Bankaráðið telur sig hafa sýnt varkárni og hófsemd með launahækkun bankastjóra

Bankaráð Lands­bank­ans seg­ist ein­fald­lega hafa fylgt eig­enda­stefnu og starfs­kjara­stefnu þegar það hækk­aði laun banka­stjóra bank­ans í 3,8 millj­ónir á mán­uði. Þau hafi ekki verið sam­keppn­is­hæf og dreg­ist langt aftur úr sam­bæri­legum launum.

Mikil óánægja hefur verið í samfélaginu vegna launahækkana bankastjóra Landsbankans.
Mikil óánægja hefur verið í sam­fé­lag­inu vegna launa­hækk­ana banka­stjóra Lands­bank­ans. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Bankaráð Lands­bank­ans, sem er í eigu íslenska rík­is­ins, segir að 82 pró­senta hækkun á launum Lilju Bjarkar Ein­ars­dóttur, banka­stjóra bank­ans, um mitt ár 2017 sé til­komin vegna þess að að laun banka­stjóra hefðu dreg­ist „langt aftur úr þeim launum sem greidd voru fyrir sam­bæri­leg störf“ á árunum 2009 til 2017. Þetta hefði gert það að verkum að laun banka­stjór­ans hafi ekki verið sam­keppn­is­hæf og ekki í sam­ræmi við starfs­kjara­stefnu bank­ans. Þá telur banka­ráðið sig hafa sýnt bæði hóf­semi og var­kárni þegar samið var um að hækka laun banka­stjór­ans.

[links]Þetta er meðal þess sem fram kemur í bréfi sem banka­ráð Lands­bank­ans hefur sent Banka­sýslu rík­is­ins vegna launa­hækk­ana Lilju. Banka­sýslan sendi banka­ráð­inu bréf í síð­ustu viku og krafð­ist þar skýr­inga á því af hverju laun banka­stjóra hefðu hækkað svona mikið. Þess var auk þess kraf­ist að svar bær­ist innan viku, eða fyrir lok dags 19. febr­úar. Sam­bæri­legt bréf var sent til stjórnar Íslands­banka, sem er einnig í rík­i­s­eigu og heyrir því undir Banka­sýslu rík­is­ins.

Launin endurskoðuð á næsta aðalfundi

Þegar Lilja var ráðin í starfið í jan­úar 2017 lá fyrir að ákvörðun um laun banka­stjóra myndu fær­ast frá kjara­ráði yfir til banka­ráðs­ins um mitt það ár. „Við mat banka­ráðs á hver laun nýs banka­stjóra ættu að vera var m.a. aflað gagna frá óháðum ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækjum um laun stjórn­enda ann­arra fjár­mála­fyr­ir­tækja og for­stjóra stórra fyr­ir­tækja á Íslandi og óskað álits á hver sam­keppn­is­hæf laun væru. Nið­ur­stöður þeirra voru m.a. að eðli­legt væri að launin væru á bil­inu 3,5-4,9 millj­ónir króna á mán­uði. Í kjöl­farið var samið um að laun banka­stjóra yrðu 3,25 millj­ónir króna frá og með 1. júlí 2017. Í ráðn­ing­ar­samn­ingnum kemur fram að það sé stefna banka­ráðs að greiða banka­stjóra sam­keppn­is­hæf laun.

[adspot]Launin voru síðan end­ur­skoðuð í sam­ræmi við ákvæði samn­ings­ins og starfs­kjara­stefn­unnar frá og með 1. apríl 2018. Heild­ar­laun banka­stjóra nema nú 3,8 millj­ónum króna á mán­uði. Eftir hækk­un­ina eru laun banka­stjóra Lands­bank­ans umtals­vert lægri en laun banka­stjóra hinna stóru bank­anna tveggja.“

Í bréfi banka­ráðs­ins, sem Helga Björk Eiríks­dóttir stjórn­ar­for­maður skrifar undir, kemur einnig fram að laun banka­stjór­ans séu end­ur­skoðuð einu sinni á ári. Sú end­ur­skoðun hefur ekki farið fram á árinu 2019 en við hana verði byggt á starfs­kjara­stefnu Lands­bank­ans eins og hún verður sam­þykkt á næsta aðal­fundi bank­ans, sem fram fer 20. mars. Í bréf­inu segir svo: „Samkvæmt upp­lýs­ingum sem hafa komið fram í fjöl­miðlum nema mán­að­ar­laun banka­stjóra Íslands­banka, um 4,8 millj­ónum króna á árinu 2019, eftir nýlegar breyt­ingar á kjörum banka­stjór­ans. Mán­að­ar­laun banka­stjóra Lands­bank­ans eru 3,8 millj­ónir króna. Miðað við þessar upp­lýs­ingar er mun­ur­inn á launum banka­stjór­anna tveggja um 12 millj­ónir króna á árs­grund­velli.“

Telja sig hafa sýnt hófsemi og varkárni

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sendi einnig bréf til bank­anna vegna sama máls.

Í bréfi Bjarna er óskað eftir upp­lýs­ingum um það hvernig hafi verið brugð­ust við til­mælum sem þáver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, Bene­dikt Jóhann­es­son, sendi stjórnum þeirra beggja í jan­úar 2017 , sem síðar voru ítrek­uð, um að gæta var­kárni við launa­á­kvarð­an­ir. Svar við bréfi Bjarna hefur ekki verið birt en í svar­bréf­inu til Banka­sýslu rík­is­ins er fjallað um við­brögð Lands­bank­ans við þessum til­mælum Bene­dikts, sem hann sjálfur telur að hafi verið hunsuð með öllu.

Í svari banka­ráðs­ins segir að til­mæli ráð­herr­ans hafi snúið að því að launa­á­kvarð­anir ættu að fylgja ákvæðum eig­enda­stefnu rík­is­ins frá árinu 2009.

Þar sem að banka­stjóri Lands­bank­ans hefði verið með miklu lægri laun en hinir banka­stjór­arnir á meðan að hann heyrði undir kjara­ráð telur banka­ráðið launa­hækkun Lilju ekki brjóta gegn til­mælum fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um að sýna hóf­semd við launa­á­kvarð­anir. „Ákvörðun banka­ráðs byggði á sam­an­burði við önnur sam­bæri­leg fyr­ir­tæki án þess þó að vera leið­andi. Miðað var við laun æðstu yfir­manna ann­arra fjár­mála­fyr­ir­tækja, þ.m.t. banka sem einnig er í eigu rík­is­ins, og telur banka­ráð að ákvarð­anir þess um launa­kjör banka­stjóra Lands­bank­ans upp­fylli í senn skil­yrði starfs­kjara­stefnu Lands­bank­ans og eig­anda­stefnu rík­is­ins.[...]Bankaráð áréttar að vegna þeirra sér­stöku aðstæðna sem eru uppi í þessu máli, þ.e. að laun banka­stjóra Lands­bank­ans höfðu dreg­ist langt aftur úr kjörum ann­arra æðstu stjórn­enda á fjár­mála­mark­aði, hafi verið nauð­syn­legt að færa launa­kjör banka­stjór­ans nær þeim launum sem greidd eru fyrir sam­bæri­leg störf hjá sam­bæri­legum fyr­ir­tækjum.

Banka­ráðið telur því ákvörðun sína um laun banka­stjóra hafa verið var­kára að því leyti að umsamin laun hafi ekki verið leið­andi, þ.e. verið tölu­vert lægri en laun banka­stjóra hinna tveggja stóru bank­anna.

Hægt er að lesa svar­bréfið hér í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár