins, sem eru næstum jafn­mörg mál og voru afgreidd allt árið í fyrra. Af þessum 310 málum var um helm­ingur, eða 159 mál, tek­inn til efn­is­legrar með­ferðar.

Af þessum 159 var 106 synjað en 53 ein­stak­lingar fengu vernd, við­bót­ar­vernd eða dval­ar­leyfi af mann­úð­ar­á­stæðum hér á landi. Sautján ein­stak­lingar frá Írak fengu vernd hér, tíu frá Íran og níu frá Sýrlandi. Fimm Afganir fengu vernd á Íslandi. Af þeim sem var synjað um vernd hér­lendis voru 60 Albanir og 21 frá Makedóníu. Fjórum Kósóvó-búum og fjórum Serbum var neitað um vernd, sem og þremur Úkra­ínu­mönnum. Ein­stak­lingum frá Tyrk­landi, Nígeríu, Marokkó, Króatíu, Íran og Afganistan var neitað um vernd á Íslandi, sem og einum rík­is­fangs­lausum ein­stak­lingi.

Þá vekur athygli að tveimur Banda­ríkja­mönnum, tveimur Kanda­mönnum og einum Breta var synjað um vernd hér á landi.

103 vísað burt á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar

103 ein­stak­lingum var vísað úr landi á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar, þannig að Evr­ópu­ríki sem þeir komu til áður en til Íslands var komið taki mál þeirra fyrir. Fjórtán ein­stak­lingar höfðu fengið vernd í öðru ríki og 34 drógu umsóknir sínar til baka eða hurfu.

Stærsti hóp­ur­inn sem var sendur til ann­ars Evr­ópu­ríkis á grund­velli reglu­gerð­ar­innar voru Írakar, 20 tals­ins. Sextán Albanir voru sendir úr landi á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar og fimmtán Afganir. Fjórtán Gana-búar voru sendir burt á þessum grund­velli og níu Níger­íu­menn. Sex Íranir voru á meðal þeirra sem voru sendir til ann­arra Evr­ópu­ríkja á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar.

Miklu fleiri karlar en konur

Miklu fleiri karlar en konu sótt­ust eftir vernd. 75% umsækj­enda voru karlar og 25% konur. Í fjöl­menn­asta hópnum, meðal Albana, voru 46 karlar og 13 konur. Þá sóttu 20 karlar frá Írak um vernd en tvær konur, og tólf karlar frá Sýrlandi en þrjár konur.

Þá voru 81% umsækj­enda full­orðnir en 19% börn. Fimm fylgd­ar­laus ung­menni sóttu um vernd á fyrri helm­ingi árs­ins.

Kæru­nefnd útlend­inga­mála kvað upp 148 úrskurði á fyrri hluta árs­ins og var í 82-83% til­vika sam­mála ákvörð­unum Útlend­inga­stofn­unar og stað­festi þær. 82% til­vika þar sem mál voru afgreidd á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar og 83% þegar mál höfðu verið tekin til efn­is­með­ferðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár