Lítið bólar á greiðslulausn Reiknistofu bankanna

Greiðslu­lausn sem Reikni­stofu bank­anna keypti af dönsku fyr­ir­tæki í slita­með­ferð, með það fyrir augum að hægt væri að aðlaga hana hratt að íslenskum mark­aði, er ekki enn komin í almenna notkun rúm­lega tveimur árum síðar.

Reikni­stofa bank­anna (RB) keypti greiðslu­lausn af dönsku fyr­ir­tæki sum­arið 2017. Lausn sem danskir bankar höfðu ákveðið að hætta nota fyrir aðra greiðslu­lausn, MobilePay. RB keypti lausn­ina með það fyrir augum að hægt væri að aðlaga lausn­ina hratt að íslenskum mark­aði. Nú rúmum tveimur árum síðar er greiðslu­lausn RB, Kvitt, hins vegar ekki enn komin í almenna notkun.

Lausn sem danskir bankar ákváðu að nota ekki

[links]Í júní 2017 und­ir­rit­aði Reikni­stofa bank­anna undir sam­starf við danska greiðslu­þjónstu­fyr­ir­tækið Swipp. Markmið sam­starfs­ins var að inn­leiða nýja lausn fyrir farmsíma­greiðslur hér á landi.

Swipp hafði verið tekið slita­með­ferð í Danmörku árið áður þegar eig­endur þess höfðu ákveðið að félagið myndi hætta að starfa sem greiðslu­þjón­ustu­veit­andi. Á heima­síðu fyr­ir­tæk­is­ins segir að Swipp hafi hætt starf­semi sinni í febr­úar 2017 sökum þess að danskir bankar, sem jafn­framt voru eig­endur Swipp, hafi sam­ein­ast um aðra greiðslu­lausn en Swipp. Sam­keppn­is­fyr­ir­tæki þeirra MobliePay var valið í stað­inn.

Elsa Ágústs­dótt­ir, mark­aðs­stjóri Reikni­stofu bank­anna, sagði í sam­tali við Kjarnann í júní 2017 að staða Swipp hefði verið ljós þegar sam­starfið var und­ir­rit­að. Samkvæmt Elsu þá ákváðu eig­end­ur Swipp að taka félagið úr afsk­rán­ing­ar­ferli og breyta við­skipta­mód­el­inu, enda hefði komið í ljós að mik­ill áhugi væri á und­ir­liggj­andi tækni á öðrum mörk­uð­u­m.

Aðspurð hver ástæða þess væri að RB væri að taka í notkun lausn sem danskir bankar ákváðu að nota ekki sagði Elsa hana aðal­lega vera vegna þess að hversu hratt væri hægt að aðlaga hana að íslenskum mark­aði. Lausnin hefði einnig verið hönnuð frá upp­hafi með það í huga að hún gæti þjón­u­stað mörg fjár­mála­fyr­ir­tæki í einu.

Greiðslulausn sem fækka á milliliðum

Í upp­hafi stóð til að lausnin yrði tekin í notkun haustið 2017. Ferlið dróst hins vegar og var félagið Kvitt ehf. stofnað á árinu 2018. Hlutverk félags­ins er að sinna þróun greiðslu­lausnar RB sem hlaut nafnið Kvitt.

Kvitt lausnin byggir á beinum milli­færslum milli við­skipta­vina og sölu­að­ila, sem sagt pen­ing­ur­inn fer beint út af banka­reikn­ingi við­skipta­vin­ar­ins inn á reikn­ing sölu­að­ila. Kvitt er því lýst sem greiðslu­lausn sem fækkar milli­liðum.

Samkvæmt heima­síðu Kvitt felur lausnin í sér mik­inn sparnað og hag­ræði fyrir sölu­að­ili og þæg­indi fyrir kaup­endur.

Kvitt var síðan kynnt í sér­blaði Frétta­blaðs­ins í byrjun árs 2018 og var lausnin jafn­framt prufu­keyrð hjá sam­starfs­að­ilum Kvitt, þar á meðal Krónunni, Ikea, Elko, Húsa­smiðj­unni. Haft er eftir starfs­mönnum RB í umfjöllun Frétta­blaðs­ins að þær próf­anir hafi gengið vel. 

Hugbúnaður fyrir 80 milljónir

Lítið hefur hins vegar heyrst um Kvitt síðan greiðslu­lausnin var kynnt til leiks á sam­fé­lags­miðlum í októ­ber í fyrra og voru tekjur félags­ins núll krónur árið 2018, sam­kvæmt árs­reikn­ingi Kvitt ehf..

Í árs­reikn­ingi félags­ins kemur jafn­framt fram að Kvitt ehf. hafi keypt hug­búnað af móð­ur­fé­lagi sínu, Reikni­stofu bank­anna, að fjár­hæð 80 millj­ónir króna í fyrra. Jafn­framt segir í árs­reikn­ing­unum að hluti af starf­semi Kvitt ehf. sé að inn­leiða aðkeyptan hug­búnað og selja aðgang að honum.

Um er að ræða greiðslu­lausn Swipp sem keypt var af danska fyr­ir­tæk­inu sum­arið 2017, líkt og kom fram hér fyrir ofan.

RB í eigu íslensku bankanna

Í svari RB við fyr­ir­spurn Kjarnans um tekjur Kvitt ehf. á árinu 2019 segir að lítið hafi verið að ger­ast með Kvitt-lausn­ina síð­ustu mán­uði. Hún sé ekki komin í almenna notkun og innan RB sé verið að ræða næstu skref. 

Reink­stofa bank­anna er þjón­ustu­fyr­ir­tæki sem þróar og rekur fjár­mála­lausnir, þar á meðal öll megin greiðslu­kerfi lands­ins. Samkvæmt heima­síðu fyr­ir­tæk­is­ins er hlut­verk þeirra að auka hag­kvæmni í tækni­rekstri íslenskra fjár­mála­fyr­ir­tækja en helstu við­skipta­vinir RB eru fjár­mála­fyr­ir­tæki og vátrygg­inga­fé­lög.

RB er í meiri­hluta eigu stóru við­skipta­bank­anna þriggja. Í eig­enda­hópnum eru einnig Kviku­banki, Valitor, Borgun og Sambandi íslenskra spari­sjóða.

Skerfur Apple af hverri færslu trúnaðarmál

Arion banki, Lands­bank­inn og Íslands­banki byrj­uðu að bjóða við­skipta­vinum sínum að greiða með greiðslu­lausn banda­ríska tölvu­ris­ans App­le í maí 2019. Með App­le Pa­y ­geta not­end­ur iPho­ne, App­le Watch, iPa­d og Mac-­tölva greitt fyrir vörur og þjón­ustu í versl­unum

Í svari Íslands­banki við fyr­ir­spurn Kjarnans, um ástæðu þess að greiðslu­lausnin Apple Pay hafi orðið fyrir val­inu hjá bank­anum, segir að bank­inn hafi áður kynnt greiðslur með síma í Android símum en til þess að bjóða upp á sömu þjón­ustu í iOS símum fæli það í sér sam­starf við Apple um greiðslu­lausn. Jafn­framt segir í svar­inu að mikil eft­ir­spurn hafi verið eftir þess­ari þjón­ustu hér á landi. Svipaða sögu má segja um svör Lands­bank­ans.

Í svari Arion banka segir að þegar bank­inn hafi farið af stað með að skoða far­síma­greiðslu­lausnir hafi verið byrjað á að spyrj­ast fyrir um stöðl­uðu greiðslu­lausn­irnar frá aðilum eins og Google Pay, Samsung Pay og Apple Pay. Arion banki hafi jafn­framt unnið með Deja mobile við að þróa sér­staka greiðslu­lausn fyrir Android tæki.

Bank­arnir þrír gefa ekki upp hver skerfur Apple er af hverri færslu þar sem það sé trún­að­ar­mál milli bank­anna og Apple.

Vonar að Apple Pay ýti við markaðinum

Ragn­hildur Geirs­dóttir for­stjóri RB sagði í við­tali við Vísi í sumar að hún hefði viljað sjá Íslend­inga vera fljót­ari að til­einka sér far­síma­greiðslur og að hún von­aði að vin­sældir Apple Pay ýtti við mark­að­inum.

Aðspurð hvort sam­keppnin við Apple Pay myndi reyn­ast erfið fyrir Kvitt nefndi hún að þetta væri ekki alveg sömu lausn­irnar.

„Kvitt gengur út á það að milli­færa frá einum reikn­ingi til ann­ars, ólíkt Apple Pay sem er tengt korti. Kvitt er þannig skil­virk­ari og ódýr­ari leið sem byggir á innviðum í greiðslu­miðlun,“ sagði Ragn­hildur og benti jafn­framt á að tals­verðar breyt­ingar væru vænt­an­legar á korta og greiðslu­mörk­uðum, meðal ann­ars vegna inn­leið­ingar PSD2-til­skip­un­ar­innar hér á landi.

Breytingar á greiðsluþjónustu í kjölfar innleiðingar PSD2

PSD2 til­skip­unin er upp­færsla á sam­ræmdu reglu­verki í kringum greiðslu­þjón­ustu á Evru­svæð­inu. Til­skip­unin gerir meðal ann­ars þriðja aðila, þar á meðal greiðslu­þjón­ustu­fyr­ir­tækjum, kleift að virkja greiðslu beint við banka neyt­anda. Ef sam­þykki eig­anda reikn­ings liggur fyrir þá þurfi ekki nokk­urt við­skipta­sam­band að vera á milli þeirra og við­skipta­bank­anna sjálfra.

Dæmi um lausn sem kynni að falla undir breyt­ing­una er Apple Pay. Með notkun lausn­ar­innar gætu við­skipta­vinir greitt með sím­anum sínum án þess að þurfa að nota greiðslu­kort.

Um þessar mundir er verið að færa þessa til­skipun í lög um alla Evrópu, þar á meðal á Íslandi þó enn sé nokkuð í að hún taki gildi hér á landi. Í umfjöllun Seðla­bank­ans um til­skip­un­ina segir að kredit­korta­notkun á Íslandi sé mun algeng­ari en í öðrum ríkjum Evr­ópu en sam­kvæmt bank­anum er kostn­aður sam­fé­lags­ins af þeim mun meiri en vegna debet­korta. Kredit­kortum fylgi milli­gjöld og minna gagn­sæi í við­skipt­um, en öllum færslu­gjöldum sé að öllum lík­indum velt út í verð­lag.

Því segir Seðla­bank­inn að búast megi við lækkun á verði fjár­mála­þjón­ustu nái aðrir greiðslu­mögu­leikar að keppa við kredit­korta­þjón­ust­u með inn­leið­ingu til­skip­un­ar­innar hér á landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár