Íslandsbanki segist „mjög stórt fyrirtæki“ og telur laun bankastjóra síns ekki leiðandi

Stjórn Íslands­banka telur að Birna Ein­ars­dóttir, sem var með 5,3 millj­ónir króna í mán­að­ar­laun í fyrra, hafi staðið sig vel í starfi og að horft hafi verið til þess við launa­á­kvörðun. Stjórn telur laun Birnu ekki vera leið­andi né í and­stöðu við til­mæli.

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, ásamt Friðriki Sophussyni, stjórnarformanni bankans, sem ritaði bréfið.
Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka, ásamt Friðriki Soph­us­syni, stjórn­ar­for­manni bank­ans, sem rit­aði bréfið. Mynd: Íslandsbanki

Stjórn Íslands­banka telur að launa­kjör Birnu Ein­ars­dóttur, banka­stjóra bank­ans, séu í sam­ræmi við setta starfs­kjara­stefnu bank­ans. Stjórnin telur einnig að Birna hafi staðið sig afar vel í starfi og að heild­ar­laun hennar, sem voru 5,3 millj­ónir króna á mán­uði í fyrra en 4,8 millj­ónir króna í ár, séu ekki leið­andi eftir að hafa gert sam­an­burð við gögn ann­arra banka­stjóra og for­stjóra á Íslandi sem birst hafi í gögnum úr tekju­blaði Frjálsrar versl­unar og ýmsum árs­reikn­ingum.

[links]Þetta kemur fram í bréfi sem stjórn Íslands­banka hefur sent Banka­sýslu rík­is­ins vegna launa­mála Birnu. Banka­sýslan sendi stjórn­inni bréf í síð­ustu viku og krafð­ist þar skýr­inga á launa­þróun banka­stjór­ans. Þess var auk þess kraf­ist að svar bær­ist innan viku, eða fyrir lok dags 19. febr­ú­ar. Sam­bæri­legt bréf var sent til banka­ráðs Lands­bank­ans, sem er einnig í rík­i­s­eigu og heyrir því undir Banka­sýslu rík­is­ins. Það svar­bréf var birt fyrr í dag.

Mjög stórt fyrirtæki

Í bréfi stjórnar Íslands­banka, sem stjórn­ar­for­mað­ur­inn Friðrik Soph­us­son skrifar undir, segir að Íslands­banki sé mjög stórt fyr­ir­tæki á íslenska mæli­kvarða og leið­andi á ýmsum sviðum íslensks atvinnu­lífs. „Bankinn hefur víð­tækar starfs­heim­ildir skv. lögum um fjár­mála­fyr­ir­tæki og starf­semi bank­ans er marg­þætt og tækni­lega flókin, sem gerir miklar kröfur til dag­legs stjórn­anda um hæfni og stjórn­un­ar­hæfi­leika. Þá má geta þess að Fjár­mála­eft­ir­litið gengur úr skugga um hæfni og þekk­ingu fram­kvæmda­stjóra með prófum til þess að ganga úr skuffa um að hann upp­fylli þær kröfur og þekk­ingu og hæfni sem lög gera.“

[adspot]Við ákvörðun launa banka­stjór­ans hafi stjórn meðal ann­ars horft til reynslu banka­stjór­ans, árang­urs, við­skipta­tengsla og hæfni. Mat stjórnar Íslands­banka hafi verið að starfs­ár­angur núver­andi banka­stjóra, Birnu Ein­ars­dóttur, hafi verið afar góður. „Hún hefur sinnt starfi sínu af kost­gæfni og verið sterkur leið­togi stjórn­un­arteymis bank­ans, m.a. í stefnu­mótun á umbrota­tímum. Þá má sér­stak­lega nefnda end­ur­skipu­lagn­ingu lána sem Íslands­banki lauk hraðar en keppi­naut­arnir. Á sama tíma tók bank­inn yfir starf­semi tveggja fjár­mála­fyr­ir­tækja og sam­þætti sínum rekstri. Tekist hefur með skipu­legum hætti að ná fram slíkri hag­ræð­ingu í starf­semi bank­ans að starfs­menn eru nú færri en þeir voru fyrir sam­ein­ing­arnar.“

Stjórnin telur einnig til að fjár­mála­tíma­ritið Euromo­ney hafi valið Íslands­banka besta banka á Íslandi á árinu 2018 og að það væri í fimmta sinn sem bank­inn hlyti þá við­ur­kenn­ingu. Þá hafi ánægja við­skipta­vina Íslands­banka mælst mikil, hann hlotið Hvatn­ing­ar­verð­laun jafn­rétt­is­mála og bank­inn rekið öfl­ugt fræðslu­starf.

Í svari stjórn­ar­innar segir að starfs­kjara­nefnd og stjórn bank­ans fari reglu­lega yfir sam­an­burð á launa­kjörum banka­stjóra „við launa­kjör for­stjóra á Íslandi og hefur til þess stuðst við gögn úr Frjálsri verslun, árs­reikn­ingum skráðra fyr­ir­tækja sem og árs­reikn­ingum ann­arra fjár­mála­fyr­ir­tækja. Stjórn telur þann sam­an­burð sýna að laun banka­stjóra séu ekki leið­andi.“

Bankanum beri að bjóða starfs­kjör sem séu sam­bæri­leg því sem ger­ist í starfs­um­hverfi bank­ans og nið­ur­staða stjórnar hafi verið sú að stjórnin hafi fylgt starfs­kjara­stefnu bank­ans við ákvörðun á launa­kjörum Birnu „til sam­ræmis við þær óskir sem fram voru settar í bréfi fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins frá 6. jan­úar 2017. Breyt­ing­arnar á launa­kjörum banka­stjóra Íslands­banka eru vel innan við almenna launa­þróun frá þeim tíma.“

Launin voru aldrei í samræmi við ákvörðun kjararáðs

Bréf fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins sem vísað er í var sent af Benedikt Jóhann­essyni þegar hann stýrði því ráðu­neyti í upp­hafi árs 2017. Í því var til­mælum beint til stjórna rík­is­fyr­ir­tækja að gæta var­kárni við launa­á­kvarð­anir þegar ákvörð­un­ar­vald yfir slíkum færð­ist frá kjara­ráði og yfir til stjórn­anna um mitt ár 2017.

Í jan­úar 2017 úrskurð­aði kjara­ráð að lækka ætti laun Birnu í rúm­lega tvær millj­ónir króna á mán­uði. Sú launa­lækkun kom þó aldrei til fram­kvæmda þar sem Birna var með tólf mán­aða upp­sagn­ar­frest. Ákvörðun um launa­kjör hennar færð­ist svo aftur til stjórnar Íslands­banka um mitt ár 2017 sem ákvað að hækka laun hennar enn frekar frá því sem áður var, en ekki lækka.

Birna óskaði sjálf eftir því að grunn­laun hennar yrðu lækkuð síðla á árinu 2018. Sú breyt­ing tók gildi í byrjun þessa árs. Samkvæmt útreikn­ingum Morg­un­blaðs­ins eru heild­ar­laun og hlunn­indi hennar á þessu ári 4,8 millj­ónir króna að með­al­tali á mán­uði. Það er um einni milljón króna meira en laun Lilju Bjarkar Ein­ars­dóttur, banka­stjóra Lands­bank­ans, hins rík­is­bank­ans, en laun hennar eru nú 3,8 millj­ónir króna á mán­uði. Þau hafa hækkað um 82 pró­sent frá miðju ári 2017 með vísun í að launin hafi ekki verið sam­an­burð­ar­hæf við önnur í geir­anum.

Hægt er að lesa bréf stjórnar Íslands­banka til Banka­sýslu rík­is­ins í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár