Rísandi Íran: Trú eða hagsmunir?

Azadi turninn í Teheran.
Azadi turn­inn í Teheran. Mynd: Christiaan Triebert

Mikið hefur mikið verið rætt um upp­gang þess sem kallað er öfga-íslam und­an­farið. Þar hefur hið svo­kall­aða Íslamska ríki verið til­tekið sér­stak­lega og nefnt sem helsta ógn Vest­ur­landa. Ófrið­ar­bálið sem logað hefur und­an­farna ára­tugi í ríkj­unum fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs og víðar er jafn­framt tengt við átök á milli til­tek­inna trú­ar­hópa. Talað er um að þar tak­ist á inn­byrðis, heit­trú­aðir sía og súnni múslímar sem síðan hat­ist í sam­ein­ingu við gyð­inga í Ísrael – þeir al-öfga­fyllstu við heims­byggð­ina eins og hún leggur sig.

Þá er jafnan gengið út frá því að átaka­línur séu í sam­ræmi við til­tekna trú sem skapi sam­stöðu meðal trú­bræðra. Stjórn­völd í löndum þar sem trú er ríkj­andi þáttur í stjórn­ar­far­inu hljóti því að styðja fylg­is­menn sömu trúar í öðrum ríkjum mögl­un­ar­laust. Þetta er sér­stak­lega mik­il­vægt að skoða nú í ljósi breyttrar stöðu Írans í kjöl­far kjarn­orku­sam­komu­lags­ins við Vest­ur­veldin. Landið mun vænt­an­lega leika lyk­il­hlut­verk í því hvernig til tekst með frið­ar­um­leit­anir í Mið-Aust­ur­löndum. Íran er í raun eina ríkið á svæð­inu þar sem guð­ræði (e. theocracy) ríkir en hóf­sam­ari borg­ara­legir stjórn­ar­hættir eiga þó einnig sína málsvara í írönsku stjórn­kerfi.

Íran og Sádi-Arabía, sem voru hand­bendi stór­veld­anna á tímum kalda­stríðs­ins, eru nú orðnir sjálf­stæð­ari ger­endur en áður og helstu keppi­naut­arnir um völd í Mið-Aust­ur­löndum. Eins og inn­rás Banda­ríkja­manna í Írak lagði grunn­inn að til­urð Íslamska rík­is­ins varð brott­hvarf Saddams Hússeins af valda­stóli í Írak einnig til þess að valda­jafn­vægið sem ríkti á svæð­inu raskað­ist. Um leið og Banda­ríkja­menn hafa dregið úr stuðn­ingi við Sádí-Arabíu hefur þíða mynd­ast í sam­skiptum þeirra og Írana – sem hafa haft tæki­færi til stíga inn í tóma­rúmið sem mynd­að­ist, gera banda­lag við Írak og náð að styrkja stöðu sína sem ráð­andi afl á svæð­inu.

Þegar gripið er til þeirrar útskýr­ingar að ófrið­ur­inn í Mið-Aust­ur­löndum sé afsprengi alda­gam­alla trú­ar­erja yfir­sést mönnum ýmsir mik­il­vægir þættir sem eiga a.m.k. jafn ríkan þátt í að ýta undir núver­andi ástand. Vissu­lega getur trú átt þátt í að skerpa þær and­stæður sem auka á átök og opin­ber trú við­kom­andi ríkis haft áhrif stefnu og stuðn­ing í ríkja­sam­skiptum. Einnig hafa heit­trú­aðir öfga­hópar verið not­aðir sem verk­færi eins og Íran gerði með stofnun Hezbollah sam­tak­anna í Líbanon til að berja á Ísra­els­mönnum.

Klass­ískir valda­hags­munir sem byggja á land­fræði-póli­tískum og efna­hags­legum for­sendum, bæði innan ríkis og utan, eiga hins vegar stóran þátt í ólg­unni og þeim átökum sem eiga sér stað fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs. Rann­sóknir fræði­manna sýna einmitt fram á að þegar á reynir eru það efna­hags­legir þættir og land­fræði­leg lega sem skipta mestu. Jafnvel þar sem heit­trú­aðir bók­stafs­trú­ar­menn eru við völd eru það efna­hags­legir hags­munir sem ráða end­an­legri stefnu fremur en trú­ar­brögð og tengsl við trú­bræður – og þetta á sér­stak­lega við um Íran.

Íran og stuðningur við harðlínusamtök

Íranskir leið­togar eru þekktir fyrir afdrátt­ar­lausar yfir­lýs­ingar gagn­vart Ísrael eins og frægt er orðið. Íran hefur auk stuðn­ings við Hezbollah í Líbanon, m.a. beitt Hamas-sam­tök­unum í Palest­ínu í þeirri bar­áttu. Í fyrstu mætti ætla að stuðn­ingur Írans við slík trú­bræðra­sam­tök, sem byggja á íslömskum grunni, væri óskor­aður. En þegar betur er að gáð kemur í ljós að hann hefur verið mjög ótryggur. Ýmist eru Hamas, Hezbollah eða önnur her­ská sam­tök ein á báti þar sem ekki er einu sinni reynt að sýna móralskan stuðn­ing – yfir til þess að Íran tekur ákveðna ábyrgð á þessum hópum. Þar ræður miklu að stjórnin í Teheran hefur verið að reyna að leggja áherslu á for­ystu­hlut­verk sitt til að skapa frið á svæð­inu.

Þetta styður enn frekar það sjón­ar­mið að utan­rík­is­stefna Írans og hin trú­ar­lega orð­ræða er langt frá því að vera ein­róma eða afdrátt­ar­laus. Það gefur til kynna að stuðn­ingur Írans, þar sem sía-trú er ríkj­andi, við sam­tök eins og súnni sinnað Hamas sé frekar byggður á því hvort og hvernig það þjónar póli­tískum hags­munum Írans. Ein ástæðan fyrir því er að Íranar vilja ekki að sía-trú nái und­ir­tökum á svæð­inu sem kæmi í veg fyrir að þeir verði breið­virkt íslamskt afl. Stuðn­ingur jöfnum höndum við Hamas, öfgasinnuð íslömsk sam­tök og mál­stað Palest­ínu­manna er því góð leið til að yfir­stíga klofn­ing og und­ir­strika þannig for­ystu­hlut­verk Íran.

Einnig þarf að taka með í reikn­ing­inn að hóg­vær stefna hentar ekki harð­línu­öflum í Íran því völd þeirra byggj­ast á því að skerpt sé á trú­ar­legum átaka­línum. Aðgerðir eins og inn­rásin í sendi­ráð Sádí-Arabíu í Teheran, í kjöl­far aftök­unnar á síaklerknum Sheikh Nimr al-Nimr, eru því til þess gerðar að grafa undan trú­verð­ug­leika hins hóf­sama arms, fremur en að þær séu byggðar á ígrund­aðri stefnu íranskra stjórn­valda.

Skortur á pólitískri umræðu og lögmæti stjórnvalda

Um sex­tíu pró­sent Írana eru Persar sem eru ráð­andi í sam­fé­lag­inu. Vest­rænir fjöl­miðlar afgreiða gjarnan póli­tískan óstöð­ug­leika í Íran sem upp­reisn súnníta minni­hlut­ans. Þar yfir­sést mönnum að málið snýst miklu fremur um und­ir­ok­aða hópa af mis­mun­andi kyn­þáttum í Íran. Þetta eru hópar Asera, Kúrda, Túrkmena og Araba auk ann­arra smærri brota og upp­reisn þeirra er það sem raun­veru­lega gæti valdið óstöð­ug­leika og ófriði í land­inu. Jafnvel lýð­ræð­is­sinn­aðir Persar eru hik­andi við að auka lýð­rétt­indi þess­ara minni­hluta­hópa því það gæti leitt til enda­loka pers­neskra yfir­ráða í Íran.

Þetta leiðir okkur að þeim und­ir­liggj­andi grund­vall­ar­vanda sem hrjáir ríki Mið-Aust­ur­landa, hversu mikið Vest­ur­veldin, sér í lagi Banda­ríkin, Frakk­land og Bretland, hafa ráðskast með þau síð­ast­liðin eitt­hund­rað ár. Afleið­ing­arnar eru að póli­tísk umræða hefur ekki náð að þró­ast og móta umhverfi hvar vald­hafar hafa öðl­ast póli­tískt lög­mæti, m.a. meðal ólíkra þjóð­ar­brota, sem er frum­skil­yrði fyrir raun­veru­legri sjálf­stjórn ríkj­anna. Þar hafa fremur setið ein­ræð­is­herrar, gjarnan í skjóli Vest­ur­landa, en þeim sem hafa verið þrándur í götu er gjarnan komið frá með und­ir­róðri, skipu­lögðum bylt­ingum og inn­rásum. Í slíku umhverfi er leiðin til að tryggja póli­tíska hags­muni og völd einmitt að kynda ófrið­ar­bál með því að skerpa trúar- og þjóð­ern­is­legar átaka­línur.

Nið­ur­staðan er því sú að vara­samt er að ganga út frá því að trú­ar­brögð séu megin skýr­ing á stefnu eða gjörðum ríkja, eða þegar orsaka átaka og stríða er leitað, þó vissu­lega geti þau átt ríkan þátt. Almennt gildir það um ríkja­sam­skipti að þar ráða efna­hags­legir hags­munir mestu og ríki reyna fyrst og fremst að tryggja öryggi sitt í hví­vetna. Því er hægt að gera ráð fyrir að ein­hvers­konar hug­mynda­fræði­legur eða trú­ar­legur sam­hljómur meðal þjóða dugi skammt þegar á reynir. Þegar stefnu­mótun sem varðar öryggi rík­is­ins er ann­ars vegar eru það oftar en ekki hreinir og klárir efna­hags­legir- eða póli­tískir hags­munir sem ráða för.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár