Dagur: Það er ekki eitt, það er allt

Borg­ar­stjór­inn í Reykja­vík talar um þær aðstæður sem upp eru komnar sem for­dæma­lausar.

Dagur B. Eggertsson
Dagur B. Egg­erts­son Mynd: Birgir Þór Harðarson

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri segir for­dæma­lausar aðstæður vera uppi í Reykja­vík, á Íslandi og raunar í heim­inum öllum vegna Covid-19 og við­bragða við henni. Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu hans á Facebook í dag.

Hann greinir jafn­framt frá því að neyð­ar­stjórn borg­ar­innar fundi dag­lega og fari yfir stöð­una. „Í gær fund­aði ég með almanna­vörnum til að fara yfir und­ir­bún­ing sam­komu­banns og áhrif þess og útfærslu. Þetta verk­efni er á höndum sótt­varn­ar­læknis og almanna­varna en vit­an­lega skipta sveit­ar­fé­lögin og starf­semi þeirra lyk­il­máli,“ skrifar hann.

Traustvekjandi að finna fyrir fagmennsku og yfirvegun

Þá bendir hann á að ákvarð­anir um sam­komu­bann séu sam­kvæmt lögum teknar af heil­brigð­is­ráð­herra að til­lögu sótt­varn­ar­læknis. Það sé traust­vekj­andi að finna þá fag­mennsku og yfir­vegun sem ráði ríkjum í öllum við­brögðum og staðan sé metin dag frá degi til að hægt sé að taka réttar ákvarð­anir og tíma­setja þær rétt.

[links]„Ljóst er að nýj­ustu tíð­indin, flug­bann Trump for­seta mun hafa miklar og djúp­stæðar afleið­ingar fyrir Ísland, ferða­þjón­ust­una og stöðu efna­hags­mála, til við­bótar við önnur áhrif veirunnar. Ég gerði borg­ar­ráði í morgun grein fyrir þeirri vinnu sem unnin er af hálfu neyð­ar­stjórnar sem er fjöl­breytt og yfir­grips­mikil. Hún snertir bæði við­búnað í þjón­ustu borg­ar­innar en líka for­varnir og skipu­lagn­ingu á næstu skrefum. Jarð­skjálft­inn mikli á Reykja­nesi reið yfir í miðjum borg­ar­ráðs­fundi. Það er ekki eitt, það er allt,“ skrifar Dagur.

Munum komast í gegnum þetta

Hann segir að almanna­varn­ar­ráð höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins muni hitt­ast í fyrra­málið. Sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafi gætt þess að taka öll skref að und­an­förnu í góðum takti.

„Ég finn fyrir mik­illi sam­stöðu hvar­vetna í þessum verk­efnum, milli ríkis og borgar, milli sveit­ar­fé­laga, innan yfir­stjórnar, innan allrar starf­semi borg­ar­innar, meðal starfs­fólks og íbúa, og þvert á alla póli­tík.

Við höfum áður kom­ist í hann krapp­ann. Þetta er for­dæma­laust en við munum fara í gegnum þetta líka og koma stand­andi niður, með sam­taka­mætti, fag­mennsku og yfir­vegun, en um leið með þeim kjarki sem þarf til að taka nauð­syn­legar ákvarð­anir,“ skrifar hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár