M (12,5%): Gamalt fólk af Suðurlandi með litla menntun og lágar tekjur en virkt Costco-kort

Kjarninn hefur fengið aðgang að miklu magni gagna úr síð­ustu könn­unum MMR sem sýna hver lík­leg­asta áferð með­al­kjós­anda hvers flokks er. Hér að neðan er umfjöllun um kjós­endur Mið­flokks­ins.

Sá flokkur sem er mest afger­andi kjós­enda­hóp­inn er Mið­flokk­ur­inn. Það ætti ekki að koma mikið á óvart, enda póli­tísk stefna hans að vera oft afar afger­andi í mjög umdeildum málum. Sam­an­lagt mæld­ist fylgi Mið­flokks­ins 12,5 pró­sent í könn­unum MMR í ágúst og sept­em­ber. Það er meira fylgi en flokk­ur­inn fékk í einu kosn­ing­unum sem hann hefur tekið þátt í haustið 2017.

Upp­gangur Mið­flokks­ins hafði fyrst áhrif á gengi Fram­sókn­ar­flokks­ins, enda um klofn­ings­brot úr þeim flokki að ræða, en síðan þá virð­ist flokk­ur­inn fyrst og síð­ast taka fylgi frá Sjálf­stæð­is­flokknum. Mið­flokk­ur­inn virð­ist tala skýrt til íhaldsama og þjóð­ern­is­lega arms Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Það sést vel á þeim breyt­ingum sem orðið hafa á fylgi flokk­anna tveggja í ákveðnum ald­urs­hópum og á ákveðnum lands­svæðum. Þar sem Mið­flokk­ur­inn fer upp, þar dalar Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn í takt.

Mið­flokkur er flokkur karla. Rúmlega tveir af hverjum þremur kjós­endum hans eru af því kyni. Kynja­mun­ur­inn er ekki jafn afger­andi hjá neinum öðrum flokki. Mið­flokk­ur­inn er líka flokkur eldri kjós­enda. Í ald­urs­hópnum 50 til 67 ára er hann t.d. næst vin­sæl­asti flokkur lands­ins, á eftir Sjálf­stæð­is­flokknum. Hjá fólki undir þrí­tugu mælist fylgi hans hins vegar 7,9 pró­sent.

Mið­flokk­ur­inn er lands­byggð­ar­flokkur. Ef kjós­endur á Suð­ur­landi réðu Íslandi einir væri Mið­flokk­ur­inn stærsti flokkur lands­ins, með fjórð­ung atkvæða. Á Aust­ur­landi er hann næst stærsti flokk­ur­inn, ein­ungis gamli móð­ur­flokk­ur­inn Framsókn er þar stærri. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þar sem stærstur hluti kjós­enda býr, er fylgi Mið­flokks­ins hins vegar vel undir heild­ar­fylgi, eða 9,6 pró­sent.

Því minni sem æðsta menntun er, því lík­legri er við­kom­andi til að kjósa Mið­flokk­inn. Hann nýtur raunar mest stuðn­ings allra flokka hjá þeim kjós­enda­hópi sem hefur mest lokið grunn­skóla­námi, en 17,4 pró­sent þeirra eru á Mið­flokksvagn­inum. Þegar kemur að þeim sem lokið hafa háskóla­námi mælist Mið­flokk­ur­inn hins vegar með minnst fylgi allra flokka sem næðu inn manni á þing miðað við núver­andi stöðu í könn­unum. Einungis 6,1 pró­sent þeirra myndu kjósa Flokkinn.

Sömu sögu er að segja af því þegar tekjur eru skoð­aðar. Mið­flokk­ur­inn nýtur mest fylgis allra flokka hjá þeim sem eru með undir 400 þús­und krónur á mán­uði í heim­il­is­tekjur, en 16,6 pró­sent þess hóps styðja flokk­inn. Fylgi hans hjá öðrum tekju­hópum mælist undir heild­ar­fylgi.

Mið­flokks­fólk er sá kjós­enda­hópur sem reynd­ist lík­leg­astur til að ætla ekk­ert að ferð­ast í sum­ar­frí­inu sínu sam­kvæmt könn­unum MMR. Einungis um þriðj­ungur kjós­enda hans not­ast við Spotify og þeir eru allra kjós­enda ólík­leg­astir til að vera virkir á Instagram, þar sem sama hlut­fall, þriðj­ungur, er með skráðan aðgang. Þá eru kjós­endur Mið­flokks­ins ólík­leg­astir allra kjós­enda að hafa breytt hegðun sinni á ein­hver hátt til að lág­marka áhrfi sín á umhverfi og loft­lags­mál síð­ast­liðið ár. Það er kannski ekki skrýtið vegna þess að Mið­flokks­fólk hefur minnstar áhyggjur allra af hlýnun jarðar, en ein­ungis 39 pró­sent þeirra hafa slíkar. Þá hafa kjós­endur flokks­ins minnstar áhyggjur allra kjós­enda af hús­næð­is­málum.

Mið­flokks­fólk er hins vegar mjög hrifið af því að neyta mjólk­ur­vara og deila topp­sæt­inu þar með Fram­sókn­ar­kjós­endum. Þeir voru líka mjög á móti þriðja orku­pakk­anum, mest allra á móti upp­töku veggjalda og allra kjós­enda lík­leg­astir til að vera með virkt Costco aðild­ar­kort. Þeim fannst hins vegar Ára­mótaskaupið minnst fyndið, og um 56 pró­sent kjós­enda Mið­flokks­ins taldi það hafa verið frekar eða mjög slakt.

Grein­ingin er hluti af stærri umfjöllun þar sem kjós­endur allra flokka sem eiga full­trúa á Alþingi eru teknir fyrir. Hún byggir á ítar­legum gögnum frá MMR úr könn­unum sem fyr­ir­tækið hefur fram­kvæmt á fylgi flokka í ágúst og sept­em­ber 2019 auk fjölda ann­arra sér­tækra kann­ana um ýmis álita­mál sem MMR hefur fram­kvæmt á þessu ári. Hægt er að lesa heild­ar­um­fjöll­un­ina hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár