Laun forstjóra Landsnets hækkuðu um rúm 37 prósent milli ára

Með­al­laun Guð­mundar Inga Ásmunds­sonar voru 2.488.000 krónur á mán­uði á síð­asta ári og hækk­uðu því um 37,2% frá árinu áður.

Guðmundur Ingi Ásmundsson
Guð­mundur Ingi Ásmunds­son Mynd: Birgir Þór Harðarson

Heild­ar­laun Guð­mundar Inga Ásmunds­sonar, for­stjóra Lands­nets, voru 29.856.000 krónur árið 2018 eða að með­al­tali 2.488.000 krónur á mán­uði. Samkvæmt árs­skýrslu Lands­nets fyrir árið 2017 þá voru heild­ar­launin 21.762.000 eða að með­al­tali 1.813.500 krónur á mán­uði. Þetta þýðir að launin hækk­uðu um 37,2 pró­sent milli ára.

[links]Í svar­bréfi sem for­maður stjórnar Lands­nets sendi Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og birt var í dag á vef Stjórn­ar­ráðs­ins kemur fram að minnst einu sinni á ári eða oftar séu gerðar launa­grein­ingar til að fylgj­ast með hvernig laun eru að þró­ast á mark­aði. Þannig fáist góðar upp­lýs­ingar um laun á sam­keppn­is­mark­aði og yrti við­mið fyrir allar starfs­stéttir hjá Lands­neti.

Fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra sagð­ist mjög óhress með þær launa­hækk­anir sem átt hafa sér stað hjá hluta for­stjóra rík­is­fyr­ir­tækja í fjöl­miðlum þann 13. febr­úar síð­ast­lið­inn. Hann var sam­mála þeirri gagn­rýni sem sett hefur verið fram um að þær séu takt­laus­ar. „Það er ekki annað að sjá en að þau til­mæli sem send voru á sínum tíma, í upp­hafi árs 2017, hafi verið höfð að eng­u,“ sagði hann.

Í bréfi stjórn­ar­for­manns­ins til Bjarna kemur fram að við mat á við­miðum fyrir laun for­stjóra Lands­nets sé við­mið meðal ann­ars fundið út frá sam­an­burði við sam­bæri­leg fyr­ir­tæki á íslenskum mark­aði þ.e. orku­fyr­ir­tæki og svipuð opin­ber fyr­ir­tæki án bank­anna. Einnig hafi verið hafður til hlið­sjónar fram­reikn­ingur á launum for­stjóra úr frá launa­vísi­tölu. „Loks má nefna að við matið var jafn­framt skoðað innra við­mið þ.e. hlut­falls­legur munur á launum for­stjóra og mið­gildi launa allra starfs­manna LN,“ segir í bréf­inu.

Stjórn Lands­nets bar ábyrgð á samn­ingum um launa­kjör for­stjóra Lands­nets til 1. maí 2010, þegar ákvörðun um laun for­stjóra voru fært til kjara­ráðs. Laun for­stjór­ans lækk­uðu nokkuð eftir það en fylgdu síðan almennum launa­hækk­unum. Samkvæmt for­manni stjórnar gerði launa­lækk­unin það að verkum að launin fylgdu ekki launa­vísi­tölu. Ábyrgð um laun hans voru síðan aftur færð undir stjórn Lands­nets þann 1. júlí 2017.

Í bréfi stjórn­ar­for­manns segir að í síð­ustu launa­grein­ingu sem gerð var í ágúst 2018 hafi laun for­stjór­ans verið borin saman við mið­gildi launa allra starfs­manna hjá Lands­neti og fundið út launa­hlut­fall. Það hafi verið 2,27 á síð­asta ári en sam­kvæmt Lands­neti er það lágt á íslenskan mæli­kvarða.

„Stjórn Lands­nets er með­vituð um ábyrgð sína á að laun for­stjóra séu í sem bestu sam­ræmi við umfang og ábyrgð starfs­ins og séu sam­keppn­is­hæf. Og við höfum byggt ákvarð­anir okkar á launa­kjörum for­stjóra á eins hlut­lægan hátt og nokkur kostur er.

Starf­semi Lands­nets er flókin og viða­mikil. Krafa um rekstr­ar­ör­yggi og stöð­ug­leika kallar á að stjórn skapi for­stjóra laun og önnur starfs­kjör sem eru til þess fallin að hann sam­sami sig fyr­ir­tæk­inu og hlut­verki þess og sýni því þá tryggð sem nauð­syn­leg er,“ segir í bréfi stjórn­ar­for­manns til Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár