Frekari rannsókna þörf á aflandseignum Íslendinga

Frekari rann­sókna er þörf á aflandseignum Íslend­inga. Þá verður að tryggja að hér verði byggðir upp nægj­an­lega öfl­ugir inn­viðir til að fylgj­ast betur með þessum málum, ekki síst þegar losað verður end­an­lega um fjár­magns­höft.

Þetta segir Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri-grænna og full­trúi flokks­ins í efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis, en í morgun fór fram fundur í nefnd­inni. Katrín hafði óskað eftir fund­inum fyrir hálfum mán­uði síðan, eða þegar skýrsla um aflandseignir Íslend­inga var gerð opin­ber.

Hér má lesa ítar­lega um nið­ur­stöður skýrsl­unnar.

Upp­haf­lega stóð til að Bjarni Bene­dikts­son, for­sæt­is­ráð­herra og fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra, kæmi fyrir nefnd­ina til að ræða skýrsl­una og þá töf sem varð á birt­ingu hennar. Bjarni sagði hins vegar nefnd­ar­mönnum fyrr í vik­unni að hann myndi ekki mæta, enda hefði hann talað um málið við fjöl­miðla og hefði engu við að bæta. Hann er engu að síður til­bú­inn til að ræða málið við þingið þegar það kemur saman eftir helgi. Við þetta voru nefnd­ar­menn minni­hlut­ans ósáttir, en úr varð að fund­ur­inn fór fram í morgun.

Á fund­inum kom meðal ann­ars fram að Íslend­ingar hafi staðið Norð­ur­lönd­unum langt að baki þegar kom að lög­gjöf og eft­ir­liti í kringum fjár­magns­flutn­inga og eigna­um­sýslu á aflands­svæðum fyrir hrun. „Umfang þess­arar afland­svæð­ingar var mun meira hér en ann­ars staðar á Norð­ur­löndum þó að skattaum­hverfi þar hafi síst verið hag­kvæmara en hér. Miklu mun­aði þar um CFC-regl­urnar svoköll­uðu sem voru inn­leiddar mun fyrr á Norð­ur­lönd­unum en hér – en hér á landi voru þær inn­leiddar árið 2011,“ segir Katrín á Facebook síðu sinni.

Einnig hafi komið fram að erfitt hafi reynst að nálg­ast full­nægj­andi gögn og skrán­ingar um þessi mál á árunum fyrir hrun, og það sé ekki síst ástæða þess að byggja verði upp inn­viði til að fylgj­ast betur með þessum málum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár