Segir lagafrumvarp um makrílveiðar vera óttalega hrákasmíð

Jón Bjarna­son, fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, segir frum­varp Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar um mak­ríl­veiðar sem sam­þykkt var á Alþingi í gær ekki verja meg­in­hag­muni þjóð­ar­innar hvað varðar stjórn­un, ráð­stöfun og nýt­ingu auð­lind­ar­inn­ar.

Jón Bjarna­son, fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, segir að frum­varp Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, sem sam­þykkt var á Alþingi í gær vera „ótta­leg hráka­smíð“. Hann segir frum­varpið ekki verja meg­in­hags­muni þjóð­ar­innar hvað varðar stjórnun, ráð­stöfun og nýt­ingu auð­lind­ar­innar. Hann gagn­rýnir jafn­framt dóm Hæsta­réttar sem kveð­inn var upp í des­em­ber í fyrra þar sem ríkið var gert skaða­bóta­skylt vegna úthlut­unar mak­ríl­kvóta. Þetta kemur fram í sam­tali hans við Frétta­blaðið í dag.

Úthlutunin sem byggði á reglugerðum Jóns ekki í samræmi við lög

[links]Í des­em­ber síð­ast­liðnum komst Hæsti­réttur að þeirri nið­ur­­­stöðu að ríkið væri skaða­bóta­­skylt vegna fjár­­tjóns sem út­­gerð­ar­fé­lög hefðu orðið fyr­ir vegna reglu­­gerðar um skipt­ingu mak­ríl­kvóta á ár­inu 2011 til 2014, sem reynd­ist ólög­­mæt. Úthlut­unin var byggð á reglu­gerðum Jóns Bjarna­sonar þáver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra. Hæsti­réttur dæmd­i ís­­­lenska ríkið skaða­­bóta­­­skylt gagn­vart út­­­gerð­unum Hug­in og Ísfé­lagi Vest­­­manna­eyja en engar bætur voru þó dæmdar til útgerð­­ar­­fyr­ir­tækj­anna heldur ein­ungis við­­ur­­kennd bóta­­skylda.

Um miðjan júní rann út frestur útgerða til að birta stefnu vegna árs­ins 2015 því fyrn­ing­ar­reglan nemur fjórum árum. Rík­is­lög­manni hefur borist stefnur frá útgerð­ar­fé­lögum síð­ustu vikur en ekki hefur verið tekið saman hvað margar þær séu. Frétta­stofa RÚV greindi frá því í gær að mál Ísfé­lags­ins og Hugins gegn rík­inu verði þing­fest í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur á fimmtu­dag­inn í næstu viku og varðar það skaða­bóta­kröfur vegna áranna 2011 til 18. Í til­felli Ísfé­lags­ins nema kröf­urnar tæpum fjórum millj­örðum króna Vinnslu­stöðin í Eyjum og Eskja á Eski­firði hafa líka birt stefnur.

Dregur hlutleysi Hæstaréttar í efa

Jón segir í sam­tali við Frétta­blaðið í dag að Hæsti­réttur hafi horft fram hjá meg­in­mark­miðum fisk­veiði­stjórn­un­ar­laga um að það beri að stýra veiðum út frá þjóð­ar­hags­munum en ekki hags­munum ein­stakra fyr­ir­tækja. Auk þess segir hann að útgerð­irnar ættu frekar að þakka honum fyrir að hafa komið skikkan á veið­arnir og varið rétt Íslands til mak­ríl­veiða í stað þess að höfða mál til að fá bætur frá rík­inu.

Enn fremur dregur Jón í efa að Hæsti­réttur hafi verið hlut­laus þegar dómur var kveð­inn upp í fyrra. Hann bendir á að einn af hæsta­rétt­ar­dóm­urum í mál­inu, Árni Kol­beins­son, hafi verið ráðu­neyt­is­stjóri í sjáv­ar­út­vegs­ráðu­neyt­inu árin 1985 til 1998. Auk þess var sonur hans fram­kvæmda­stjóri í LÍU og haft ríka aðkomu að körfu­gerðum á hendur rík­inu í tengslum við mak­ríl­hags­muni.

„Þessi mál eru afar póli­tísk og umdeild og voru það frá byrjun að þessi lög eins og lögin um kvóta­lögin voru. Mér finnst skrítið að hæsta­rétt­ar­dóm­ari, sem hefur áður átt beina hlut­deild að máli með samn­ingu og setn­ingu mjög umdeildra laga á sínum tíma, skuli líka kall­aður til sér­stak­lega til að dæma í Hæsta­rétti um svo umdeilt mál. Hann hafði áður komið að virkum hætti sem ráðu­neyt­is­stjóri þess tíma,“ segir Jón.

Óttaleg hraksmíð

Jón segir jafn­framt að frum­varp Krist­jáns Þórs sem sam­þykkt var á Alþingi í gær verji ekki hags­muni þjóð­ar­innar. „Sú laga­breyt­ing er ótta­leg hráka­smíð þar sem verið er að fara á svig við meg­in­hags­muni þjóð­ar­innar hvað varðar stjórnun, ráð­stöfun og nýt­ingu auð­lind­ar­innar,“ segir Jón.

Frum­varpið hefur einnig verið gagn­rýnt að for­manni Félags mak­ríl­veiði­manna, Unn­steini Þrá­ins­syni. Hann sagði í sam­tali við Kjarnann í síð­ustu viku að frum­varpið væri óásættann­legt og að hans félags­menn væru afar ósáttir. Hann ­sagði að með frum­varp­inu væru heim­ild­irnar að mestu færðar til „stór­út­­­gerða lands­ins“, en afgang­­ur­inn fari í leig­u­pott þar sem veið­i­­­gjald verður tvö­­falt, sem sé sér­­stak­­lega þungt í rekst­­ur­inn hjá félags­­­mönnum Félags mak­ríl­veið­i­­­manna.

„Þessar litlu útgerðir munu því tapa heim­ild­unum sínum og verða gert að borga leigu­gjald fyrir að leigja þær aftur af rík­inu. Gjaldið ásamt veiði­gjöldum nemur tvö­földu veiði­gjaldi ann­arra útgerða. Stór­út­gerðin seg­ist illa eða ekki geta staðið undir helm­ingi þess fjár­hæð­ar. Minnstu útgerð­unum verður því gert að lifa við tvö­faldar álögur með mun dýr­ari og áhættu­sam­ari rekst­ur. Það er verið að rífa minnsta útgerð­irnar á hol með þessu,“ sagði Unn­steinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár