Apple Pay komið til landsins

Við­skipta­vinir Arion banka og Lands­bank­ans geta nú borgað fyrir vörur og þjón­ustu í versl­unum og á net­inu með Apple Pay, greiðslu­lausn banda­ríska tölvu­fyr­ir­tæk­is­ins Apple.


Kort­hafar Lands­bank­ans og Arion banka geta nú tengt kortin sín við Apple Pay. Með Apple Pay geta not­endur iPhone, Apple Watch, iPad og Mac-tölva greitt fyrir vörur og þjón­ustu í versl­unum víða um heim sem og á net­inu. Banda­ríska tölvu­fyr­ir­tækið Apple hefur boðið upp á greiðslu­þjón­ust­una frá 2014 en hún hefur til þessa ekki verið aðgengi­legt með íslenskum greiðslu­kortum.

Íslandsbanki mun einnig bjóða upp á þjónustuna á næstunni

Í til­kynn­ingum frá Arion banka og Lands­bank­anum segir að með Apple Pay njóti við­skipta­vinir áfram allra fríð­inda og trygg­inga sem tengj­ast greiðslu­kort­unum þeirra. Jafn­framt segir að Apple Pay sé ein­falt og öruggt í notkun en þegar greiðslu­kort er tengt við Apple Pay, vist­ast korta­núm­erið hvorki í tækið né á net­þjóna Apple. Þess í stað er sér­stökum sýnd­ar­núm­erum úthlutað, þau dulkóðuð og geymd með öruggum hætti í því tæki sem notað er, hvort sem það er iPhone sími, Apple Watch úr eða Mac tölva. Jafn­framt þarf not­andi að auð­kenna sig með fingrafara- eða and­litsskanna iPhone sím­ans áður en greiðsla er fram­kvæmd.

,,Það er ánægju­legt að geta nú boðið við­skipta­vinum Arion banka að greiða fyrir vörur og þjón­ustu í gegnum Apple Pay. Banka­þjón­usta er að breyt­ast mikið og hratt og við höfum verið í far­ar­broddi um tækninýj­ungar. Apple Pay er ein­falt í notkun og smellpassar við þá stefnu okkar að bjóða upp á fram­sækna og þægi­lega banka­þjón­ustu hvar og hvenær sem er, “ segir Stefán Pét­urs­son, banka­stjóri Arion banka.

Edda Her­manns­dóttir, for­stöðu­maður sam­ein­aðs sviðs mark­aðs­mála, sam­skipta og grein­ingu hjá Íslands­banki, segir í sam­tali við Kjarnann að Apple Pay muni einnig standa við­skipta­vinum Íslands­banka til boða á næst­unni en að ekki sé ljóst nákvæm­lega hvenær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár