Danska fyrirtækið Swipp, sem Reiknistofa bankanna hóf samstarf við fyrir helgi, var tekið í slitameðferð í fyrra. Til stendur að þjónustan yrði sett í gang í haust.
[links]Vísir greindi frá samstarfi við Swipp síðasta fimmtudag, en markmið þess var að innleiða nýja lausn fyrir farsímagreiðslur hér á landi. Í fréttinni segir að með lausninni sé viðskiptavinum gert kleift að greiða í verslunum, millifæra og innheimta greiðslur með notkun símans. Haft var eftir Friðriki Þór Snorrasyni, forstjóra RB, þar sem hann sagði samstarfið við Swipp hafa gengið „vonum framar“. Einnig var tekið viðtal við Martin Andersen, forstjóra Swipp, þar sem hann sagði tæknina eiga fullt erindi inn á aðra markaði.
[adspot]Ekki virðist allt hafa gengið vel hjá fyrirtækinu, en það var tekið til slitameðferðar í Danmörku í fyrra. Einnig, ef farið er inn á heimasíðu Swipp kemur fram að fyrirtækið hafi hætt starfsemi sinni í febrúar og allir viðskiptavinir þess hafi færst yfir í annað fyrirtæki.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir