Bjarni segist mjög óhress með launahækkanir

Bjarni Bene­dikts­son ætl­ast til þess að stjórnir rík­is­fyr­ir­tækja beri skyn­bragð á það sem er að ger­ast í sam­fé­lag­inu og segir ekki annað að sjá en að til­mæli um að sýna hóf­semd í launa­hækk­unum rík­is­for­stjóra hafi verið höfð að engu.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, seg­ist mjög óhress með þær launa­hækk­anir sem átt hafa sér stað hjá hluta for­stjóra rík­is­fyr­ir­tækja og er sam­mála þeirri gagn­rýni sem sett hefur verið fram um að þær séu takt­lausar. „Það er ekki annað að sjá en að þau til­mæli sem send voru á sínum tíma, í upp­hafi árs 2017, hafi verið höfð að engu.“

[links]Þetta sagði Bjarni í Morg­un­út­varpi Rásar 2 í morgun. Hann sagði enn fremur að stjórn­ar­menn í rík­is­fyr­ir­tækjum á Íslandi væru þátt­tak­endur í sam­fé­lagi þar sem ætti sér stað bar­átta um að koma í veg fyrir of mikla gliðnun milli launa þeirra sem berj­ast fyrir betri kjörum og þeirra sem stýra rík­is­fyr­ir­tækjum. „Aðal­at­riði í þessu öllu er að við ætl­umst til þess að menn séu að ganga í takt og beri eitt­hvað skyn­bragð á því sem er að ger­ast í sam­fé­lag­inu.“ Bjarni úti­lokar ekki að grípa við aðgerða vegna máls­ins en sagði eðli­legt að gefa stjórnum rík­is­fyr­ir­tækja og Banka­sýslu rík­is­ins færi á að svara fyrir sig fyrst.

Tilmælin sem Bjarni vísar til komu frá Benedikt Jóhann­essyni, þá fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, í jan­úar 2017, eftir að ákveðið hafði verið með laga­breyt­ingu að færa for­stjóra rík­is­fyr­ir­tækja undan kjara­ráði frá og með 1. júní það ár. Benedikt beindi því til stjórna allra rík­is­fyr­ir­tækja að sýna hóf­semi í launa­hækk­unum. Við því hafa fæstar þeirra orðið.

[adspot]Laun rík­is­for­stjóra urðu aftur að meg­in­efni í umræð­unni í byrjun viku þegar greint var frá því að laun Lilju Bjarkar Ein­ars­dóttir, banka­stjóra Lands­bank­ans, hefðu verið hækkuð í 3,8 millj­ónir króna á mán­uði, sem þýðir að laun hennar hafa hækkað um 82 pró­sent á um tveimur árum.

Fjölmargar aðrar launahækkanir

Þetta er ekki eina launa­hækkun rík­is­for­stjóra frá því að ákvörðun um launa­kjör þeirra voru færð frá Kjara­ráði og yfir til stjórna fyr­ir­tækj­anna. Laun útvarps­stjóra hækk­uðu um 16 pró­­sent í 1,8 millj­­ónir króna á mán­uði, laun for­­stjóra Isavia um 20 pró­­sent í 2,1 millj­­ónir króna á mán­uði, laun for­­stjóra Lands­­virkj­unar um 32 pró­­sent upp í 2,7 millj­­ónir króna á mán­uði, laun for­­stjóra Íslands­­­pósts um 17,6 pró­­sent í 1,7 millj­­ónir króna á mán­uði og laun for­­stjóra Lands­­nets um tíu pró­­sent í 1,8 millj­­ónir króna á mán­uði.

Birna Ein­ars­dótt­ir, banka­stjóri Íslands­banka, hefur einnig haft mjög góð laun, en hún var með 4,8 millj­ónir króna í laun og árang­urstengdar greiðslur á árinu 2017. Í fyrra­dag sendi Íslands­banki frá sér til­kynn­ingu þar sem fram kom að Birna hefði óskað eftir því í nóv­em­ber síð­ast­liðnum að laun hennar yrðu lækkuð og að þau séu nú 4,2 millj­ónir króna á mán­uði. Samkvæmt upp­lýs­ingum sem Kjarninn hefur aflað tók sú launa­lækkun gildi 1. jan­úar 2019 og heild­ar­laun Birnu á síð­asta ári lækk­uðu því ekki frá því sem þau voru 2017. Íslands­banki mun birta árs­reikn­ing sinn fyrir árið 2018 í dag, mið­viku­dag, og þar verður birt sund­ur­liðun á launum Birnu.

Fengu skýr fyrirmæli

Bjarni sagði við Morg­un­út­varpið að hann hafi litið svo á að stjórnir rík­is­fyr­ir­tækja hefðu fengið skýr fyr­ir­mæli auk þess sem þeir bar að gæta að laga­skyldu við ákvörðun launa for­stjóra. Hann sendi í gær bréf til stjórna allra rík­is­fyr­ir­tækja og Banka­sýslu rík­is­ins, sem fer með eign­ar­hald rík­is­ins í Lands­bank­anum og Íslands­banka, þar sem hann óskaði eftir upp­lýs­ingum um það hvernig hefði verið farið eftir til­mælum Bene­dikts á sínum tíma og þau höfð til hlið­sjónar við ákvörðun launa for­stjóra. „Hafi stjórnir ákvarðað fram­kvæmda­stjórum launa­hækk­anir umfram almenna launa­þró­un, er óskað eftir því að þær færi rök fyrir þeim ákvörð­unum með til­vís­unar til eig­anda­stefnu.“

Bjarni sagði sann­gjarnt og eðli­legt að gefa stjórn­unum tæki­færi á því að skýra mál sitt og þess vegna hefði hann sent bréfið. „Þetta er samt sem áður þannig að það þarf að skoða hvert og eitt til­vik varð­andi breyt­ing­arnar.“ Hinar miklu hækk­anir á launum for­stjóra skýrist í ein­hverjum til­fellum af því að í gildi var ráðn­ing­ar­samn­ingur frá fyrri tíma, eða áður en að allir rík­is­for­stjórar voru felldir undir Kjararáð í for­sæt­is­ráð­herra­tíð Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur og það við­mið sett að eng­inn þeirra ætti að vera með hærri laun en for­sæt­is­ráð­herra. Bjarni sagði einnig mik­il­vægt að skoða launa­þróun rík­is­for­stjór­anna yfir lengra tíma­bil en gert hefur verið í umræð­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár