Þeir sem fengu íslenskan ríkisborgararétt í fyrra flestir Pólverjar

Á síð­asta ári fengu 569 ein­stak­lingar íslenskan rík­is­borg­ara­rétt. Af þeim höfðu lang­flestir áður verið með pólskt rík­is­fang eða 149.

Í fyrra fengu 569 ein­stak­lingar íslenskan rík­is­borg­ara­rétt og er það nokkur fækkun frá fyrra ári þegar 637 ein­stak­lingar fengu íslenskt rík­is­fang. Af þeim 569 ein­stak­lingum sem fengu íslenskt rík­is­fang höfðu lang­flestir áður verið með pólskt rík­is­fang eða 149 og næst flestir verið með rík­is­fang frá Sýrlandi, eða 57.

Þetta kemur fram á vef Hag­stof­unnar.

Árið 1991 fengu fleiri karlar en konur íslenskt rík­is­fang en á hverju ári eftir það hafa konur verið í meiri­hluta nýrra íslenskra rík­is­borg­ara. Það átti einnig við í fyrra þegar 310 konur fengu íslenskan rík­is­borg­ara­rétt en 259 karlar.

Þann 1. jan­úar síð­ast­lið­inn voru 50.272 inn­flytj­endur á Íslandi eða 14,1 pró­sent mann­fjöld­ans. Það er fjölgun frá því í fyrra þegar þeir voru 12,6 pró­sent lands­manna, eða 43.736. Fjölgun inn­flytj­enda heldur því áfram en frá árinu 2012 hefur þeim fjölgað úr því að vera 8 pró­sent mann­fjöld­ans upp í 14,1 pró­sent.

Inn­flytj­endum af annarri kyn­slóð fjölg­aði einnig á milli ára, þeir voru 4.861 í fyrra en eru nú 5.263. Sam­an­lagt er fyrsta og önnur kyn­slóð inn­flytj­enda 15,6 pró­sent af mann­fjöld­anum og hefur það hlut­fall aldrei verið hærra. Ein­stak­lingum með erlendan bak­grunn, öðrum en inn­flytj­endum, fjölg­aði einnig lít­il­lega milli ára, og eru nú 6,9 pró­sent mann­fjöld­ans.

Samkvæmt skil­grein­ingu Hag­stof­unnar er inn­flytj­andi ein­stak­lingur sem er fæddur erlendis og á for­eldra sem einnig eru fæddir erlendis, svo og báðir afar og ömmur. Inn­flytj­endur af annarri kyn­slóð eru ein­stak­lingar sem fæddir eru á Íslandi og eiga for­eldra sem báðir eru inn­flytj­endur. Fólk er talið hafa erlendan bak­grunn ef annað for­eldrið er erlent. Ein­stak­lingur sem fædd­ist erlendis en á for­eldra sem báðir eru fæddir hér á landi telst einnig hafa erlendan bak­grunn.

Íbúum frá Norðurlöndunum fækkar

Samkvæmt tölum Þjóð­skrár voru alls 48.996 erlendir rík­is­borg­arar búsettir hér á landi þann 1. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn og hefur þeim fjölgað um 4.840 frá 1. des­em­ber 2018 eða um 11 pró­sent. Á sama tíma fjölg­aði íslenskum rík­is­borg­urum sem eru búsettir hér á landi um 0,6 pró­sent.

[links]Flestir erlendir rík­is­borg­arar búsettir hér á landi eru frá Póllandi eða 20.537 og 4.587 ein­stak­lingar eru með lit­háískt rík­is­fang. Pólskum rík­is­borg­urum hefur fjölgað um 7 pró­sent frá 1. des­em­ber á síð­asta ári eða um 1.347 frá 1. des­em­ber árið þar á undan og lit­háískum rík­is­borg­urum um 493 á sama tíma­bili eða um 12 pró­sent.

Mesta hlut­falls­leg fjölgun frá 1. des­em­ber síð­ast­liðnum var hjá rík­is­borg­urum frá Venesu­ela eða um 277 pró­sent en þeir eru í dag 147 tals­ins en voru þann 1. des­em­ber árið 2018 39 tals­ins.

Íbúum frá öðrum Norð­ur­löndum hefur fækkað hér á landi. Meðal ann­ars hefur dönskum rík­is­borg­urum fækkað um 3,5 pró­sent, norskum rík­is­borg­urum um 6 pró­sent og sænskum rík­is­borg­urum um 5,3 pró­sent. Hins vegar fjölg­aði finnskum rík­is­borg­urum um 2,1 pró­sent.

Innflytjendur 27 prósent íbúa á Suðurnesjunum

Samkvæmt Hag­stof­unni bjuggu þann 1. jan­úar síð­ast­lið­inn 35.341 fyrstu og ann­arrar kyn­slóðar inn­flytj­endur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eða 63,6 pró­sent allra inn­flytj­enda á land­inu. Hlutfall inn­flytj­enda af mann­fjölda var mest á Suð­ur­nesjum en þar voru 26,6 pró­sent inn­flytj­enda af fyrstu eða annarri kyn­slóð. Næsthæst er hlut­fallið á Vest­fjörðum þar sem 19 pró­sent mann­fjöld­ans voru inn­flytj­endur eða börn þeirra. Lægst er hlut­fallið á Norð­ur­landi vestra en þar voru 7,5 pró­sent mann­fjöld­ans inn­flytj­endur eða börn þeirra.

Á árinu 2018 fengu 247 ein­stak­lingar alþjóð­lega vernd, hafa þeir aldrei verið jafn margir en þeir sem fengu slíka vernd árið 2017 voru 226. Flestir, eða 78, höfðu íraskan rík­is­borg­ara­rétt, þar á eftir komu 28 flótta­menn með sýr­lenskt rík­is­fang. Umsækj­endum á árinu fækk­aði hins vegar um tæp­lega þriðj­ung frá árinu 2017. Þeir voru 731 árið 2018, sam­an­borið við 1.068 árið 2017.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár