Staða Swipp var alltaf ljós

Elsa Ágústs­dóttir, mark­aðs­stjóri Reikni­stofu bank­anna, segir stöðu Swipp alltaf hafa verið ljósa þegar sam­starfið var und­ir­ritað, en fyr­ir­tækið skráði sig í slita­með­ferð í fyrra.

Swipp er danskt fjármálafyrirtæki sem býður upp á nýja tæknilausn í greiðslumiðlun.
Swipp er danskt fjár­mála­fyr­ir­tæki sem býður upp á nýja tækni­lausn í greiðslu­miðlun. Mynd: Úr safni.

Elsa Ágústs­dóttir, mark­aðs­stjóri Reikni­stofu bank­anna, segir stöðu Swipp alltaf hafa verið ljósa þegar sam­starfið var und­ir­ritað. RB samdi við Swipp þann 22. Júní, en félagið var í slita­með­ferð í fyrra og hefur fært alla við­skipta­vini sína inn í annað félag. 

[links]Félagið Swipp hóf slita­ferli í lok síð­asta árs þegar eig­endur þess höfðu ákveðið að félagið myndi hætta að starfa sem greiðslu­þjón­ustu­veit­andi. „Nýlega ákváðu hins vegar eig­endur Swipp að taka félagið úr afskrán­ing­ar­ferli og breyta við­skipta­mód­el­inu, enda hafi komið í ljós að mik­ill áhugi væri á und­ir­liggj­andi tækni á öðrum mörk­uðum.“ Rekstr­ar­fyr­ir­komu­lag fyr­ir­tæk­is­ins hefur þó breyst, en Swipp er bara með sölu­skrif­stofu í dag.

Aðspurð af hverju RB sé að taka í notkun lausn sem danskir bankar ákváðu ekki að nota segir Elsa hana aðal­lega vera vegna þess að hversu hratt sé hægt að aðlaga hana að íslenskum mark­aði. Hún sé einnig hönnuð frá upp­hafi með það í huga að hún geti þjón­u­stað mörg fjár­mála­fyr­ir­tæki í einu. Ástæða þess að dönsku bank­arnir hafi hætt við sam­starf við Swipp sé sú að allir danskir bankar ákváðu að sam­ein­ast um eina greiðslu­lausn á sein­asta ári, en sam­keppn­is­fyr­ir­tæki Swipp, MobilePay, hafi verið valið í stað­inn fyrir Swipp.

Elsa segir stöðu Swipp alltaf hafa verið ljósa og samn­ing­ur­inn sem gerður var fyrir helgi hafi verið góður fyrir báða aðila.

Kjarninn birti frétt fyrr í dag þar sem rang­lega var haldið fram að Swipp væri gjald­þrota félag. Raunin er hins vegar sú að það hafi verið í slita­með­ferð, en fréttin hefur nú verið upp­færð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár