Landsbankinn gæti tapað milljörðum vegna skaðleysisábyrgðar

Lands­bank­inn sam­þykkti skað­leys­is­á­byrgð gagn­vart ýmsum málum þegar hann seldi hlut sinn í Valitor til Arion banka. Mál dótt­ur­fé­lags Wikileaks gæti kostað rík­is­bank­ann millj­arða króna.

Lands­bank­inn sam­þykkti að veita Arion banka skað­leysi gegn fjöl­mörgum málum sem höfðuð höfðu verið gegn Valitor þegar bank­inn seldi 38 pró­sent hlut sinn í fyr­ir­tæk­inu til Arion banka í des­em­ber 2014 á 3,6 millj­arða króna. Málin eru skaða­bóta­mál vegna sam­keppn­islaga­brota Valitor og vegna rift­unar fyr­ir­tæk­is­ins á samn­ingi við íslenskt dótt­ur­fé­lag Wikileaks og sam­starfs­að­ila þess. Lands­bank­inn hefur þegar end­ur­greitt 147 millj­ónir króna vegna tveggja mála og reiknar með því að þurfa að greiða 92 millj­ónir króna til við­bótar. Rík­is­end­ur­skoðun segir hins vegar í skýrslu sinni um eigna­sölu Lands­bank­ans á árunum 2010-2016, sem birt var á mánu­dag, að skað­leys­is­á­byrgðin gagn­vart mál­inu sem dótt­ur­fé­lag Wikileaks hefur höfðað gæti sett strik í reikn­ing­inn. Þar hafi dóm­kvaddir mats­menn kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að tjónið sem Valitor hafi valdið sé upp á 3,2 millj­arða króna og bótakrafa stefn­enda er upp á fimm millj­arða króna. Nið­ur­staða dóm­stóla liggur ekki fyrir en ljóst er að Lands­bank­inn mun þurfa að greiða 38 pró­sent þeirrar fjár­hæðar sem mun falla stefn­endum í skaut, en þó ekki meira en sem nemur sölu­verði eign­ar­hlutar bank­ans í Valitor, eða 3,6 millj­arða króna. Því gæti farið svo að Lands­bank­inn þurfi að greiða umtals­verðan hluta þeirrar upp­hæðar sem hann fékk fyrir hlut sinn í Valitor til baka.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Lands­bank­anum vörð­uðu umrædd skað­leys­is­á­kvæði mál sem óvissa var um´á þeim tíma þegar salan átti sér stað, en höfðu átt sér stað á meðan að Lands­bank­inn var hlut­hafi í félag­inu. „Með þessum ákvæðum var Lands­bank­inn að ábyrgj­ast að eignin (þ.e. hluta­bréfin í Valitor) væri á tíma við­skipt­anna haldin til­teknum kostum, sem umsamið kaup­verð tók mið af. Þetta er ekki óvana­legt í við­skiptum með óskráða eign­ar­hluti í fyr­ir­tækjum þegar óvissa ríkir um nið­ur­stöðu í til­teknum álita­málum,“ segir í svari bank­ans við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið.

Munu draga úr endanlegum ávinningi

Þegar Lands­bank­inn seldi 38 pró­sent hlut sinn í Valitor til Arion banka í des­em­ber 2014 var sér­stakt skað­leys­is­á­kvæði sett var í kaup­samn­ing­inn. Þar Lands­bank­inn veitti Arion banka skað­leysi vegna ýmissa til­greindra mála. Skað­leysið fólst ann­ars vegar í því að Lands­bank­inn myndi end­ur­greiða Arion banka hluta af sölu­verð­inu ef Valitor yrði fyrir tjóni vegna skaða­bóta­mála sem höfðuð höfðu verið gegn fyr­ir­tæk­inu.

Hins vegar veitti Lands­bank­inn Arion banka skað­leysi í þrjú ár frá und­ir­ritun kaup­samn­ings ef í ljós kæmi að Valitor yrði gert að greiða skaða­bætur og/eða stjórn­valds­sektir vegna brota á sam­keppn­is­lögum og varða önnur atvik eða mál. Skað­leysi sam­kvæmt þessu ákvæði náði þó ekki til atvika sem félagið vissi um eða mátti vita um. Þá náði það ein­ungis til stjórn­valds­sekta eða skaða­bóta umfram 300 millj­óna króna. og bæri Lands­bank­inn þá ábyrgð á 38 pró­sent af tjóni umfram þá upp­hæð. Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um eigna­sölu Lands­bank­ann segir: „Ljóst er að umrædd skað­leys­is­á­kvæði munu draga nokkuð úr end­an­legum ávinn­ingi Lands­bank­ans af sölu eign­ar­hlutar síns í Valitor. “

Wikileaks-málið getur sett strik í reikninginn

Þau mál sem fyrir lá að Valitor gæti þurft að greiða skaða­bætur út af voru tvenns konar. Annars vegar mál vegna brota á sam­keppn­is­lögum. Sam­keppn­is­eft­ir­litið sektaði Valitor um 500 millj­ónir króna árið 2013 fyrir að hafa mis­notað mark­aðs­ráð­andi stöðu sína og brotið gegn skil­yrðum eft­ir­lits­ins. Hæsti­réttur stað­festi brot Valitor í apríl á þessu ári og sekt­ina sömu­leiðis. Lands­bank­inn sam­þykkti að greiða 38 pró­sent vegna þeirra atvika sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið til­greindi í and­mæla­skjali frá því í mars 2013 um ætluð brot Valitors, Borgunar og korta­út­gef­enda á sam­keppn­is­lögum. Hann sam­þykkti einnig að greiða sama hlut­fall af skaða­bótum sem Valitor þyrfti mögu­lega að greiða Korta­þjón­ust­unni vegna meintra brota Valitor á sam­keppn­is­lögum. Hösk­uldur H. Ólafsson, banka­stjóri Arion banka sem veitt var skað­leysi, var for­stjóri Valitor þegar sam­keppn­islaga­brot fyr­ir­tæk­is­ins voru framin.

En sú skað­leys­is­á­byrgð sem Lands­bank­inn sam­þykkti sem getur helst sett strik í reikn­ing­inn fyrir Lands­bank­ann, og lækkað mjög end­an­legt sölu­virði Valitor, er ábyrgð sem hann gekkst í vegna skaða­bóta­máls sem Datacell og Sunshine Press Production, íslensks dótt­ur­fé­lags Wikileaks, hafa höfðað fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­ness vegna meints tjóns vegna rift­unar Valitors á sölu­að­ila­samn­ingi við Datacell. Hæsti­réttur hafði þegar stað­fest heim­ilda­skort Valitors til að rifta samn­ingnum við Datacell og Sunshine Press þegar kaup­samn­ing­ur­inn á eign­ar­hlutnum í Valitor var gerður en fjár­hæð bóta­kröf­unnar lá ekki fyrir. Það gerir hún nú.

Fara fram á fimm milljarða í bætur

Sunshine Press krefur Valitor um fimm millj­arða króna í bætur og vexti vegna tjóns sem það varð fyrir þegar Valitor lok­aði fyrir greiðslu­gátt fyr­ir­tæk­is­ins. RÚV greindi frá þessu í frétt í maí.

Bóta­fjár­hæðin er byggð á mati dóm­kvaddra mats­manna sem komust að því að tjónið vegna aðgerða Valitor væri 3,2 millj­arðar króna. Við þá upp­hæð bæt­ast vextir. Mats­menn­irnir voru skip­aðir eftir að sátt náð­ist á milli deilu­að­ila um að skipa þá til að meta tjónið. Nið­ur­staða dóm­stóla í mál­inu liggur enn ekki fyrir.

Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar segir að ljóst sé „að Lands­bank­inn mun þurfa að greiða 38 pró­sent fjár­hæð­ar­innar en þó ekki meira en sem nemur sölu­verði eign­ar­hlut­ar­ins.“ Komist dóm­stólar að þeirri nið­ur­stöðu að Valitor eigi að greiða Datacell og Sunshine Press þá upp­hæð sem dóm­kvöddu mats­menn­irnir mátu tjónið á yrði hlut­deild Lands­bank­ans í henni 1,2 millj­arðar króna. Ef dóm­stólar telja að fjár­krafa stefn­enda sé rétt þarf Lands­bank­inn að greiða 1,9 millj­arða króna.

Það er umtals­vert hærri tala en bank­inn gerir ráð fyrir að greiða vegna skað­leys­is­á­kvæð­anna. Í skýrsl­unni segir að Lands­bank­inn hafi þegar greitt tæp­lega 147 millj­ónir króna vegna þeirra og geri ráð fyrir að greiða 92 millj­ónir króna í við­bót.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár