Nýtt manntal: Íbúar á Íslandi næstum 10 þúsund færri en talið hefur verið

Íbúar á Íslandi í upp­hafi árs 2021 voru næstum 10 þús­und færri en lög­heim­il­is­skrán­ingar sögðu til um, sam­kvæmt upp­lýs­ingum úr nýju mann­tali, því fyrsta sem fram­kvæmt er hér­lendis frá 2011.

Íbúar landsins voru 359.122 í upphafi árs 2021 samkvæmt nýja manntalinu en ekki 368.791, eins og lögheimilisskráningar gáfu til kynna.
Íbúar lands­ins voru 359.122 í upp­hafi árs 2021 sam­kvæmt nýja mann­tal­inu en ekki 368.791, eins og lög­heim­il­is­skrán­ingar gáfu til kynna. Mynd: Bára Huld Beck

Samkvæmt nýju mann­tali, sem Hag­stofan fjallar um í dag, voru íbúar á Íslandi næstum því 10 þús­und færri í upp­hafi árs­ins 2021 en lesa hefur mátt út úr opin­berum tölum til þessa.

Mann­talið gefur til kynna að íbúar á land­inu hafi verið 359.122 tals­ins 1. jan­úar 2021, en sam­kvæmt lög­heim­il­is­skrán­ingum Þjóð­skrár voru alls 368.791 manns með lög­heim­ili á land­inu á þeim tíma.

Í umfjöllun á vef Hag­stof­unnar segir að mestu muni um þá sem flytja af landi brott án þess að til­kynna búferla­flutn­inga, en sam­kvæmt þeim aðferðum sem Hag­stofan nýtti við gerð mann­tals­ins búa bjuggu um 7.700 manns erlendis þrátt fyrir að vera með íslenskt lög­heim­ili.

Konráð S. Guð­jóns­son hag­fræð­ingur kallar þessar nið­ur­stöður mann­tals­ins „stór­frétt“ í færslu á sam­fé­lags­miðl­inum Twitter í morgun og segir að þetta setji „allt tal um upp­safn­aða íbúða­þörf í nýtt og breytt sam­hengi“.

Stutt er síðan að Þor­steinn Víglunds­son, fyrr­ver­andi þing­maður Við­reisnar og félags­mála­ráð­herra, fjall­aði um það í aðsendri grein á Vísi að mögu­lega væri íbúa­fjöldi lands­ins veru­lega ofmet­inn í tölum Þjóð­skrár, sem verið hafa grunn­ur­inn að opin­berri áætl­ana­gerð, til dæmis í hús­næð­is­málum.

Fjölgar hlutfallslega mest á Suðurnesjum

Ekki hefur verið fram­kvæmt mann­tal á Íslandi síðan árið 2011. Þá voru íbúar 315.556 tals­ins og voru íbúar sam­kvæmt mann­tal­inu þá met­inn rúm­lega fjórum þús­undum færri en sam­kvæmt tölum Þjóð­skrár um lög­heim­il­is­skrán­ingar.

[adspot]

Fjölg­unin frá síð­asta mann­tali nemur 13,8 pró­sentum. Mann­fjöldi jókst í öllum lands­hlutum frá 2011 til 2021. Hlut­falls­leg fjölgun var mest á Suð­ur­nesjum, 28,2 pró­sent en fjölg­unin þar nam 5.936 manns.

Næst kom Suð­ur­land þar sem fjölg­aði um 18,8 pró­sent eða 4.780 íbúa, og á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fjölg­aði um 30.381 íbúa, sem sam­svarar 15,1 pró­sent fjölgun. Hlut­falls­leg fjölgun var minnst á Norð­ur­landi vestra, en þar fjölg­aði ein­ungis um 40 manns eða 0,6 pró­sent og á Vest­fjörðum þar sem fjölg­unin nam 1,6 pró­senti og 109 íbúar bætt­ust við.

Samkvæmt mann­tal­inu 2021 voru konur 49,0 pró­sent (176.067) og karlar 51 pró­sent (183.055) íbúa á Íslandi. Hlutfall kvenna hefur lækkað aðeins frá mann­tal­inu 2011 þegar konur voru 49,9% mann­fjöld­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár